Að morgni dags

Finnst full ástæða til að kom því á framfæri að ég kom mér og mínum ekta manni heilum í vinnu og skóla í morgunn. Ekki skemmdi að bíllinn (eðalvagninn) kom líka óskaðaður úr þessum hildarleik sem för okkar var í morgunn!!!

Hjólreiðamenn, - konur og - börn þvældust hér um allra götur, löglega og ólöglega. Kvarta alls ekki yfir þeim sem virtu reglur en hinir.... Júdddddamííííííaaaaaaa.

Hvað gerir ökumaður sem er við gatnamót og hefur hjólreiðafólk sér á hægri og vinstri hönd, þar sem viðkomandi skyggja á umferðina um "Grindavíkurafleggjarann"???   Pinch

Hvað gerir ökumaður sem bíður við Hringveginn eftir taka hægri beygju og hjólamenn, - konur og -börn ryðjast upp með hægri hliðinni hjá þér til að bíða við framenda bifreiðar þinnar til að fara beint yfir Hringveginn???   Shocking

Hvað gerir ökumaður sem hefur gefið stefnuljós til hægri til að beygja af Hringveginum inn á Austurgötu þegar hjóladrengur staðsettur á Austurgötu á leið yfir Hringgötu tekur ekki eftir því að þú ætlar að beygja, hefur í höfði sér ákveðið að þú haldir beint áfram með þeim afleiðingum að drengstaulinn rétt sleppur við að hjóla inn í bílinn hjá þér???   Angry

Ég veit ekki hvað öðrum finnst um svona morgunnbyrjun en mér fannst hún stressandi og ég er á móti STRESSI!!!  Halo

Þá hef ég tjáð mig um þetta.

 

Slutt, sprutt

 

...en ef þið eruð ekki viss um viðbrögðin þá get ég sagt með sanni að ég tók þessu með óþolandi umburðarlyndi...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulla Dan

Ég er ekki týpan til að keyra í mikilli umferð á morgnana. Er bara svo svakalega hræddum að drepa einhvern óvart og get ekki hugsað þá hugsun til enda. Eða jú, er búin að hugsa hana til enda og það er svo hræðilegt að ég get ekki með nokkru móti talað um það.

Vona að þú eigir góðan dag og farir að senda Billmund á reihjóli í vinnuna.

Hulla Dan, 19.8.2008 kl. 08:34

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Best að kvita hér líka. Leiðist alveg hræðilega að blogga og fá ekkert kvitt Þoli ekki á hinu blogginu þar sem fleirri hundruð svífa um síðuna á dag án þess að kvitta. Hér er ekkert að gerast í heimsóknum eða skemmtilegheitum  Já, bara redda því eða hætta bullinu.BT verður settur á hjól þegar ég er búin að fara með þau í viðgerð. Hann á reyndar ekki að hjóla á nema einu, hitt ætla ég að nota. Vandamálið við að eiga hjól eins og ég, er að maðr þorir ekki að skilja það eftir að ótta við að því verði stolið. Ég nenni ekki að hjóla á "ömmuhjóli" er bara ekki ég  Afhverju heldur þú að þú drepir einhvern í umferðinni að morgni til, er ekki hættan alltaf til staðar??? Vona nú meira en annað að maður lendi ekki í slíkri ógæfu. Nú ertu búin að gera mig hrædda, þori ekki að keyra í skólann og heldur ekki að hjóla. OMG Hvað ertu búin að gera mér???

Guðrún Þorleifs, 19.8.2008 kl. 08:53

3 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Eg seigi nu bara PUHHAA, vildi ekki vera í umferðinni á þessum tíma.

Knus

Kristín Gunnarsdóttir, 19.8.2008 kl. 09:12

4 Smámynd: Hulla Dan

Ég er illgirniskvikindi... Það er ég  
Búin að skemma frænku mína..

Hulla Dan, 19.8.2008 kl. 14:05

5 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Hvernig stendur á því Hulla að mér finnst ekki örla á iðrun hjá þér, þrátt fyrir illvikið?

Guðrún Þorleifs, 19.8.2008 kl. 15:25

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ skvísur. ÉG er seint á ferð að vanda, komið kvöld hjá ykkur.  Ég er svo heppin að þurfa aldrei að keyra svona snemma dags   ég sá í sumar í Köben hvernig allt þetta hjólafólk þarf líka að komast áfram, úff, gæti þetta bara ekki.  Þú ert hress að vanda sé ég og dugleg líka.  Bestu kveðjur héðan úr blíðunni á Selfossi.   Stationary Bike  Stationary Bikeeru þetta ekki einu hættulausu hjólreiðarnar. ??

Ásdís Sigurðardóttir, 19.8.2008 kl. 16:30

7 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Ásdís mín á morgunn og hina vel ég leið með ljósum.  Hef nógan tíma ....og jú spinning er BEST!!!!

Guðrún Þorleifs, 19.8.2008 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband