Færsluflokkur: Lífstíll

Ég viðurkenni...

Ég viðurkenni hér með að ég hef í gær og í dag eytt miklum skóg í formi pappírs. Þykir það leitt (tímafrekt og leiðinlegt) og mun bæta þetta jarðrask með því að planta nýju tré á nýju ári ... ef ég man eftir því

 Er að prenta út lokaverkefnið og ég og prentskipanirnar erum ekki að vinna vel saman. Engin til að kenna á þennan fína nýja prentara.

RFM = reead the fok... manual Sick

Annars ótúrlega góð.

Fjárfesti kannski bara í jólaglögg ef ég kemst í búð fyrir lokun. Humm... eða er ég á móti því? Hvernig var þetta? æææææææææææææ

Over and  Halo LoL 


Gleðiríka aðventu

01 - 03  2008 095
 
Bláar aðventukveðjur á fyrsta sunnudegi í aðventu.
Þetta jólatré fann ég í Póllandi þegar ég var þar á ferð í lok janúar síðastliðin.

Í dag ætla ég að

segja ykkur frá nokkru sem skiptir máli.

Ég hef áður komið inn á það að mér finnst mestu skipta að fólkið mitt hafi það gott. Það er ekki að ástæðulausu að ég er meðvituð um það. 

Í dag ætla ég að segja ykkur frá einni ástæðunni. 

  

thf1.jpg Fyrir fimm árum eignaðist ég bróðurson. Fæðingin gekk vel og drengurinn fínn. En fljótlega kom þó í ljós að ekki var allt sem skyldi. Drengurinn blánaði allur upp og tóku læknarnir hann frá foreldrunum til frekari rannsóknar. Rannsóknin leiddi í ljós að guttinn var með alvarlegan hjartagalla. Lyfjagjöf til að eiga möguleika á að koma honum til Boston var nauðsynleg en engan vegin öruggt að hún virkaði. Sem betur fer virkaði hún.

Litli guttinn var skírður skemmri skírn strax þennan sama dag. Betra er að hafa nafn þegar langt er upp í ferð sem engin veit hvernig endar.

 

p58756_tn.jpgÍ Boston varð betur ljóst að hjartagallinn hans var mikill og sjaldgæfur. Aðgerðir til að bjarga lífi þessarar litlu hetju voru ekki umflúnar. Þökk sé gríðarlegri færni lækna og hjúkrunarliðsins þarna tókust þær vel, vonum framar. Litla hetjan sýndi þvílíka baráttulund og var svo duglegur í gegnum þetta allt.

Það var erfiður mánuður sem leið á meðan hetjan okkar barðist fyrir lífi sínu með frábærri hjálp. Þetta var aðventumánuðurinn og gleðin yfir þeim frábæra árangri sem þarna náðist, er nú hluti af minni aðventugleði. 

fusi_a_hvolfi.jpg

Þetta er ein af hetjunum mínum. Gutti sem með tilvist sinni minnir mann á hvað skiptir máli.

 


Hvort er leiðinlegra. . .

Hvort ætli sé leiðinlegra, að koma sér í form með "yfirvegaðri" skynsemi eða skella sér í fjörið og láta hugsanlegar afleiðingar lönd og leið Blush

Alveg að bilast á þessu. 

Langar í ræktina snemma í fyrramálið en er búin að lofa að æfa með einni eftir hádegið.  Á ég að fara x2 á morgunn eða bara x1? Pinch   ... og ég á bara einar æfingabuxur, þrátt fyrir allt. En hjólabuxur á ég, gæti notað þær. Væri svo smart í ræktina Whistling

Í gær var hringt, það var hann Gauti hjóla-, hlaupa- og söng snilli. Var að spyrja eftir mínum, láta hann vita af hjólaklúbbnum Geysi og hvort ég kæmi ekki líka.Úff... auðvitað langar mig en núna væri ég alger sleði fyrir þessa peyja. Þetta er samt geggjað skemmtileg áskorun. Koma sér í form og slást svo í hópinn með strákunum. Stína eru með? Dagga spinningþjálfinn minn hví fluttir þú frá mér Frown Hér eru bara þjálfarar sem tala skelfilegar málískur og anga af hvítlauk . . . og ég er ekki með fordóma.

Det skal mere fart på

Nei, finnst það ekki skemmtilegt, ekki vænlegt til árangurs í bili.

 Svo á morgunn þá fer ég x1 í ræktina en ef ég fer x2 segi ég ekki frá því Whistling

Er ekki betra að hafa þetta skemmtilegta.

I´m a WINNER Wizard


Helst í fréttum

Hér snjóaði ekki þrátt fyrir veðurspá um slíkt. Frétti ég af því að nokkur hvít korn hafi þó sést í og við Köbenhavn.
Þetta eru ákveðin vonbrigði því væntingar mínar voru þær að njóta hvítrar fannkomu með jólatónlist, jólasmákökum og lærdóm.

Ég er með hausinn fullan af allskonar ég "held skoðunum". Eruð þið þannig?

Ég held svo margt af því að. . .

Ég held að . . .

æææææææ nú man ég ekki neitt dæmi, en skítt veri með það. "Ég held" til dæmis að þið skiljið mig, alveg þangað til þið misskiljið mig og ég fatta það.

Eitt af nýlegu "ég held" dæmi mínu er frá því að úrslitin í forsetakosningunum voru ljós þarna í Ammríkuhreppi. Ég vissi að fólkið sem prinsessan er hjá fylgdi Mac Cain að málum. Það gerðu flestir í þessu litla sveitasamfélagi. Þetta er mjög trúað samfélag, liggur á svo kölluðu "biblíubelti". Fólkið fer oft í kirkju og biður borðbænir út um allt. Þegar útslitin lágu fyrir, spurði ég prinsessuna, hvernig tók fólkið niðurstöðunni. Fólkið, sagði hún, þau eru drukkin. Þá fattaði ég að ég hafði gert sama sem merki á milli þess að biðja borðbænir út um allt og þess að drekka ekki áfengi. Pinch
Annað "ég held" dæmi hjá mér er að "ég held" að ef ég man ekki eftir að hafa borðað eitthvað t.d. jólasmáköku eða súkkulaði mola, þá fitni ég ekki af því. Halo Whistling

Að öðru.

Á fimmtudaginn skellti ég mér í ræktina aftur eins og frægt er orðið.Í gær hringdi R á röltinu í mig og bauð mér í göngutúr út í skóg. Ég þakkaði það því langt er síðan síðast. Ég ók heim til R á röltinu og þaðan gengum við niður á strönd, með fram henni og á leiðinni heim gengum g_22_11_08.jpgvið í gegnum skóginn. Frábær ferð sem við nutum báðar. Við tölum alltaf svo mikið, erum báðar þokkalega ákveðnar í skoðunum og alls ekki alltaf sammála. Það gerir það að gönguhraðinn eykst stundum í snörpustu diskutionunum og skógurinn ómar.               Nei, nei . . . smá ýkjur en í tæpa tvo tíma gengum við.
Ég var vel klædd enda kalt. Þegar ég segi vel klædd þá á ég auðvitað við að ég hafi verið smart klædd. "Ég held" að það sé lykilforsenda fyrir góðum göngutúr. Til að vera vel klædd þennan dag sem aðra valdi ég íslenska hönnun. Má þar nefna: 66° húfu, 66° lúffur og Chintamani flíspeysu. Átti ekki íslenska úlpu, (álafossúlpan löngu búin) svo ég reddaði því með fallegri Nike úlpu sem mér áskotnaðist eitt sinn þegar ég hagaði mér betur en venjulega.
"Ég held" að það sé hollt fyrir ykkur að trúa ekki öllu sem hér hefur verið en sagt/ritað. Samt "held ég" að einhver taki mark á mér og trúi öllu eins og nýju neti.


Undarleg staðreynd . . .

Mér þykir það heldur ótrúleg staðreynd að einn af stjórnarandstöðuflokkunum er að sprunginn á limminu. Hélt að það væri auðveldara að halda saman flokki í stjórnarandstöðu en flokki í stjórn. 
Velti því fyrir mér hvort framapot sé skynseminni yfirsterkari þar?
Skil ekki hvernig "Framsóknarflokkurinn" getur horft framan í nokkurn mann og sagt að þeir vilji aðild að ESB. Framsóknarflokkurinn var í upphafi flokkur bænda og þykir mér hann nú kominn verulega langt frá uppruna sínum og áleitin er sú spurning hvort ekki beri að leggja flokkinn niður.
Hvað fólk sér í ESB aðild er mér fyrirmunað að skilja. Þeir dagar er við vorum í samningsaðstöðu um eitthvað eru liðnir. Við höfum nú engin tromp á hendi. Erum eins og "hóra í hafsnauð" (afsakið orðbragðið).
Mér finnst það glórulaust bull að ætla sér aðild að ESB. Þá erum við endanlega búin að vera sem sjálfstæð þjóð með dug og þor til erfiðra og stórra verka.  

 

 


Í gær og hinn og hinn og líka smá um að akstur og vín er ekkert grín . . .

Nú á alvaran að vera tekin við hjá mér, loka kaflinn í náminu, lokaverkefnið, formlega hafið. Ég er aftur á móti í léttri sveiflu, alltaf í jólaundirbúningsstuði, æfi og æfi og er því að verða búin með jólagjafakaup fyrir þessi jól. Það er auðvitað frábært því nú á ég að vera vinna í verkefninu.

Um helgina var ég í svaka stuði enda með einkasoninn og hans kærustu í heimsókn. Við brölluðum margt sniðugt. Sérstaklega í innkaupaferðinni í Flensborg. Ekki leiðinleg ferð Wink

Gærdaginn tók ég þokkalega snemma og var komin hér í mikla jarðaberjahlaups gerð um níuleitið f.h. Samhliða hræði ég í uppáhalds jólasmákökurnar og hafði að þessu sinni uppskriftina þrefalda. Við bökuðum úr helmingnum, einn hluta sendi ég með krökkunum til Köben svo þau gætu bakað sjálf. Fá kökulykt í húsið. Seinni partinn datt mér í hug að bjóða liðinu í bíltúr í hlöðubúð lengst úti á Kægnesi. Ingunn pingunn fékk að keyra. Þegar við vorum komin langleiðina sá ég bíl í klessu úti í skurði, bað Ingunni að stoppa og Balda að koma með mér að bílnum þar sem maður baksaði við að komast út úr bílnum. Ekki vildi hann neina hjálp né þurfti hann sjúkrabíl sagði hann. En mér þóttu ansi margar tómar bjórflöskur í og við bílinn til að láta þetta vera og hringdi á lögregluna. Á meðan hún var á leiðinni stakk karlinn af með bíl nr. tvö sem hann reyndi að stoppa, fyrsti bíllinn neitaði og bauð að hringja á lögreglu sem karlinn vildi alls ekki. Karlinn stakk af með ungum strákum. Kona sem bjó í húsi rétt við slysstaðinn sagðist vita hver maðurinn væri og ekki kæmi henni á óvart þó hann væri drukkinn. Löggan kom og ræddi við okkur og héldu svo heim til karls. Hvað úr því hefur komið veit ég ekki en "dem" ef hann sleppur við kæru! Löggan sagði að þar sem hann hefði sloppið heim gæti hann nú sagt að hann hefði verið svo sjokkeraður að hann hefði orðið að fá sér "einn". Ég verð að segja að það finnst mér ekki sniðugt. Finnst endilega að slíkt dugi ekki á Íslandi. Ég vona bara að þessi náungi fái það sem hann á skilið og helst að hann sé ekki á vegunum þar sem við hjólum og ökum. Burt með drukkna ökumenna af vegunum!

Nú þegar fara í hönd allir þessir "julefrokost" þá eykst hættan á að fólk aki undir áhrifum. Leggjum okkar af mörkum til að fá fólk ofan af því að aka undir áhrifum.

Akstur og vín er ekkert grín. 

Hér fyrir neðan er svo Bond myndin sem við horfðum á um helgina.

 


Delete - tölvupóstur - delete - ?

Einu sinni, áður en ég fór að blogga og reyndar eftir það, þá var ég að vinna á verulega sérstökum dönskum vinnustað. Mér fannst vinnan mín skemmtileg en það sem gerði þetta sérstakt var ýmislegt sem þarna gerðist og hefði að mínu mati aldrei átt að gerast.

Nú ætla ég að segja ykkur frá einu atriði í þessu vinnustaðaleikhúsi sem ég var þátttakandi í. 

Eitt föstudagskvöld hringir samstarfskona mín í mig. Ég varð hissa því það hafði hún aldrei gert áður og við höfðum verið saman í bústað með vinnuna okkar í undangegna þrjá daga.
Ég heyrði að hún var miður glöð og spurði hvað væri. Jú, sagði hún, ég er í vanda. Þannig er að maðurinn minn er mjög afbrýðisamur og þegar ég kom heim tók hann gemsann minn og sá að ég hafði verið að sms´ast á við gamlan kærasta. Hvað segir þú, sagði ég í forundran við þessa þriggja barna móður. Jú, sáðu Guðrún, eins og þú veist þá geta danskar konur verið mjög desperate og í smá ójafnvægi og ég hérna fór óvart að skrifast á við gamlan kærasta, einu sinni þegar ég var fúl út í manninn minn og svo þróaðist þetta í að senda sms og nú veit maðurinn minn um þessi sms en ekki um meilin, enda skrifaði ég þau í vinnunni. Hann er svo reiður við mig að hann fór og ég veit ekki hvort hann kemur til baka, en ég er hrædd um að ef hann kemur til baka þá vilji hann fá að sjá meilið mitt í vinnunni og þá verður fjandinn laus! Ég gat skilið það þó ég skildi ekki gjörðir hennar og því síður hvað þetta kæmi mér við. Hún kom mér nú fljótlega inn í hvernig þetta kæmi mér við. Hún vildi nefnilega biðja mig að fara næsta morgunn (laugardag) í vinnuna og eyða öllum meilunum hennar. Takk fyrir! Ég vissi ekki alveg hvað ég átti að segja, sá að hún átti ekki heiman gengt frá þremur börnum og átekinni rauðvínsflösku og þarna sagði ég já. Lofaði að gera þetta fyrir hana til að bjarga þremur börnum frá sundraðri fjölskyldu og fleiri hörmungum. Svo kvaddi hún mig, enda þurfti hún að klára sitt rauðvín. Ég sá 10 fréttirnar um kvöldið, þar var sagt frá morðingja sem gekk laus og fólk á svæðinu beðið um að hafa varann á sér. 

Næsta morgunn fór ég í vinnuna mína til að efna loforð gærkvöldsins við hina óhamingjusömu dönsku desperate þriggja barna móður. Þegar ég nálgaðist vinnustaðinn sló að mér óhug. Þarna var ég að væflast ein í risastórri, tómri byggingu að framkvæma delete aðgerð fyrir konu sem var í vanda sem ég hafði ekkert með að gera, vitandi af lausum morðingja á svæðinu og ævareiðum þýskum eiginmanni! Vá hvað ég áttaði mig allt í einu á áhættunni sem ég var í!!! Vinnustaðurinn var að auki í alræmdu gettohverfi. Það voru engin mörk fyrir hættunni sem ég var þarna að leggja á mig. Hrikalega var ég var hrædd!!! Þegar ég var komin inn á skrifstofu læsti ég að mér, ræsti tölvuna, sló inn öllum leyniorðum og eyddi þessum skelfilega pósti, flýtti mér út og komst heim án þess að verða Deleteað sjálfri.

Geri aldrei svona greiða aftur. Bara svo þið vitið það.

Fólk verður að bera ábyrgð á sínum tölvupósti sjálft, ég á nóg með mig Whistling Ætla kannski á þing því mig vantar vinnu eftir jól og er með tölvupóstasiðferði mitt á hreinu nú. Halo

Enter


Börn í neyð

Á sunnudaginn bankaði hér upp á, ung snót með söfnunarbauk, neyðarhjálp til barna í vanþróuðum löndum. Ég tók mig til og tæmdi úr smáauraskálinni í baukinn. Safnast drjúgt í hana þegar fáir taka strætó. Nú er skálin næstum tóm ef undan er skilið barmmerki og hárspenna.

Í morgunn fékk ég sms: mamma er til smá aur í strætó?  Nei, var svarið. Mér varð litið út, ausandi vatnsveður. Skömmu seinna kom annað sms: þetta er allt í lagi ég labba.

Í dag talaði ég svo við minn mann í síma, hann er langt í burtu núna. Sagði honum m.a. að barnið okkar hefði þurft að synda í vinnu í morgunn þar sem ég hafði gefið smáaurasafnið og ég þar með sett það í neyð. Sá hana fyrir mér holdvota og kalda. Æ, æ, æ sagði minn.

Áðan hringdi dóttirin: viltu sækja mig? Já sagði ég, rauk af stað í myrkrinu og rigningunni að sækja fórnarlamb morgunsins. Varstu ekki blaut í morgunn spurði hin áhyggjufulla móðir (ég), ég gaf alla smáaurana í neyðarsöfnun fyrir börn og setti þig þar með í neyð. Nei, nei, sagði þessi frábæra dóttir mín, þetta var æðislegur göngutúr. Hlustaði á góða tónlist og það var svo hlýtt!

Hvað var ég að hafa áhyggjur?

Asnalegt Blush


Er ekkert í fréttum???

Nú gekk mbl.is fram af mér eina ferðina enn í "ekki fréttaflutningi". Er þetta auglýsing fyrir þennan þyrlueiganda? Hálfvitagangur er þetta!
mbl.is Græna lúxusþyrlan til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband