Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
X-Faktor hér í DK.
Vinir og fjölskylda | Fimmtudagur, 13. mars 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mætti í ræktina í myrkri og góðu veðri, kom út úr ræktinni í birtu en hagléli svo bíllinn var fannbarinn bílstjóramegin. Fór heim, sendi fósturbarnið í skóla, smurði mér nesti og fór í skólann í sól og björtu skömmu síðar. Skellti mér til Þýskalands eftir skóla í skýjuðu veðri. Fór í mollið og keypti næstum bakpokabúðina Hélt heim á leið í ausandi vatnsveðri.
Þetta var veðrið í dag
Prinsessan er hálf farlama eftir eftir stífkrampasprautuna sem hún fékk á mánudaginn. Hún var sprautuð í öxlina aftan verða. Hún er stokkbólgin og í gær og fyrradag var henni óglatt Ingunn Pingunn fékk stífkrampa sprautu í handlegginn og það lagaðist fljótt og var aldrei svo slæmt að hún kvartaði við mig
Ég vil ekki svona sprautu
Á laugardaginn var hér fagurt vorveður. Ég skellti mér í A - Z og keypti fínar grænar útisnúrur. Seinna sama dag voru þær settar niður og þvottur hengdur út. Ummm... ilmandi útiþurrkaður þvottur. Konan ská á móti hafði fengið sömu hugmynd og keypt állitar snúrur. Þær voru líka settar niður og teknar í notkun strax.
Síðan á sunnudag hefur geisað hér rigning og éljagangur . . .
Í dag eru 4 ár síðan BT lenti í slysinu. Ótrúlegt hvernig það getur bæði verið stutt síðan og langt síðan
Vinir og fjölskylda | Miðvikudagur, 12. mars 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Er mikið að velta því fyrir mér þessa dagana hvernig ég get haft yfirsýn yfir ferðalög fjölskyldunnar nú í mars og apríl. Um er að ræða lengri og skemmri ferðalög. Sum ferðalögin vara fram í júní og lok júlí en þá eru önnur ferðalög tekin við hjá þeim er heim voru komnir.
Ég er að tala um 2 ferðir til Berlínar, 1 til Noregs, 1 til Suður Ameríku, 1 til Asíu, 1 til Afríku og 1 til Íslands + Íslandsferðir í sumarfríinu. Ég er svona með allar á hreinu nema þessa Berlínar ferð prinsessunnar. Vona að ferðin sé ekki þegar við BT erum í Afríku. Þetta er skólaferð en mér finnst betra að vita hvenær hún er farin, get bara ekki munað það... Þegar við erum í Berlín verður hún í Noregi. Þegar við förum til Afríku fara Baldi og Birna í sína 4 mánaða reisu til Asíu og Mið-Ameríku. Ingunn fer svo í sína Suður-Ameríku ferð þegar ég kem frá Íslandi í apríl, svo ég næ að kveðja hana. Við verðum síðan á Íslandi þegar Baldi og Birna enda sína ferð hér í DK í lok júlí. En hvar Berlínaferðin hjá prinsessunni er það bara man ég ekki
..og hvenær hún fer til Ameríku það vitum við ekki. Enn sem komið er sýnist mér að það sé alltaf einhver heima til að passa hundinn
Ég þarf líka að skipuleggja mig út af náminu. Þarf að vera með verkefnaskil viku á undan planinu svo það er nú eins gott að láta páskana ekki bara fara í súkkulaðiát og hjólatúra
Held að nú sé komin tími á að fara teikna smá eða gera plan?
Vinir og fjölskylda | Þriðjudagur, 11. mars 2008 (breytt kl. 17:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nú vona ég að sumarið komi með hraði!
Í vorfíling skellti ég mér út í garð og ákvað að greinastífa kirsuberjatréð. Fékk munnlegar leiðbeiningar, um það síðastliðið haust. Ekki var verkkvíða fyrir að fara né heldur áhyggjum af árangri. Eins skynsöm og ég er beið ég þar til BT var farin í hjólatúr til Jótlands. Það var á dagskrá hjá mér að þjálfa tvíhöfða og þríhöfða ásamt armlyftum. Fannst mér þessi garðvinna passa vel inni það plan. Kirsuberjatréð okkar er 8 ára. Þegar við plöntuðum því ásamt plómutrénu, voru þetta 2 væskilslegar spírur sem maður átti ekki von á að lifðu sambúðina með okkur. Annað kom á daginn og hafa þessar spírur nú tekið hamskiptum og eru að fylla bakgarðinn.
Þar sem við ætlum ekki að búa í frumskógi var sú ákvörðun tekið að setja Kirsuberjatréð í þá hæð að við gætum sett yfir það net og þannig komið í veg fyrir að fuglarnir stælu á einni nóttu allri uppskerunni og lægju svo dauðir hinum megin við hekkið. Munið þið?
Já, nú er ég búin að klippa og saga kirsuberjatréð okkar. Þetta var mikil æfing. Margir vöðvar sem þurfti að þjálfa.
Nú er tréð okkar tannstönglar....
Vinir og fjölskylda | Laugardagur, 8. mars 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Ó já.
Klukkan hringdi kl 5.30. Vá.. ég var ekki að nenna að vakna. Velti því fyrir mér hvort ég væri ekki örugglega veik enn. Áttaði mig á því þegar BT spurð hvort við værum að fara í ræktina að ég væri sennilega að lagast af þessum óþvera sem hefur truflað mig síðast liðna viku. Það var ekki til setunnar boðið og af stað fórum við. Mikið kom það sér vel að það voru fáir í ræktinni í dag. Hárið mitt hefur síkkað undanfarið og Rassálfagreiðslan því alveg einstök í morgunn Skil ekki hvernig stendur á því að ég fer svona út úr húsi og er slétt sama. Held að það tengist því að þetta er svo síðla nætur.
Ég var ógó góð í ræktinni. Þegar ég var komin upp í sal til að hita upp á víxlgöngutækinu var púlsinn komin í 145 Er að mana mig upp í að skrá mig í spinning þarna á morgunn. Verð að gera eh í þessu. Daggan mín flutt til Íslands, svo nú verð ég bara að sætta mig við hitt liðið
Maður getur víst ekki alltaf fengið það sem maður vill.
Smá annað:
Hjólatíska
Danskar "til og frá" hjólakonur eru margar dáldið flottar. Algengt er að sjá þær hjóla í kápu og hæla háum skóm, margar í stuttum pilsum. Þá sé ég að það færist í vöxt að vera í stíl við litin á hjólinu.
Til dæmis:
Fallega grænt hjól ( í mínum græna lit) þá er við hæfi að vera með stóran klút um hálsinn í sama lita tón.
Rautthjól og rauð kápa.
Blátt hjól og blá húfa ( engin með hjálm nema ég á raisernum)
Fór að taka eftir þessu eftir að ég sá hvíta stelpu CUBE montainbike hjólið með gull stöfunum.
Já, ég held ég verði að eignast þannig hjól. Ég á hvíta Nike úlpu, geðveika hvíta Puma skó og hvíta tösku. Þetta segir sig sjálft.
Bæ...
Farin að kaupa hvíta hjólið....
.
.
.
.
.
.
.
Nei, grín, trúðir þú þessu?
Auðvitað fer ég ekki að kaupa montain bike núna.
"Raiser seasonið" er að byrja. Bara um leið og ég treysti mér á bak töfraprikinu mínu dásamlega. Þarf aðeins að ná andanum betur eftir tvær flensur
Bæ í bili farin að . . .
hlakka til
he he he
Vinir og fjölskylda | Föstudagur, 7. mars 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég er gædd einstökum hæfileika. Ó, já...
Get án áreynslu gert mig að algeru viðundri
Atvikið sem ég ætla að segja ykkur frá gerðist í september 2000. Þá um sumarið hafði tíkin okkar eignast 7 hvolpa, 6 komust á legg og urðu hinir yndislegustu hundar. Við höfðum ekki gert ráð fyrir í okkar plönum að Lauga fengi svona marga hvolpa. Við höfðum planað að það kæmu 2 hvolpar og frændi minn sem hér bjó, átti að fá einn og nágranar okkar annan. Gott plan þarna. En þannig fór þetta ekki. Áður en hvolparnir voru fæddir hafði frændi minn ákveðið að flytja til Ísl. og það kostar morð og milljón að taka hund með sér heim og ekki kom til greina að leggja þetta böl á saklausan hvolp frá mér. Nágrannarnir tóku upp á þeim andskota að skilja og þar með var "Úthlutunar planið" oltið. Þegar krílin 6 mættu svo í þennan heim 1 og 2 maí þá voru góð ráð dýr. Hvert áttu þessir einstöku hvolpar að fara. Smátt og smátt fækkaði í hópnum. Snúlla flutti til Úllu, Skotta til Lottu ( rímið alger tilviljun, hvolparnir hétu þessum nöfnum, eigendurnir komu seinna) Týri til bróður hennar Grétu nabo. Bangsi flutti í Broager og Ósi hér upp á Jótland. Eftir var Snati og það var á hreinu, hér yrðu ekki 2 hundar.
Á þessum tíma var elsku tengdamamma mikið veik og lést í byrjun september. Þá héldum við heim til Íslands en Snata var en óráðstafað. Ég hafði sett auglýsingu í blað en hún kom viku of seint og birtist því þegar við vorum á Íslandi. Á Íslandi var nóg að snúast. Meðal annars þurfti ég að fara í blómabúð. Þetta var lítil búð en yfirfull af viðskiptavinum. Meðan ég beið eftir að röðin kæmi að mér, hringdi dk gemsinn og ég svaraði. Í símanum var kona sem reyndi að tala dönsku. Ég gat skilið á henni að hún hefði séð auglýsinguna um Snata og hún væri að leita sér að hundi. Ég svaraði konunni eftir því sem við átti á dönsku. Svo kom að því að blessuð konan gafst upp á að rembast við dönskuna og spurði hvort ég talaði ensku. Jú, ég gerði það og nú var ég farin að svara henni á ensku og svei mér ef fólkið fyrir framan mig leit ekki við. Nú héldu umræðurnar um þessi hundamál áfram á ensku.
Vá... þetta var varla að gera sig. Dem... af hverju svaraði ég í símann??? Ég var að far að kaupa blóm og kransa en ekki að selja hvolp.
Konan áttaði sig á því að hún væri að tala við aðila sem væntanlega væri með hvolp fyrir hana. Nú vildi hún bara fá að sjá hundinn. Takk, (Jón ToPP) það er ekki hægt sagði ég á minni snilldar ensku, ég er stödd á Íslandi. Nú heyrðist í konunni: TALAR ÞÚ ÍSLENSKU? Ég,(enn í blómabúðinni þar sem afgreiðsla lá nú niðri og allir fylgdust með þessu alþjóðlega samtali, fannst mér ) viðurkenndi að ég talaði íslensku (svona líka góða
)
Ó, já...
Af hverju svarar maður alltaf í símann þegar hann hringir; sama hvernig stendur á?
Blómabúðin er sem betur fer flutt síðan þetta var og ég held áfram að versla þar þegar ég kem til Ísl.
Núna reyni ég að nota skynsemina með það hvenær ég svara í símann en vá... sem ég gleymi því samt
Vinir og fjölskylda | Fimmtudagur, 6. mars 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
farið að snjóa hér hjá mér!!! Vissi að það hafði snjóað í Vejle, en að það færi að snjóa hér suður frá í vorveðrinu mínu, nei!!!
Rétt áðan skein sólin og gældi við páskaliljurnar mínar en núna . . .
Humm....
Er ekki að fíla svona vetrarhörku. Ég er sólskinsbarn og vil fá meiri sól
Vinir og fjölskylda | Þriðjudagur, 4. mars 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Alger snilld hér á ferðinni. Nú er ég að læra lagið, textann kann ég
Vinir og fjölskylda | Fimmtudagur, 21. febrúar 2008 (breytt kl. 08:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)


Billi: Hvað er að gerast?
Ég: Við erum að fara í ræktina.
Billi: Nei!!!
Ég: Ha?
Billi: Ég er ekki að fara.
Ég: Akkuru, akkuru?
Billi: Mér er illt i mjöðminni.
Nú lá ég og vissi ekki hvað ég átti að gera. Skiljanleg ástæða hjá honum. Auðvitað förum við ekki. Svo ég lá og lá smá meira, en ég var vakandi og svo fattaði ég það!!!
Mér var ekki illt í mjöðminni hans, svo ég gat farið! Yndislegt að vera svona skýr í morgunnsárið ;)
Ég hoppaði fram úr og skellti mér í æfingagallann sem er búin að liggja tilbúinn síðan síðasta spinningmaraþoninu lauk.
Ha? Langt síðan?
Já, kannski smá, en skilurrrru... hérna...
Sko, fyrst var ég að hvíla eftir þonið, svo varð Billi veikur og þá komumst við ekki. Svo var hann að jafna sig. Síðan varð ég lasinn og þurfti að jafna mig og þá fékk Billi magakveisu og þegar hann var orðin góður, þá fékk ég kveisu . . .

Það var gaman að koma í ræktina aftur eftir þessa fjarveru, enn nokkrir sem segja góðan daginn og brosa til mín. Gaman að því :) Þetta eru hetjur sem láta ekki koma sér úr jafnvægi þó kona með rassálfahárgreiðslu mæti þarna í morgunnsárið enda fer umrædd kona svífandi fín út úr ræktinni einum og hálfu tíma seinna.
Þetta vita þessar morgunnhetjur

Vinir og fjölskylda | Miðvikudagur, 20. febrúar 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
um óróann og óspektirnar á mis opinskán hátt hér í DK.
Má til með að setja hér inn link á bloggið hans Villy Søvndal í SL. Hann fær viðbrögð við því sem hann skrifar...
Vinir og fjölskylda | Miðvikudagur, 20. febrúar 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
-
Hulla Dan
-
Ía Jóhannsdóttir
-
Huld S. Ringsted
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Gudrún Hauksdótttir
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Maddý
-
Vilma Kristín
-
Anna Guðný
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Heiða Þórðar
-
Helga Magnúsdóttir
-
Aprílrós
-
Birna Guðmundsdóttir
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Sigga Hjólína
-
Kristín Einarsdóttir
-
Áslaug Sigurjónsdóttir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Sólskinsdrengurinn
-
Dana María Ólafsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson