Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Farin ut ad leika i snjonum.
Meira seinna, nettiminn ad verda buin
Vinir og fjölskylda | Sunnudagur, 6. apríl 2008 (breytt kl. 08:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lqngqdi svo ad setjq inn sma fréttir qf okkur en tqd er ekki audvelt. I London datt 2 ut fyrr en sidq,legt er og ko,mst tvi ekki a netid. ég var ein af teim tar Jebb... tessu, sem tindu toskunum sinum a Heathrow, kerfid teirrq virkqdi ekki og tqkqn min tind i 2 tima. Kostar sér ferd til Lon og don seinna; bara redda tvi. Ferdin hingad til Marokko gekk vel. Vid vorum sidust i gegnum passakontrolid. Bara typikal. Tess vegna kann eg svo vel ad meta tegar eg graedi tima. Vildi segja fra aefintyrinu her, en tetta takkabord hentar mer ekki til tjaningar ne heldur sniglqhradinn a netinu. Ta er tolvan ekki med USB svo ekki er haegt ad setja inn myndir.
Einkasonurinn lagdi af stad i sina heimsreisu i dag og muttan alveg i molum yfir ad sja hann ekki fyrr en i agust.
En hér er eg a 5 stjornu hoteli og er nu satt vi tad. Er virkilega komin upp a lag med ad vera fritt a hotelum.
Held eg gefist upp a ad tja mig meira her ad sinni. Takka teim er haf kvittad her a undan.
Bestu kvedjur fra flokkurofunni
us
Vinir og fjölskylda | Fimmtudagur, 3. apríl 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Vildi bara leyfa ykkur að gleðjast með mér
Ó, já. Ég var að græða og það er nú alltaf betra en að tapa ekki satt?
Ég er búin að ólmast eins og samviskusamur púki við námið mitt. Notaði páskana í það meira en góðu hófi gengni. Meira að segja í Berlín var ég að læra Þetta var jú, vinnuferð fyrst enginn slasaðist, laun og alles fyrir starfsmenn og alles fyrir viðhengi
Þegar maður leggst í svona víking eins og ég er lögst í, þá verður maður að halda vel á spöðunum til að skila. Nógu töff stundum þó ekkert sé. En allavega ég var á leiðinni að skila flestu í dag. Það var þá sem ég lenti í gróða. Skilafresturinn er ekki næstkomandi föstudag heldur föstudaginn þar á eftir
Nú fer ég bara í frí. Pakka kannski smá niður og hvíli mig svo með tærnar upp í loft.
Verð bara að muna að skila á réttum tíma
Svo gott að græða stundum
Vinir og fjölskylda | Þriðjudagur, 1. apríl 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ákvað að taka taka pásu frá náminu og segja ykkur smá frá Berlínarferðinni
Við fórum með rútu að þessu sinni. Alveg ný upplifun að geta bara sest upp í faratæki og þurfa svo ekki að spá meira í umferðina eða leiðina. Þokkalega þægilegt líka
Við snæddum morgunnverð á þýskum bjórgarði. Staður sem liggur um 2 km frá veginum og maður veit ekki af. Þarna stjórnuðu eldri hjón, (mamma og papa). Selja mat og brugga bjór svo e.h. sé nefnt. Voða þýskt og gaman að koma á svona gamaldags stað þar sem starfsfólkið veit varla hvernig á að afgreiða greiðslukort.
Ferðin til Berlínar gekk vel. Mér leiddist ekkert að vera ekki undir stýri Las bók og leysti suduko, voða dugleg. Hótelið sem við vorum á heitir Motel One og er nýlega tekið í notkun. Í byrjun mars ef ég man rétt. Þetta var fínt motel, naumhyggjan í algleymingi. Frekar fyndið á köflum. Set kannski inn myndir af herberginu og lobbyinu, þegar hægist um. Öllu var vel fyrir komið og plássið vel nýtt!!!
Í ferðinni fórum við í hröðustu lyftu í Evrópu. Hviss, bæng og við vorum komin 93 m upp í loftið! Hellur fyrir eyrun, þrátt fyrir þokkalegt gab Lofthrædda ég missi ekki jafnvægisskynið en hafði enga þörf fyrir að rölta upp á efri útsýnispallinn
Ég stóð mig líka vel þegar við fóru í útvarpsturninn og í um 207 m hæð snæddi ég minn mat í ró. Sat samt ekki við gluggann
Frábær kabarettsýning verður líka eftirminnileg. Stærsta Kabaretthús Evrópu sótt heim og OMG ég vissi ekki að maður gæti orðið svona skelkaður á einni kabarettsýningu En það var samt mest gaman
Sendiráð Dana var skoðað og fræðst um sögu þess að þetta samstarf norðurlandanna kom til. Fannst asnalegt að nota friðaðan stein í klæðningu á sendiráðið okkar. Eiginlega bara mjög asnalegt og mikið bull. Frekar að nota e.h. sem er meira táknrænt fyrir landið okkar. Já, þetta fannst mér. Mér fannst líka hallærislegt að Danska sendiráðið er klætt stáli að utan. Sé ekki tengingu þar og ekki gátum við fengið útskýringu sem var skotheld. En þetta var skemmtileg skoðunarferð og í Fælleshúsinu hlustuðum við á áhugaverðan fyrirlestur.
Þetta er bara svona stiklað á því sem gert var. Tíminn er ekki mikill þessa dagana til að bulla hér
Þetta var sem sagt alveg þrælfín ferð. Berlín er meiriháttar með allri sinni sögu.
Það að fara í ferð og þurfa bara að taka upp veskið þegar mann langar að kaupa e.h. í búð er líka bara OK
Vinir og fjölskylda | Mánudagur, 31. mars 2008 (breytt kl. 11:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Smá fréttir af okkur
Ferðin hingað gekk vel. Við þurftum ekki að gera annað en að setjast upp í rútu á réttum stað og réttum tíma. Engar pælingar í hvaða afleggjara ætti að fara út af o.s.fr. Hér er allt gert fyrir okkur og það eina sem við borgum er það sem rennur út af kortinu. Það er samt lítið. Í dag er mikið sem á að skoða m.a. danska sendiráðið. Í kvöld er svo revía og næs.
Læt þetta gott heita dagurinn er farinn í gang.
Vinir og fjölskylda | Föstudagur, 28. mars 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
í fyrstu ferðina hjá mér. Á morgunn eldsnemma hefst hún. Ég er tilbúin. Komin með kvef og hnerra hraustlega með reglulegu millibili. Já, þetta er alveg að gera sig
Prinsessan kom til Noregs í morgunn. Hélt frá höllinni um hádegi í gær í afar glæsilegri rútu og síðan sigldi hún héðan úr jólasnjónum á fínni ferju til Gautaborgar. Þaðan var ekið til Noregs í nótt.
Vona að það sé líka snjór í Noregi
Kveðja úr snjónum í SDB
Vinir og fjölskylda | Miðvikudagur, 26. mars 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Kom inn í salinn, valdi hjól. Það var bilað. Flutti mig að næsta hjóli. Fékk það ekki til að vera eins og ég vildi, þá kom þjálfarinn inn. Hún sagði eh um leið og hún gekk hjá. Eftir stóð ég í hvítlauksbrækju




Skellti mér svo í að útrétta í herbergi prinsessunnar. Hún var með sínum vinkonum í bænum og ég tók B.T. með til að bera. Í búð númer 2 sáum við hilluna sem hún hafði beðið um. Keyptum 4 í 2 lengdum. Í búð 3 fundum við bekk undir sjónvarpið og fötin. Nú vildi B.T. að ég hringdi í hana og bæri kaupin undir hana. Nei, nei, sagði ég, hún verður ánægð. Veit það hún er í vogarmerkinu. Hefði hún komið með í búðina hefði kannski verið SMÁ erfitt að ákveða sig. Tíminn er dýrmætur

Gat losað mig við skrifborðið og hilluna í dag á stað sem það var vel þegið til geymslu. Skápurinn verður sóttur um 5.30 í fyrramálið.
Nei, nei , bara grín

Niðurstaða dagsins:
Spinningið var ekki mikið verra en ég átti vona á.
Innkaupin gegnu betur en ég átti von á.
Ætla að prófa annan spinningþjálfa næst

Veðrið er ekki að gera sig.
Lifði af að fara á haugana og tæma kerruna en váááá... hvað það var kalt!!!
Ég vil gott veður.
Gleðilega páska!!!
Vinir og fjölskylda | Laugardagur, 22. mars 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nú er ég komin fram úr sjálfri mér og dönsku tímatali. Ég er sem sagt án klukku farin að vakna kl 6.30 hvort heldur er frí eða ei Sumartíminn skellur ekki á fyrr en um næstu helgi og þá verð ég í Berlín. Það er í sjálfu sér allt í lagi að vakna svona snemma alla daga ef ekki væri fyrir það, að ekki er svo mikið að gera svona snemma dags. Ræktin opnar ekki fyrr en kl 8 og 9 á svona spesíal dögum og aðrir íbúar hússins sofa svefni hinna réttlátu og ekki vert að vekja þau með hávaðanum í mér
Ég er sem sagt búin að vera að mæta í ræktina í fríinu. Alla daga, ójá!!!
Á Skírdag skellti ég mér með Stínu nabo í ræktina. Við náðum fínni sveiflu þarna og drengpjakkarnir hennar héldu þetta þokkalega út. Getur bara ekki verið gaman að þurfa að hanga svona fyrir atorkusama pjakka. Við bókuðum okkur í spinningtíma sem verður á eftir. Þar með er ég vonandi búin að brjóta þann múr. Vona bara að mér líki þjálfarinn. Er samt raunsæ og veit að ég verð að stilla kröfunum í hóf. Engin er sem Daggan sem nú er orðin Reykjanesbæingur.
Ef ekki væri fyrir það að Stína nabo ætlar með mér, væri ég búin að afpanta tímann. Ekki er veður þannig að ég færi í hjólatúr í staðinn. Hér geisar mikið vorhret á glugga (bílrúðum).
Framkvæmdir með herbergi prinsessunnar eru á lokastig. Hún er flutt inn en aðeins vantar að setja síðustu hönd á innstungur fyrir rafmagn og sjónvarp. Það kemst í lag í dag. Þá er einnig fyrir hugað að fara í smá innkaupa leiðangur og mubla upp hjá henni. Kröfurnar eru ekki stórar bara eina hillu Vona að við finnum hina einu sönnu hillu.
Heppnin var með mér í gær, ég fann húsnæði til að geyma skápinn, skrifborðið, hilluna og annað skrifborð. Hjúkket. Kem þessu vonandi frá mér seinni partinn. Þá er kannski von til þess að ég nái að laga til í stofunni, sem litið hefur út eins og Flóamarkaður með allt þetta dót/drasl sem fylgir svona framkvæmdum
Ég er komin með upp í kok nóg af húsaendurbótum Verst að eftir er að einangra herbergið hjá Ingunni Pingunni og alveg eins líklegt að það fái að bíða haustsins því nú fara útiverkefni að vera aðkallandi.
Never ending story....
Vinir og fjölskylda | Laugardagur, 22. mars 2008 (breytt kl. 07:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vaknaði í morgunn og langaði að snúa mér á hina hliðina, átti hana örugglega eftir. Slæm samviska kom mér fram úr. Allt var tilbúið fyrir átökin. Ég hafði munað eftir því að sækja æfingagallann út á grænu snúruna mína rétt áður en ég fór að sofa. Það þýðir að verknaðurinn fór fram í myrkri utan dyra og einnig hér innan dyra. Til hvers að vera að kveikja ljós þegar allt er komið í ró og maður veit hvar allt er? Raðaði mínum galla á stofuborðið, þá get ég hoppað í hann með lokuð augun þegar ég kem fram úr herberginu á morgnana. Liggur vel við minni leið inn í daginn. Í morgunn ætlaði ég bara að smella mér í gallann í morgunnskímunni, óþarfi að kveikja ljós. Þegar ég tek svarta NIKE bolinn heyrðist þvílíkur hávaði!!! Mér dauðbrá. Hljóp með bolinn út í dyr og hristi hann og snéri.(mundi ekki eftir svalahurðinni við hliðina á mér ) Það var bara of seint! Ferlíkið sem hafði geymt sig í bolnum mínum hafði sloppið út á leið minni í gegnum eldhúsið og nú hvein og söng í öllu þar. Þvílík risa ófreskja!!! Ég vopnaði BT með flugnaeitursbrúsa af stærstu gerð og nú átti ófreskjan ekki nokkra von. Hún lét í lægra haldi eftir mikla baráttu. Úðabrúsinn er tómur, ófreskjan dauð og ég hef tekið gleði mína á ný.
Allt er gott sem endar vel.
Finnst mér
Vinir og fjölskylda | Miðvikudagur, 19. mars 2008 (breytt kl. 09:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
. . . bera í skauti sér?
Ég veit hvað komið er, en ekki hvað verður. Ekki hvaða ákvarðanir ég tek og hvort þær verða réttar
Vaknaði kl 5.30. Það var ákvörðun gærdagsins. Ég var ekki að nenna á fætur og í ræktina. Draumur næturinnar um frjálst fall krónunnar í gær og undangegnar vikur var martröð líkastur og ég alveg búin á því. Í ræktina skrönglaðist ég þó. Það blundar enn þessi hugmynd innra með mér að sama hvað gengur á þá skal æft. Er bara í tímabili þar sem sú tilhugsun er ekki aðlaðandi
Er ekki enn búin að koma mér í spinning í ræktinni sem ég er í. Vááá... því líkt átak. Kannski er ég með "skipta um stað fælni"? Ekki getur þetta verið mér að kenna???
Ég þarf að fara að taka út hjólið mitt og þeysa á því um sveitavegi DK. Fíla það vel þegar ekki er rok og rigning. Þar sem mars er senn á enda með sín 5 veður á einum degi, ætti fátt að vera því til fyrirstöðu.
Dem... í sannleika vantar mig einhvern til að sparka mér af stað. Ég er svo ósvífin í þessu hreyfingaleysi mínu að ég reyni ekki gera neitt meira en fara í morgunntímana
Í dag ætla ég mér samt að mála, læra, taka á móti rafvirkjanum sem ætlar að setja ljós í ganginn og fleira þarft. Vona sannarlega að mér verði eh úr verki í dag. Ég er ekki mikill málari en nú bara verða hlutirnir að fara að klárast í herbergi prinsessunnar. Hún kemur heim í páskafrí á morgunn og ekki getur hún bara sofið hér og þar um húsið heilt páskafrí Þarf að losna við skáp, skrifborð og hillur úr lútaðri fur. Selst á sport prís, plís, help.
Einkasonurinn hringdi sæll og glaður í múttu sína í gærkvöldi. Bakpokinn var kominn og drengurinn þokkalega sáttur með val múttu sinnar Já, maður getur nú verið snilli á sumum sviðum.
Þegar ég var að kaupa bakpokana um daginn var ég kominn í þvílíkt stuð að fara stunda fjallgöngur aftur. Ekki samt á Íslandi, nei, nei, í Ölpunum. Var bara alvarlega að pæla í að slúffa afmælispartýinu í sumar á Íslandi og draga minn mann niður í Alpana og puða þar. Gott fyrir menn með svona slasáverka eins og hann. Bara éta meiri verkjatöflur Held samt að það verði ekkert af því í ár. Búin að fjárfesta í partýtjaldi til að hafa við bústaðinn og tjaldið meira að segja komið á Klakann. Humm... svo er líka smá asnalegt að eiga bústað og hafa aldrei notað hann
Ég er aldeilis sæl með grænu snúrustaurana mína, þeir eru enn á sínum stað og ég hef á þessum 10 dögum sem þeir hafa verið í eigu minni, geta þurrkað úti þrisvar sinnum. Stórkostlegt í mars í DK!
Er að bíða eftir að klukkan verði 9, þá ætla ég í búðina að kaupa speltbrauð. Verð að eiga eh fyrir rafvirkjann svo hann líði ekki út af næringarskorti Það yrði ekki stuð Já, ég á víst næstum aldrei brauð. Held ég verði líka að kaupa hundamat. Heyrist hundurinn vera að segja það.
En nú er best að halda af stað inn í daginn og vona að hann færi mér réttar ákvarðanir, réttar niðurstöður og vonandi fullmálaða hurðakarma og gólflista
Vinir og fjölskylda | Þriðjudagur, 18. mars 2008 (breytt kl. 07:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
-
Hulla Dan
-
Ía Jóhannsdóttir
-
Huld S. Ringsted
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Gudrún Hauksdótttir
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Maddý
-
Vilma Kristín
-
Anna Guðný
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Heiða Þórðar
-
Helga Magnúsdóttir
-
Aprílrós
-
Birna Guðmundsdóttir
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Sigga Hjólína
-
Kristín Einarsdóttir
-
Áslaug Sigurjónsdóttir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Sólskinsdrengurinn
-
Dana María Ólafsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson