Ljón: Helstu nauðsynjar eru mjög persónulegt fyrirbæri. Þú hefur þörf fyrir vissa hluti, og keyptu þá án samviskubits þótt Jón granni þarfnist þeirra ekki.
Þetta er nú frekar skondin spá. Ég man bara ekki eftir neinu sem mig langar í eða vantar.
Í fyrra sumar keypti ég mér pavillion þegar hún kom á tilboð. Ekkert meira um það, nema. . . Þegar ég kom heim eftir Íslandsferðina þá var Hans granni komin með slíka í garðinn hjá sér. Bara græn í stíl við hans hús. Þetta fannst mér alveg frábært og óskaði honum til hamingju með nýju pavillonina. Já, Guðrún, sagði þessi elska, ég fékk mína á sama verði og þú þína. Þessi krúttmoli hafði þá orðið svona hrifin af minni en það tók hann svo langan tíma að ákveða sig, þannig að tilboðinu var lokið þegar hann hafði tekið ákvörðun. En svo fór hann af stað nú í vor og afraksturinn var pavillion sem kostaði það sama og mín. Held að okkur Hans granna vanti ekkert núna, nema gott veður og það kaupir maður ekki hér
Vinir og fjölskylda | Þriðjudagur, 29. apríl 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ég er þolinmóð.
Eins og fram kemur í blogginu hér á undan fikraði ég mig í gegnum flókinn símaleiðbeiningafrumskóg Simens og Mile. Það kom ekki fram þar að rétt áður en símtalinu lauk slitnaði samtalið!!! Hvað gerði ég? Beið eftir að afgreiðsluspurningasímaþjónustustúlkanfrásimensogmile hringdi! Hún gerði það og gladdi mig einstaklega með því að segja mér að viðgerðamaðurinn kæmi á milli 11 og 16 mánudaginn 5. maí. Einmitt, alveg snilld að geta ekki verið í skólanum því maður þarf að vera heima ef þvottavélaviðgerðarmaðurinnfrásimensogmile kemur Held ég semji við Hans og Grétu. Þau eru nánast alltaf heima og vita hverjir koma hingað svo þetta ætti ekki að trufla mikið
Meira af skemmtilegum fréttum. Þegar ég var á Ísl. bauðst ég til að hjálpa Stínu systir að undirbúa flutningana. Jebb, roð, roð, ég er svo góð
Hvað ég gerði?
Nú, ég fór inn í svefnherbergið hjá henni og tók niður svefnherbergisgardínurnar, fékk mömmu til að þvo þær og Mette til að smygla þeim til Dk. Núna eru þær hér í tölvuherberginu og lúkkið út á götu hefur batnað um rúmlega heilan helling.
Já, svona er ég hjálpsöm, gamall skáti og alltaf viðbúin
Það er alveg satt, hjálpa gömlu blindu fólki yfir götu hvort sem það vill eða ekki.
Vinir og fjölskylda | Þriðjudagur, 22. apríl 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Í nóvember sl. keypti ég mér nýja þvottavél. Fyrir átti ég 5 ára gamla vél sem sífellt hafði verið að svíkja lit. Þessi svik gerðu það að ég ákvað að snúa á þessa svikamillu og henti henni út á hauga! Fór og keypti nýja þvottavél. Að þessu sinni var keypt vél sem mig LANGAÐI í. Merkið og tegundin var í lagi. Enn... það er sennilega ekki nóg að fá það sem maður vill, því það er kannski ekki endilega eins og maður vill. Vélin mín nýja er þannig. Fullkomið merki, rétta tegundin en virkar bara ekki rétt. Ég fór í bullandi afneitun og svo í meðvirkni, en ekki lagaðist vélin. Nú hef ég ákveðið að horfast í augu við vandann og er nú í símanum að "tala" við þá Simens. Fyrst fékk ég númerið, hringdi. Var beðin um að velja 1 ef ég væri privatkúnni, 2 ef ég væri fyrirtæki. Mér fannst ég privat. Nú átti ég að velja 1,2,3,4 eða 5 etir því hvort ég væri með, eldavél, viftu, þurrkara, þvottavél o.s.fr. valdi þvottavél og þurrkara númerið. Þá þurfti ég að velja hvort þetta væri þvottavél eða þurrkari. Valdi þvottavél. Þá var ég beðin um að velja hvort ég vissi E númerið á vélinni minni. Valdi að vita það ekki. Þá þurfti ég að velja hvort þetta væri þetta eða hitt raftækið, valdi þvottavél. Hljóp fram í þvottahús til að lesa E númerið ef ég þyrfti að slá því inn. Tilbúin beið ég eftir næstu handleiðslu símanns. Nú fékk ég að vita að nú væri ég komin í þjónusturöð og að ég væri númer 10 í röðinni. Nú er ég númer 2 og búin að blogga
Over and out, best að vera tilbúin með E-númerið.
Skildu þeir geta gert við vélina????
Kemur í ljós af afmælinu hennar Birnu
En nú er ég NÚMER
Vinir og fjölskylda | Mánudagur, 21. apríl 2008 (breytt kl. 14:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Já, hér er fjör
Kannski ekki fjör eins og ég mundi velja ef ég ætti þess kost. Nei, þetta "fjör" er af öðrum toga. Byrjaði í gærkvöldi þegar ég drekkti Nokia símanum mínum í vatni sem ég vissi ekki að væri í bílnum hjá mér Skilst þannig: Ekki mér að kenna. Það sem gerðist var þetta: lokið á vatnsbrúsanum lokaðist ekki nógu þétt og lak því úr flöskunni í hólf milli framsætanna sem síminn minn lá. Það virkar ekki vel á svona síma. Ég reyndi að þurrka hann þegar heim kom. Prófaði að kveikja á honum og það var næstum í lagi meðan ég sló inn pin númer. Reyndi að svara smsum sem ég hafði fengið en þá var takkaborðið komið í rusl. Í stuttu máli simkortið læstist, mundi ekki hvar pukkóðinn var svo í morgunn stormaði ég í Teliabúðina til að láta opna kortið og eins til að kaupa hleðslutæki við síma sem ég fann um daginn þegar ég ryksugaði sófann og reif allar pullurnar úr. Sími þessi tíndist hér um jólinn og ekki heiglum hent að finna svona örsíma
Strákurinn í búðinni var hin liprasti í byrjun, opnaði simkortið og svo spurði ég hvort hann gæti séð hvort þessi örsími sonar míns væri læstur. Þá þarf að hlaða hann. það var ákveðið að hlaða hann meðan við skoðuðum símaáskriftirnar sem ég er með hjá þeim, 6 númer 4 í heimili
Ekki reyndist örsíminn nægilega hlaðinn þegar þessu var lokið og vildi nú þessi hjálpsami drengur opna símann og taka batteríið úr og ég veit ekki hvað. í símanum var simkort sonarinn og ekki fannst hjálpsamabúðardrengunum að það lægi nægilega vel í og fór hann nú að rífa og tæta í kortið. Ég bað hann að láta það vera síminn hefði virkað vel síðast þegar hann var hlaðinn. Já, en þetta á ekki að vera svona sagði hjálpsamibúðardrengurinn og hélt áfram að hrista og fikta í símanum þangað til að honum hafði tekist að brjóta eitt hak í simkortamóttakinu og nú komst ekkert simkort í símann. Hvað gerir þú nú spurði ég. Það veit ég ekki sagði hjálpsamibúðardrengurinn, það er ekkert víst að þessi sími hafi verið í lagi þegar þú komst með hann!!! Ég held þú verðir að láta gera við hann sagði ég. Ertu með kaupnótu spurði hjálpsamibúðarfokkingdrengurinn? Nei, vinur, sonur minn á þennan síma og eins og er þá er hann í Asíu. Já, ég get ekkert gert sagði þessi fokkingsauður. Síminn getur ekki hafa verið í lagi þegar þú komst!!!
Dönsk afgreiðslukurteisi í hnotskurn.
Það skemmtilega er að þessi &$%#"W#%/&#$#$ kemur oft á kaffihúsið hjá Ingunni Pingunni. . .
Ó, já. . .
Humm...
... og svo tíndi ég auðvitað simkortinu því enginn var síminn til að setja það í þegar ég rölti mér út úr þessari búð.
Spurning hvort það hefur lent inni í fóðrinu á töffarafrakkanum mínum, það er nefnilega gat á öðrum vasanum
Skildi ég komast til Íslands á eftir eða heldur fjörið áfram?
Framhald síðar
Vinir og fjölskylda | Þriðjudagur, 15. apríl 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ákvað að setja inn myndir frá síðasta ferðalagi. Er þannig að ná í "skottið" á mér Mikilvægt að fjölskylda og vinir geti nú fylgst með hvert öðru þegar svo margir eru á brölti út um allt
Ferðin til Marakó lá í gegnum Heathrow. Já, nákvæmlega!!! Terminal 5 var áfangastaður þegar komið var frá Hamborg. Það var skrítin tilfinning að hafa lesið um töskuvandamálin þarna og lenda svo sjálfur í vandamálinu!
Ég var þó heppnari en margir. Taskan fannst eftir um 2ja tíma leit.
Úti urðum við að bíða 1 tíma eftir hótelbus (hefðum átt að taka taxa).
Þannig fóru 3 dýrmætir tímar í ekkert, en planið var að skjótast inni borgina og berja hana aðeins augum.
Hótelherbergið í Lon og don var lítið enda átti bara rétt að sofa þar yfir blánóttina.
Við fórum snemma á fætur og nú tókum við taxa út á flugvöll. Vel gekk að tékka sig inn og flugið til Madríd fór fínt upp og fallega niður. Alltaf gott mál þegar þannig gengur. Í Madríd þurftum við að bíða í vélinni meðan þeir sem ekki ætluðu lengra yfirgáfu vélin. Þegar það lið var farið var okkur smalað í rútu og nú hófst rútuakstur um neðanjarðargöng Madrídarflugvallar. Var ekið með okkur í ótrúlega langan tíma um þessi göng og ranghala. Á einhvern leiðarenda komum við og þar var okkur hleypt út. Ekki var erfitt að finna út hvert við áttum að fara, því allt var sett upp í pottþétt kerfi sem virkaði. Við komumst svo í vélina sem flutti okkur til Tanger.
Á Tangerflugvelli beið okkar einkabílstjóri á Landkruser
Hann ók okkur á 5 stjörnu hótel og þar var nú þokkaleg aðstaða.
Rúmgott og bjart herbergi.
Góðar "svalir", yndislegur gróður og fínn hiti
Við skelltum okkur strax í göngutúr í góða veðrinu.
Byrjuðum í garðinum við hótelið.
Utan við garðinn var ströndin og seglskúta á ferð
Því lá leiðin niður á lystbátahöfnina, hvað annað?
Veður var þannig að ekki var vandamál að stúta einum köldum utan dyra





Maturinn var ekki neitt sem olli vonbrigðum frekar en annað þarna . . .
Netið var hægvirkt en við gátum kíkt á mbl.is.

Vinir og fjölskylda | Þriðjudagur, 8. apríl 2008 (breytt kl. 21:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
-
Hulla Dan
-
Ía Jóhannsdóttir
-
Huld S. Ringsted
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Gudrún Hauksdótttir
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Maddý
-
Vilma Kristín
-
Anna Guðný
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Heiða Þórðar
-
Helga Magnúsdóttir
-
Aprílrós
-
Birna Guðmundsdóttir
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Sigga Hjólína
-
Kristín Einarsdóttir
-
Áslaug Sigurjónsdóttir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Sólskinsdrengurinn
-
Dana María Ólafsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson