Í dag ætla ég að

segja ykkur frá nokkru sem skiptir máli.

Ég hef áður komið inn á það að mér finnst mestu skipta að fólkið mitt hafi það gott. Það er ekki að ástæðulausu að ég er meðvituð um það. 

Í dag ætla ég að segja ykkur frá einni ástæðunni. 

  

thf1.jpg Fyrir fimm árum eignaðist ég bróðurson. Fæðingin gekk vel og drengurinn fínn. En fljótlega kom þó í ljós að ekki var allt sem skyldi. Drengurinn blánaði allur upp og tóku læknarnir hann frá foreldrunum til frekari rannsóknar. Rannsóknin leiddi í ljós að guttinn var með alvarlegan hjartagalla. Lyfjagjöf til að eiga möguleika á að koma honum til Boston var nauðsynleg en engan vegin öruggt að hún virkaði. Sem betur fer virkaði hún.

Litli guttinn var skírður skemmri skírn strax þennan sama dag. Betra er að hafa nafn þegar langt er upp í ferð sem engin veit hvernig endar.

 

p58756_tn.jpgÍ Boston varð betur ljóst að hjartagallinn hans var mikill og sjaldgæfur. Aðgerðir til að bjarga lífi þessarar litlu hetju voru ekki umflúnar. Þökk sé gríðarlegri færni lækna og hjúkrunarliðsins þarna tókust þær vel, vonum framar. Litla hetjan sýndi þvílíka baráttulund og var svo duglegur í gegnum þetta allt.

Það var erfiður mánuður sem leið á meðan hetjan okkar barðist fyrir lífi sínu með frábærri hjálp. Þetta var aðventumánuðurinn og gleðin yfir þeim frábæra árangri sem þarna náðist, er nú hluti af minni aðventugleði. 

fusi_a_hvolfi.jpg

Þetta er ein af hetjunum mínum. Gutti sem með tilvist sinni minnir mann á hvað skiptir máli.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já kraftaverkin gerast stundum.  Takk fyrir linkinn.  Flott hjá þér.

Ía Jóhannsdóttir, 27.11.2008 kl. 20:18

2 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Hvað er fallegra og heilbrigðara en að sjá svona lítinn gutta skoppast á trampolíni? Lífsgleði barnanna mættum við sko alveg taka okkur til fyrirmyndar.

Ég veit, og þú veist, að lífið er hverfult, en skyldu allir vita það??

Bestu kveðjur frá Lilju, í Breiðholtinu

Lilja G. Bolladóttir, 27.11.2008 kl. 20:59

3 Smámynd: Aprílrós

Gleðifréttir eru þær bestu fréttir sem við fáum, og já ég er sammála að gaman að sjá hetju sem barðist fyrir lífi sínu og ákvað að gefast ekki upp strax á fyrstu dögum lífs síns, og sjá hann svo nokkrum árum seinna hoppa og skoppa á trampólíni og allstaðar.

Gangi þér vel og knús á frænda þinn og þig að sjálfsögðu líka

Aprílrós, 28.11.2008 kl. 08:06

4 Smámynd: Dóra

 Já það er svo yndisleg hvað er hægt að gera til að bjarga og tæknin svo öflug í dag 

kærleikskveður hér frá Esbjerg Dóra

Dóra, 28.11.2008 kl. 08:14

5 Smámynd:

Takk fyrir fallega kraftaverkasögu - ég upplifði líka svona kraftaverk á Vökudeildinni á LSH, einmitt í aðdraganda jólanna fyrir 4 árum

, 28.11.2008 kl. 09:26

6 Smámynd: Sigríður B Svavarsdóttir

Kraftaverkin gerast þegar við trúum á þau. Ljós til þín Ljúfust

Sigríður B Svavarsdóttir, 28.11.2008 kl. 16:17

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

það er svo yndislegt að heyra svona sögur, lífsins sögur.

takk kæra jótlandskona !

Kærleikur til þín 

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.11.2008 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband