Færsluflokkur: Bloggar
Hér ríkir mikill léttir. Já við erum öll léttari. Ekki af því að við höfum verið í megrun, nei nei sussum svei, ekkert þannig. Þarf ekki, við erum svo fín. Okkur er létt því loksins tókst bandaríska sendiráðinu í Köben að útbúa visaáritun fyrir Bryndísi, áður en startdagurinn rann út! Alveg ótrúlegt ferli, humm... eða kannski ekki ????
Nú er það ljóst að Bryndís kemst af stað í sina ævintýrareisu á föstudagsmorguninn. Hún þarf sem betur fer ekki að ferðast ein þrátt fyrir seinkun. Hann Daníel, sem við þekkjum ekki, fer líka á vegum STS til Chicaco ( hvernig er þetta skrifað? ) Þau verða samferða alla leið í terminal 1 CHC þar sem leiðir skilja, því hann er greinilega ekki að fara til Browning
Til að jafna okkur á brottför Bryndísar, ætlum við að eyða helginni í Köben hjá Balda og Birnu. Þau verða reyndar að vinna alla helgina en ... sóóóó????? Miðjubarnið hún Ingunn, verður bara að vera ein heima, passa hundinn og húsið og mæta í vinnu. Þannig er það þegar maður er miðjubarn. Kannski breytist það smá þegar hún verður eina barnið á heimilinu??? Þ.e.s. ef við verðum heima til að sinna henni???
Jú, jú ,við eigum efti að hafa það kósy, horfa á grínmyndir, borða popp og veltast um í notalegheitum í herberginu hennar Bryndísar, sem við ætlum að breyta í sjónvarpsherbergi á meðan hún er í US og A. Það eru auðveld heimatök við því nú eru í herberginu 3 sjónvörp , 1 dvd og fín hljómtæki. Sjónvarpssófinn fer þangað eftir helgi. Þá er planið að færa rúmið hennar Bryndísar, tímabundið, inn í tölvuherbergi. Skila Stínu Nabo rúminu hennar, já einmitt Palli minn, takk fyrir lánið þá fara grænu stólarnir 2 í stofuna ásamt stóra sófaborðinu. Þar verður bara kósy, ekkert sjónvarp. Gott að fá einn gest í einu og einn að taka á móti honum. Ekki pláss fyrir fleiri nema við stofuborðið
Já, mamma og þið hin, ég varaði ykkur við. Þetta er ruglblogg og þannig má það líka vera með gríni og alvöru blandað saman eftir uppskrift sem ekki verður látin af hendi svo glatt.
Getið nú. Hvað er grín og hvað er alvara.....
Farin. . .
að velta fyrir mér hversvegna hér er enginn gestagangur miðað við á hinni síðunni og þó er sama bullið oft birt á báðum stöðum
Bloggar | Miðvikudagur, 3. september 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Leit á stjörnuspánna mína hér á mbl.is og ákvað að hún væri skrifuð til mín
Ljón: Horfðu fram hjá smáatriðunum og sjáðu það sem skiptir máli. Þú hefur meiri stjórn yfir aðstæðum en þú gerir þér grein fyrir. Æfðu þig seinna í dag.
Tek þetta þannig að nú sé ég að ná stjórn á einhverju af því sem er að gerast í sendiráði USA í Köben, má ekki minna vera en baks mitt fari að skila árangri.
Mikið líður mér betur að hafa áttað mig á þessu. Um leið og prinsessan er send af stað til Tortryggnislandsins(vonandi á föstudaginn) þá ætla ég að eyða helginni með mínum ekta manni í Köben, kíkja á einkasoninn og tengdadótturina Ó já ekki væri leiðinlegra að finna eina frænku og kíkja á merka atburði Er vís með að hoppa af á heimleiðinni til að taka eina flugferð suður á bóginn og sjá hvort ég finn ekki fósturbarnið. Gæti verið að það sé að ganga upp líka Heyrði í snúllunni í vikunni í gegnum gemsa sem ekki var hennar eða mömmu hennar, bara e.h. númer í Tyrkjalandinu. Hún bíður alllavega spennt eftir að ég komi
Nú er best að snúa sér að náminu og bíða eftir tilkynningu frá sendiráðinu um að afskipti mín hafi komið Visamálinu á rétt ról
Pollróleg en kát, þökk sé stjörnuspánni sem ég vel að trúa í dag.
Munið við veljum okkur viðhorf
Bloggar | Miðvikudagur, 3. september 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
eru reglurnar þegar gefið er út visa á USA? Þurfa að líða 2 sólahringar frá því visað er gefið út þar til má fara?
Er bara alveg búin að fá nóg af því að koma svona umsókn í gegn. Vildi að prinsessan hefði valið sér annað land en tortryggna USAlandið Furðulegar reglur um dagsetningu upphafsdags dvalar og þær hafa valdið því að ekkert er að ganga upp. Finnst þetta eitt allsherjar bull!!!Gæti notað tíma minn í skemmtilegri hluti en að bíða klukkutíma í símanum eftir að fá samband við starfsmann í sendiráðinu, skrifa meil og ítreka með símtölumm, að ekki sé minnst á allt ferðalagið til Köben svo hægt sé að vera á staðnum til að sækja um þetta "merkilega" plagg
Er samt í smá æfingu, því ég er búin að hringja svo oft í Iceland Express og bíða þar í símanum til að fá svör sem ekki skila neinu enda er ég alveg búin að missa álítið á þessu fyrirtæki!!! En ég gef mig ekki og ætla að halda áfram uns ég fæ skrifleg svör frá þeim. Er nefnilega búin að senda þeim meil 4x vegna flugseinkanna í ágúst og svo virðist sem þeim þyki ekki ástæða til að svara!
Pollróleg
Bloggar | Þriðjudagur, 2. september 2008 (breytt kl. 19:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Loksins tókst prinsessunni að stofan blogg. Virtist sem vafrinn ætlaði að vinna gegn þessu góða framtaki en þrjóska ljónið sigraði Ef þið viljið fylgjast með Ameríkubrölti hennar þá er síðan hér
Ferðin til Köben í gær gekk vel, þrátt fyrir að, ég væri með ofnæmiskast ársins, ömurlega rigningu í kóngsins Köben og að ferðast væri í óþægilegum sætum DSB
Bíllinn minn er í Köben þessa dagana svo við vorum sóttar á lestarstöðina og ekið í sendiráðið US og A. Eftir góða stund í þeim húsakynnum hélt ég með prinsessunni og einkasyninum í miðbæinn þar sem vagninum var parkerað og haldið á veitingastað til að næra kroppinn og vökva. Síðan fór einkasonurinn í skólann og við mæðgurnar áttum fínan dag saman þrátt fyrir rigningu. Mæli samt ekki með því að vera máta föt og líta út eins og hundur dreginn af sundi. Humm... nema maður ætli ekki að kaupa neitt En eins og tryggir lesendur síðunnar vita, þá er nóg pláss í fataskápum ljónynjunnar
Þegar einkasonurinn og tengdadóttirin voru búin að troða í sína hausa náðist smá stund saman yfir kaffibolla áður en haldið var með höktandi lestinni heim. Vel frekar að keyra næst
Bloggar | Fimmtudagur, 28. ágúst 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Á föstudaginn gerðist hér stór viðburður, prinsessan fékk tilkynningu um að hún væri komin með fjölskyldu í USA, nánar tiltekið í Missouri. Meira fengum við ekki að vita þann daginn. Mikil spenna hljóp í fjölskylduna hér, því þessu til viðbótar kom dagsetning á brottför prinsessunnar!!! Daman yfirgefur danska grundu þriðjudaginn 2 september!
Þó svo þetta hafi staðið til síðan í janúar, þegar við gáfum grænt ljós á þessa hugmynd örverpisins, þá er það allt annað mál þegar komið er að svona atburði Nú þarf allt í einu að drífa í þessu og hinu m.a. að fara til Köben og sækja um visa áritun á vegabréfið. Prinsessan var nefnilega búin að sannfæra sjálfa sig og einnig okkur foreldrana um að úr því ekki væri komin fjölskylda í júlí þá færi hún ekki af stað. Henni fannst það ekki koma málinu við, að leitað er að fjölskyldu út ágúst. Eitt vissum við heldur ekki þar sem við lentum inni á vitlausum upplýsingafundi í vor, að ef ekki er komin fjölskylda í lok ágúst þá tekur gestafjölskylda á móti barninu/unglingnum uns fundin er fjölskylda, svona er þetta hjá STS samtökunum.
Já, nú er allt að gerast, klipping í gær, keypt ferðataska (er svona endurnýjunartímabil á ferðatöskum á þessu heimili, allt úr sér gengið eftir flughleðslur hingað og þangað) tekin mynd i visa umsóknina. Prinsessan sett inn í hvernig hún eldar uppáhalds matinn sinn, kjúkling með spínati, sætum kartöflum og fetaosti. Hún hefur jú verið í námi í höllinni og þvi ekkert stundað eldamennsku síðasta árið. Í dag er síðasta sprautan hjá doksa og kíkk í búðir eftir gjöf handa usa fjölskyldunni. Á morgunn er enginn miskunn, á fætur kl. 05.00 og með lestinni til Köben kl 06.57 og á Hovedbanegaard bíður einkasonurinn á mínum eðalvagni til að aka prinsessunni og múttunni hennar í usa sendiráðið. Verður nú líklega einhver upplifun þegar hún fer í gegnum öryggistékkið þar og sennilega bara gott að vera búin að prófa það, áður en kemur að usa flugstöðum. Hefur samt góða "reynslu" af öryggistékki úr Gyðingasafninu í Berlín
Á fimmtudaginn veður pizzakvöld með þeim vinkonum sem eru hér í SDB. Föstudagurinn er planaður í það sem þá vantar að gera, laugadagurinn götugrill. Sunnudag er annað kveðjupartý, nú fyrir íslensku vinkonur sem hér búa enn. Allt breytist. Ein danska vinkonan, herbergisfélaginn frá höllinni, er komin til Californiu sem high schoolnemi. Smitaðist af áhuga prinsessunnar og fékk leyfi til að vera hjá danskri ömmu sinni í usa. Amman er mjög ánægð með það og var alveg til í að taka prinsessuna líka. Mér fannst það nú sætt en full mikið
Ég er fegin að ég þurfti ekki að fara til Tyrklands í þessari viku, því nóg er nú að gera við undirbúninginn. Finnst þó slæmt að múttíin sem ég ætlaði með að heimsækja fósturbarnið er bara gufuð upp í augnablikinu og ég get hvergi grafið hana uppi Fósturbarnið inneignarlaust á gemsanum í Tyklandi og ekkert á netinu þessa dagana. Þetta á eftir að reddast því um leið og múttínin þarf á mér að halda, þá birtist hún eins og "Flösku-Dísa" forðum
Læt þetta gott heita að sinni, en vil þó segja ykkur að prinsessan ætlar að stofna bloggsíðu til að segja frá lífinu hjá nautgriparæktendum, lengst úti í sveit í Missourifylki í USA
Bloggar | Þriðjudagur, 26. ágúst 2008 (breytt kl. 06:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Til að tipla á því sem á daga hefur drifið í stuttu máli ákvað ég að setja inn myndablogg.
Alltaf gaman af myndum
Áður en sólahringur var liðinn höfðum við foreldrarnir sótt barnið okkar og sent það áfram.
það var að fá að þvo glugga!!!
Mig undraði þessi ósk, en skýringin var að í skólanum var hún látin þrífa eldhússkáp á meðan strákarnir fengu að því glugga. Að sjálfsögðu fékk hún þá ósk uppfyllta.
Nú eru hér krúttlegir taumar á öllum gluggum en þeir fá að vera aðeins lengur, bara sætt.
Bloggar | Föstudagur, 22. ágúst 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Finnst full ástæða til að kom því á framfæri að ég kom mér og mínum ekta manni heilum í vinnu og skóla í morgunn. Ekki skemmdi að bíllinn (eðalvagninn) kom líka óskaðaður úr þessum hildarleik sem för okkar var í morgunn!!!
Hjólreiðamenn, - konur og - börn þvældust hér um allra götur, löglega og ólöglega. Kvarta alls ekki yfir þeim sem virtu reglur en hinir.... Júdddddamííííííaaaaaaa.
Hvað gerir ökumaður sem er við gatnamót og hefur hjólreiðafólk sér á hægri og vinstri hönd, þar sem viðkomandi skyggja á umferðina um "Grindavíkurafleggjarann"???
Hvað gerir ökumaður sem bíður við Hringveginn eftir taka hægri beygju og hjólamenn, - konur og -börn ryðjast upp með hægri hliðinni hjá þér til að bíða við framenda bifreiðar þinnar til að fara beint yfir Hringveginn???
Hvað gerir ökumaður sem hefur gefið stefnuljós til hægri til að beygja af Hringveginum inn á Austurgötu þegar hjóladrengur staðsettur á Austurgötu á leið yfir Hringgötu tekur ekki eftir því að þú ætlar að beygja, hefur í höfði sér ákveðið að þú haldir beint áfram með þeim afleiðingum að drengstaulinn rétt sleppur við að hjóla inn í bílinn hjá þér???
Ég veit ekki hvað öðrum finnst um svona morgunnbyrjun en mér fannst hún stressandi og ég er á móti STRESSI!!!
Þá hef ég tjáð mig um þetta.
Slutt, sprutt
...en ef þið eruð ekki viss um viðbrögðin þá get ég sagt með sanni að ég tók þessu með óþolandi umburðarlyndi...
Bloggar | Þriðjudagur, 19. ágúst 2008 (breytt kl. 08:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Hér verður ekki færsla þar sem músin sveik og allt hvarf
Dem og ég sem ætlaði að segja ykkur frá því hve góð ég er.
Tíndi helminginn út úr fataskápunum hjá mér til að gefa þurfandi.
Ætlaði líka að segja ykkur hve mikil tómataræktandi ég er.
Hvarflar að einhverjum að ég hafi bara tæmt skápana til að fá pláss fyrir ný föt???
Vááá ... hvað manni getur sárnað svona viðhorf!!!
Bæææææ...
Farinn í bæinn að fata mig upp.
Eða hreinsa illgresi
Ætti ég kannski að horfa á leikinn
Æ, nei....
Þori það bara ekki, legg það ekki á líf mitt
Farin að gera góðverk
Á hverjum skyldi það bitna???????????????????????????????????
Bloggar | Laugardagur, 16. ágúst 2008 (breytt kl. 13:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
. . . fundin
Dró þetta spil hjá krúttmolanum henni Ellý. Hér er er hvatningin til að takast á við krúttkúludæmið mitt
7 stafir
Talan sjö tengist metnaði þínum og ekki síst áræðni og ákafa. Eiginleikar þínir til að kljást við erfiðleika eru öfundsverðir því þú býrð yfir kjarki og ástríðu sem flytja nánast fjöll.
Próf einhverskonar bíður þín. Hvort sem um atvinnuviðtal eða ökupróf er að ræða munt þú nýta kosti þína þér til framfara.
Þér er ráðlagt að standa föstum fótum í eigin vitund í vísdómi óvissunnar en þar munt þú finna frelsi til að skapa allt það sem þig vanhagar um.
Over and farin að leita svara
Úpps!!!!
Getur verið að þetta sé frekar ábending til mín um að hætta að flækjast á blogginu og snúa mér að Revit svo ég geti farið í lokaprófið fyrir jólin og að tað sem mig vanti sé húsið sem ég tarf að teikna?????
Over and farin að spá í sumarhús á landinu mínu .
...og hlusta á Gullbylgjuna mína
Bloggar | Þriðjudagur, 12. ágúst 2008 (breytt kl. 07:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
....... ....... ...... ....... ...... ..... .... ..... ..... ..........
Nákvæmlega!
Allt í rólegheitunum.
Lengsta sumarfríi mínu í áraraðir lokið.
Hið daglega líf með daglegum skyldum og óskyldum gjörðum tekið við.
Voða afslöppuð, löt hljómar svo neikvætt
Nenni að svo komnu máli alls ekki að segja í stuttu máli frá fríinu, yrði of langt . . .
Eitt get ég þessa þó sagt ykkur, viðurkennt
Úffffff...
Nú er ég hnöttótt
Værðarhlið ljónsins í mér náði yfirhöndinni og ég lifði hinu ljúfa lífi munaðarseggsins sem í mér býr ásamt skynsemishliðinni á mér, sem berst hverja stund fyrir sínu. Skynsemishliðin mín gafst upp og munaðarseggurinn í mér náði yfirhöndinni.
Nú eru framundan tímar heyrnarleysis þegar munaðarseggurinn í mér reynir að kveða sér hljóðs og komin tími á að hlusta betur eftir þessari litlu skynsemi sem ég á og reyna að rækta hana aftur upp og láta hana njóta sín með mér.
Fagurt plan
Bloggar | Mánudagur, 11. ágúst 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson