Berlín

Ákvað að taka taka pásu frá náminu og segja ykkur smá frá Berlínarferðinni Wink

Við fórum með rútu að þessu sinni. Alveg ný upplifun að geta bara sest upp í faratæki og þurfa svo ekki að spá meira í umferðina eða leiðina. Þokkalega þægilegt líka Grin

Við snæddum morgunnverð á þýskum bjórgarði. Staður sem liggur um 2 km frá veginum og maður veit ekki af. Þarna stjórnuðu eldri hjón, (mamma og papa). Selja mat og brugga bjór svo e.h. sé nefnt. Voða þýskt og gaman að koma á svona gamaldags stað þar sem starfsfólkið veit varla hvernig á að afgreiða greiðslukort. Grin

Ferðin til Berlínar gekk vel. Mér leiddist ekkert að vera ekki undir stýri LoL Las bók og leysti suduko, voða dugleg. Hótelið sem við vorum á heitir Motel One og er nýlega tekið í notkun. Í byrjun mars ef ég man rétt. Þetta var fínt motel, naumhyggjan í algleymingi. Frekar fyndið á köflum. Set kannski inn myndir af herberginu og lobbyinu, þegar hægist um. Öllu var vel fyrir komið og plássið vel nýtt!!!

Í ferðinni fórum við í hröðustu lyftu í Evrópu. Hviss, bæng og við vorum komin 93 m upp í loftið! Hellur fyrir eyrun, þrátt fyrir þokkalegt gab Wink Lofthrædda ég missi ekki jafnvægisskynið en hafði enga þörf fyrir að rölta upp á efri útsýnispallinn Tounge Ég stóð mig líka vel þegar við fóru í útvarpsturninn og í um 207 m hæð snæddi ég minn mat í ró. Sat samt ekki við gluggann Whistling 

Frábær kabarettsýning verður líka eftirminnileg. Stærsta Kabaretthús Evrópu sótt heim og OMG ég vissi ekki að maður gæti orðið svona skelkaður á einni kabarettsýningu Blush En það var samt mest gaman LoL

Sendiráð Dana var skoðað og fræðst um sögu þess að þetta samstarf norðurlandanna kom til. Fannst asnalegt að nota friðaðan stein í klæðningu á sendiráðið okkar. Eiginlega bara mjög asnalegt og mikið bull. Frekar að nota e.h. sem er meira táknrænt fyrir landið okkar. Já, þetta fannst mér. Mér fannst líka hallærislegt að Danska sendiráðið er klætt stáli að utan. Sé ekki tengingu þar og ekki gátum við fengið útskýringu sem var skotheld. En þetta var skemmtileg skoðunarferð og í Fælleshúsinu hlustuðum við á áhugaverðan fyrirlestur.

Þetta er bara svona stiklað á því sem gert var. Tíminn er ekki mikill þessa dagana til að bulla hér Whistling 

Þetta var sem sagt alveg þrælfín ferð. Berlín er meiriháttar með allri sinni sögu. 
Það að fara í ferð og þurfa bara að taka upp veskið þegar mann langar að kaupa e.h. í búð er líka bara OK Joyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulla Dan

Frábært að þið skemmtið ykkur
Missið ekki af neinu hérna, það er allveg öruggt...

Forsæt god tur...

Hulla Dan, 31.3.2008 kl. 13:23

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Takk Hulla og góðar næturvaktir Eigum við ekki að finna tíma fyrir kaffihitting  áður en ég fer til Íslands? Þá get ég kvartað í mömmu ef þér er úr ætt skotið

Maður er milljandi fyndinn á köflum

Guðrún Þorleifs, 31.3.2008 kl. 18:56

3 Smámynd: Hulla Dan

Júhú... Hvenær ferðu til fóðrlandsins???

Ég á t.d frí mánudag, þriðjudag og föstudag í næstu viku

Hulla Dan, 1.4.2008 kl. 05:33

4 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Mér líst vel á föstudaginn. Fósturbarnið fer heim um 14.00 á föstudaginn svo það hentar fínt  Ísland er 15 apríl. Ætli það sé ekki í vikunni á eftir? Tek bara eina ferð í einu, en næ ekki að pakka upp á milli svo ég tek bara nýja tösku í kvöld og set sumarföt í hana og get svo tekið Berlínartöskuna þegar ég er til Íslands. Það ætti að passa fatalega  

Hlakka til

Guðrún Þorleifs, 1.4.2008 kl. 06:44

5 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Oh, mig hefur alltaf langað til Berlínar, veit ekki af hverju... mig langar bæði að sjá allt þetta menningarlega, en svo langar mig rosalega að sjá austurhluta Berlínar ..... kannski frá því að ég las Dýragarðsbörnin einhvern tímann þarna um árið.....

Lilja G. Bolladóttir, 1.4.2008 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband