Færsluflokkur: Bloggar
Þá er fyrstu æfingavikunni lokið og best að fara yfir gang mála.
Svona leit þetta út:
9/4 23 km á léttu tempó
11/4 13 km létt með hjólahópnum mínum
11/4 39 km puð upp brekkur og hraði með Hjólaklúbbnum C hóp
13/4 34 km millihraði í byrjun, hratt í lokin. Æfði mig í að hanga í næsta hjóli fyrir framan.
14/4 17 km hratt tempó, æft að hanga aftan í næsta hjóli.
Samtals km í vikunni: 126 km
Þessi vika gekk ágætlega allt þar til ég lenti á kantsteini og endaði hjólatúr dagsins í hrúgu á gangstétt niður við strönd.
Nú fer hjólið í viðgerð og hnéin með pástur. Nýju fínu hjólabuxurnar verða sendar til álfkonunnar góðu sem mun sauma saman bæði götin á hnjánum.
Þetta var upplifun! Ég sem hafði verið að pæla í að hjóla á hlýrabol í góða veðrinu var þakklát skynsemi minni sem varð yfirsterkari og því var ég í langermapeysu Hafði eitthvað með það að gera að vinkona mín hafði nýlega tekið á móti tveimur hjólaslysum og haft á orði að það hefði verið ótrúlet hvað fólkið var krjálað þrátt fyrir góðan fatnað.
Þarf að spá betur í þetta. Ég var svo upptekinn við hanga í dekkinu hjá mínum manni að ég var of sein að uppgötva að innkeyrslan á hjólastíginn frá götunni sem við vorum á, var frekar mjó og ég lenti því á fullri ferð á kantsteininum við hliðina. Bæng!
Nú er ég reynslunni ríkari.
Á morgunn hefst svo ný æfingavika og ég tek bara hjólið hjá mínum manni og held áfram með planið
Bloggar | Sunnudagur, 15. apríl 2007 (breytt kl. 08:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þá er það komið á hreint. Mín að fara í sína fystu íþróttakeppni. Ekki seinna vænna að byrja ferilinn
Skráði mig í dag í hjólakeppni. Ákvað síðastliðið haust að ég ætlaði að vera með. Þá var ég nýbyrjuð að hjóla og fannst þetta bara snilldarhugmynd! Þessi hugmynd hefur svo hangið í mér þrátt fyrir þrálátt öklavesen. Nú viriðst mér loksins hafa tekist að fara hæfilega rólega af stað svo öklinn heldur enn.
Ég er því byrjuð að æfa fyrir þessa keppni og er fyrstu viku nú að ljúka. Búið að skrá sig í keppnina og borga Orðið voða alvörulegt. Ekki bara snakk og hugsun, komin framkvæmd!
Þetta er hjólakeppni sem heitir Tøseturen og fer fram í Köben 2. júní nk. Þar á að leggja að baki 112 km Skráðir þátttakendur voru þegar ég gáði síðast 5559 og er vonast eftir að um 7000 konur taki þátt í keppninni
Ég hef ákveðið að blogga hér um þetta æfingaferli mitt því ég veit aldrei hvað ég á að blogga um, allir svo gáfulegir hér sko... þessir sem les
Með því að bulla hér um undirbúning minn fyrir mína fyrstu íþróttakeppni er ég bara með eitthvað alveg annað en aðrir
Já, nú er hægt að láta sig hlakka til eða þannig...
Over and out
Bloggar | Föstudagur, 13. apríl 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ég er búin að átta mig á því að ég er mjög íhaldsöm á sumt eins og t.d. banka. Hafði nú aldrei velt því fyrir mér. En nú er svo komið að mér er þessi staðreynd ljós og ég get ekki stoppað breytingaferli bankanna.
Ég hafði frá unglingsárum átt reikning í Futti mig bara um útibú þegar ég flutti út á land.
Ég flyt til DK og held áfram viðskiptum mínum við
Svo gerist það að ég fer að fá reikningsyfirlit send frá Samhliða þessari breytingu hætti ég að fá sent dagatal hingað í útlandið! Pokkers!!! Þetta pirraði mig smá.
Síðan um áramót hafa svo komið einstaka bréf frá Nú gerist það, að ekki aðeins er ég hætt að fá dagatal, heldur má ég þakka fyrir að fá póstinn minn frá bankanum. Nú er póstnúmerið og heiti borgarinnar sem ég bý í horfið! Þetta fannst mér alls ekki frábært svo ég ákvað að hringja í bankann og biðja um að þetta yrði lagað. Ég hringdi í útibúsnúmerið og þegar svaraði þar eftir margar hringingar er það alókunnug rödd sem segir Kaupþing! Þar sem svo langur tími hafði liðið frá því ég sló símanúmerinu inn og svarað var, var ég alveg búin að gleyma þessu Kaupþingsdæmi og var bara að hringja í gamla bankann minn. Ég spurði konuna: hvað sagðir þú? Kaupþing sagði hún lítið glöð. Ó, já! Nú vildi ég vita meira, því ég kannaðist EKKERT við þessa rödd. Svo ég spyr er þetta á Hellu? Nei, sagði þessi lítið glaða, þetta er í Reykjavík. Þetta fannst mér fíflalegt og spyr hvort ekki sé hægt að hringja beint á Hellu, nei þú færð samband héðan. Takk fyrir Jón Topp!!! Bull er þetta. Á endanum komst ég í sambandi við bankann minn, en þvílíkt rugl.
Eftir á fór ég þó að hugsa að þetta símaþjónustudæmi Kaupþings og kanski annara fyrirtækja mætti setja upp þannig að í landshlutum með fá atvinnutækifæri væri það kjörið að vera með svona þjónustu fyrir hin ýmsu stórfyritki hér og úti í heimi.
Dæmi: Vestfirðirnir. Þar er allur kvótinn meira eða minna farinn, fyrirtæki að fara þaðan eða hafa aldrei komið þangað. Svona símaþjónusta væri alveg brilljant dæmi þar. Þá væri hægt að útbúa þetta þannig að viðkomandi sæti bara í hlýjunni heima hjá sér, þrátt fyrir vetrarhökur utan dyra. Svaraði í síma fyrir hin ýmsu stórfyrirtæki úti í hinum stóra heimi og gæfi svo samband við aðra álfu eða næsta hús. Brilljant. Ég á hugmyndina
Bloggar | Fimmtudagur, 12. apríl 2007 (breytt kl. 14:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um daginn keypti ég mér blað. Það er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi. Samt ætla ég að skrifa um það. Blaðið sem ég keypti heitir: PSYKOLOGI. Ástæða þess að ég keypti blaðið voru fyrirsagnirnar á forsíðu blaðsins. Mér fannst þær forvitnilegar og áhugaverðar. Skoðum þær:
1. 13 síðna efni: Samviskan bindur okkur saman. Humm... hlýtur að vera einhver speki þar á ferðinni
2. Fegurðarinngrip? Elskaðu þig og sparaðu peninga. Alltaf áhugavert að spara peninga
3. Hangtu á fótunum og fáðu nudd. Já, góðann daginn! Blóðið allt í hausnum eða hvað?
4. Gleymdu Janteloven! Trendy að vera elite. Úbbsa deisy, bylting í danskri hugsun???
5. Baðaðu þig glaða í Tyrkisk spa. Geðveikt spennandi eftir að hafa lesið um nudd og áhrif þess hér á blogginu ...og ekki komist til Tyrklands um páskana ( bara fara seinna )
6. Stjórnaðu hræðslu þinni með hryllingsmyndum. Já, einmitt eitthvað fyrir mig sem þori bara ekki að horfa á hryllingsmyndir. Greinilega eitthvað sem ég hef misst af...
7. Móðurhlutverkið er líka sásauki. Humm... líkamlegur??? Hverju er maður að missa af???
8. Viðtal við Isabella Miehe-Renard - Ég var hrædd um að verða afhjúpuð. Jæja, blessuð snótinn hvað ætli hún hafi gert af sér???
Eftir að hafa kíkt á þessar fyrirsagnir ákvað ég að það væri gott fyrir mig að eignast þetta blað og jafnvel lesa það. Sem sagt, svo gert og blaðið varð mitt. Einhverra hluta vegna lá blaðið í einhverja daga í fínum bunka hér heima. Kanski var það óttinn við að verða að fara að horfa á hryllingsmyndir til að ná stjórn á óttanum, sem hélt aftur af mér að fara að lesa blaðið eða óttin við að samviskan færi nú að binda mig við eitthvað fólk út í bæ. Hvað veit ég? Ég er bara svona næstum venjuleg manneskja sem skilur ekki allt.
Eftir að hafa átt blaðið ólesið í einhverja daga, ákvað ég að taka mig til og fara að lesa það. Komast að þessu með samviskuna, fegurðarinngripið, hanga á hvolfi dæmið og hvort ég gæti leyft mér að verða elite hér í DK.
Ég opnaði blaðið, hljóp á stultum yfir ritstjórapistilinn. Frá augu mín sáu að hann var leiðinlegur. Fletti yfir á næstu síðu og þar var "Kort nyt..." stóð nú ekkert um það á forsíðunni en þarna sá ég að Ólsen bróðinn, þessi sem drakk ( áfengi) er búin að gefa út bók um hvað hann var slæmur. Já, já. Þín þraut.
Svo var þarna auglýsing um Mediativan cd sem maður verður víst bara að eiga til að geta sofnað á kvöldin. Humm... vitlausa ég á ekki svona cd en sofna samt. Hvernig er hægt að vera svona sljór? Á næstu opnu hélt "Kort nýtt" áfram...
Bókakynnig: Sjáfsþroskun fyrir hina heilu manneskju - frá en til og. Greinilega mjög góð bók fyrir okkur frústereðu nútímaviðundrin sem ekki höfum stjórn á neinu. Þessi bók á að hjálp fólki að sleppa neikvæðum bindingum við fortíðina og framtíðina. Taka ábyrgð á eigin lífi ( er þetta ekki töff söluefni?) Í bókinni er líka að finna lausn á því hvernig maður nær því að vera heill, í jafnvægi og lífsglaður. Greinilega bók inn á hvert heimili! Svo var eitthvað bla bla bla... um mikilvægi hláturs og fl.
Svo kom viðtalið við Isabella. Hljóp yfir það, veit ekkert hver hún er og nenni ekki að setja mig inn í hennar vandamál. Bless við það. Fletti, fletti og aftur "Kort nýt" Þarna var kynntur cd um andlega lestarferð í tónum. Samblanda af allra þjóðatónlist. já, já. Þar fyrir neðan var manni sagt að stoppa og fara á námskeið til að finna út hvernig maður gæti þroskað hitt eða þetta í sér. Greinilega mikilvægt. Maður er bara ekki alveg með á nótunum...
Nú var komið að greininni: Hengdu þig til vellíðunar. Þarna voru á ferðinni gamlir hippar sem léku sér að því að hengja hvern annan upp í rjáfur og láta viðkomandi svo síga og rísa niður. Húsið mitt er ekki með næga lofthæð fyrir svona æfingar og hrædd er ég um að nágrönnum mínum hér í gullbrúðkaupshverfinu mundi bregða í brún og svelgjast á snafsi, ef ég léti minn ektamann hengja mig upp í reyniviðartréið mitt hér úti í garði. Sleppa þessu...
Svo kom aftur "Kort nýt" ( held það hafi alveg gleymst að kynna það á forsiðunni). Hér var fjallað um í 10 atriðum að passa upp á hugsanirnar. Verð að lesa það seinna...
Svo kom grein um Sögurúllettuna: við höldum drauginum frá hurðinni. Las það ekki, var ekki kynnt á forsíðunni. Les það kanski seinna þegar ég er búin með símaskránna.
Aftur kom "Kort nyt" Jæja, nú var það Wellness fyrir líkama og sál! Æi.. sorrý. þetta var ekki um Herbalife og því hafði ég ekki áhuga. Nú var komið að greininni um Samviskuna í heilanum. Verð að segja að þegar hér var komið sögu, var ég búin að lesa svo mikið í "Kort nýt" að ég nennti bara ekki að lesa þetta. Ég er sennilega samviskulaus. Þarf að skoða það nánar... seinna. Mitt í þessari samviskuumfjöllun rak ég augun í bókakynningu! Þarna var viðtal við unga blaðakonu sem átti kærasta sem lent hafði í slysi og fengið heilaskemmtir. Hún hafði ákveðið að vera áfram í sambandinu við hann þó hann væri breyttur maður. Já góðann daginn! Hver breytist ekki við slys? Gæti nú sjálf skrifað bók um það eða grein á tré. Smá reynsla á bakinu hér... En, aumingja stúlkan var þreytuleg á myndinni og á alla mína samúð. Án efa fín bók sem hún hefur sett þarna saman. Sennilega þarf ég bara að horfa á hryllingsmynd og lesa svo bókina... Greinina um gildi áhorfs á hryllingsmyndir geymi ég til betri tíma.
Ég var nú alveg að gefast upp á að fletta þessu fína blaði þegar ég kom að viðtali við Stig Ross. Mátti til með að lesa það og komst að því að þetta var bókakynning. Kappinn sem syngur svo vel hefur 48 tíma í sólahringnum segir hann og er búin að þróa nýja aðferð til að vera til. Held ég fari á bókasafnið og fái bókina lánaða. Hann segist hafa valið að vera til staðar, ekki fjarlægur. Kanski maður verði til frásagnar um þá tækni eftir lestur bókarinnar.
Nú nennti ég eiginlega alls ekki að lesa meira í þessu blaði en rak þá augun í fyrirsögnina að móðurhlutverkið væri sársaukafullt. Þetta var viðtal við kvennprest og móður. Hún hlýtur að vita um hvað hún er að tóna, les það kanski seinna. Rak nefnilega augun í aðra bók sem mig langar að lesa. Þú ert það sem þú hugsar - Hin nýja kenning um leiðina til árangus. Gæti verið áhugaverð lesnig. Skoða það.
Nú, svo sé ég hér, að ég þarf að lesa seinni hlutann af blaðinu, því þar er fjallað um nýtt hreyfikerfi. Held ég þurfi að skoða hvort það er eitthvað fyrir mig, því eftir að ég datt á hlaupabrettinu í okt. sl. þegar ég var að horfa á fallhlífastökkið, hef ég ekki getað notað hlaupaskóna mína, þó þeir séu ansi góðir...
Já, kanski á ég bara eftir að lesa allt blaðið? Held að ég hafi bara dittið og dottið í auglýsingarnar og stuttu pistlana...
Afhverju ætli það sé????
Fyrirsagnir - hvað???
Bloggar | Miðvikudagur, 11. apríl 2007 (breytt kl. 10:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skellti mér í nokkra daga með fjölskylduna til Berlínar.
Aldeilis frábær ferð.
Borgin er stórkostleg og stórmerkileg!
Ótrúleg saga og ótrúlegar andstæður sem mætast.
Fortíðin, nútíðin og framtíðin, allt samofið í stórkostlegri upplifun.
Staðfestingin á því að vilji og kjarkur geta breytt miklu sést alls staðar.
Mæli með Berlín
Ekki var hægt að fara til Berlínar án þess að koma við í dýragarðinum og heilsa upp á öll dýrin þar. Þau voru nú ansi afslöppuð greyin.
Ekkert stress á þeim
Aðalsjarmur dýragarðsins var samt litli Knutur, sem var til sýnis 2 tíma á dag. Ótrúlegur fjöldi fólks stóð í langri biðröð til að sjá litla krúttið.
Mæli með Berlín!
Bloggar | Mánudagur, 9. apríl 2007 (breytt kl. 11:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skellti mér um daginn út að hitta vorið við ströndina og skóginn.
Sólin skein og ferskur vindurinn blés af hafi. Skógurinn allur að lifna við.
Í dag ætla ég aftur í niður á strönd.
Ég er búin að bjóða manninum mínum og dætrum í hjólatúr í skóginn með kakó.
Ég ætla að sýna þeim þennan leynistað og leyfa þeim að undra sig á því hvernig í ósköpunum litla bleika skrúfjárnið lenti þarna...
Bloggar | Sunnudagur, 1. apríl 2007 (breytt kl. 08:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við fjölskyldan skelltum okkur á vortónleika í gærkvöldi. Eldri dóttirinn átti að koma þar fram. Til að fá þetta allt til að ganga upp með öðrum skyldum og áhugamálum tókst að mæta á tónleikana hálftíma of seint En betra er seint en ekki, það sannaðist í gærkvöldi. ( var að búa til þennan málshátt
)
Við komum þegar dóttlan var nýbúin að syngja með sínum hóp Svona getur það farið.
En heimurinn er stærri og þarna voru fleirri krakkar með hæfileika Þetta var þvílík upplifun sem þarna átti sér stað.
Þegar við komum voru 10 stelpur að syngja og þær voru alveg frábærar
Sungu 2 dönsk lög. Þjóðlegt.
Næst á eftir þeim var dúet fyrir kontrabassa. Þetta var alveg fræbært atriði. Þau spiluðu tvö lög af mikilli færni. Bæði spila þau í Strengjasveit hér í bæ og heyrði ég þau fyrst spila í vor er við fórum á 750 mínútu langa jazztónleika hér í bæ. Efnilegir krakkkar.
Svo kom röðin að tveimur stelpum og tveimur strákum, þau sungu 2 dönsk þjóðlög og og voru líka alveg frábær að hlusta á.
Næst á dagskrá var E mol sonata Brahms fyrir
Þarna voru á ferðinni 2 stelpur sem ekki réðust á garðinn þar sem hann var lægstur og skiluðu sínu verki með sóma !
Flott atriði og gaman að því

Hann hafði samt fengið leyfi til að vera með og það var bara frábært! Drengurinn settist þarna við flygilinn og frá honum streymdu þvílikir Bachtónar, slegnir af færni sem tæplega tvítugur drengur má vera stoltur af!!! Snilli

Ompa til du dør
Þetta var alveg þrælskemmtilegt atriði! Gasgríman á hljómborðsleikaranum var á sínum stað og kraftur í tónlistinni sem ekki minnkaði þegar á sviðið kom annar gasgrímuleikari til að halda tunnunni á meðan hinn gasarinn sló taktinn með kúbeini. Bara gaman að þessu!
Eftir hlé kom á sviðið piltur sem sagðist hafa ákveðið að æra salinn með trommuslætti í 3 mínútur og 41 sekúndu. Hann rölti þarna inn með björflösku í hendi og bindi um hálsinn. Létt kærulaus og á sínum hraði settist hann við trommusettið, lagði frá sér bjórinn, tók af sér bindið, setti i-pod heyrnartæki í eyrunn og appelsínugular heyrnarhlífar yfir. Svo hófst trommuslátturinn. Hann stóð við sitt drengurinn. Hann var alveg magnaður. Þvílík færni og kraftur sem þarna var í gangi!!!
Nú var röðin komin að
ungri stúlku sem söng Cavatina eftir Mozart. Gott hjá henni.
Eftir það atriði kom fram fjórar stelpur sem sungu lagið Girls, girls, girls í danskri þýðingu. Mér fannst frekar fyndið að heyra þetta á dönsku en stúlkurnar sungu af miklu öryggi og skiluðu sínu vel
Nú var röðin komin að því sem við komum til að heyra og sjá: dóttlunni og hennar hóp.
Þau týndust þarna fram á sviðið 2 bassar, 1 trommari 2 hljómborðsleikarar þar af önnur þeirra handleggsbrotin á hægri hönd, 1 gítarleikari og svo dótla sem setti sig við píanóið!
Þessi krakki! Ég vissi ekki að hún spilaði svona á píanó!
En þarna sat hún sjálfsöryggið uppmálað og spilaði af öryggi undir í laginu: Sådan en som os.
Hún var eins og vanur píanóleikari þegar hún veifaði salnum brosandi með sér til að klappa undir og um salin sveifluðust logandi ljós á kveikjurum. Hún hafði beðið 3 vinkonur um að kveikja á kveikjurum og sveifla í takt við lagið. Þetta smitaði salinn og stemminginn var alveg í botni
Þetta kom okkur skemmtilega á óvart. Samt hefði þetta ekki endilega þurft að gera það. Þegar hún var á fyrsta ári tók bekkurinn þátt í músikkeppni og þegar var raðað niður í hvað hver og einn átti að gera var hún fjarri góðu gamni og bekkjarfélagar hennar settu hana á trommurnar. Hún var ekki hress með það, hafði aldrei á trommukjuðum snert! En þegar kom að sjálfri keppninni sat hún keik við trommurnar, taldi taktinn og sló taktinn af þvílíku öryggi allt lagið í gegn!
Bekkurinn vann
Krakki, krakki!
En allt í allt voru þessir vortónleikar hin besta upplifun og frábært að upplifa hvað unga fólkið sem erfa mun þennan heim býr yfir miklum hæfileikum.
Bloggar | Föstudagur, 30. mars 2007 (breytt kl. 18:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég vildi bara láta ykkur vita að ég ætla að skreppa í bæinn.
Ég ætla að líta á heiminn.
Eftir blogglestur morgunnsins
geri ég fastlega ráð fyrir að sjá fullt af appelsínugulu allstaðar
Reikna með að að hitta og sjá mikið af jákvætt þenkjandi og glöðu fólki
sem ætlar að vera með í að gera þennan heim betri
Að sjálfsögðu fer ég á ástkæru hjólinu mínu
Síjú!
Bloggar | Miðvikudagur, 28. mars 2007 (breytt kl. 07:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Nú er hjólasísonið að byrja hér í DK. Þá er ég ekki að tala um venjulegar hjólreiðar. Nei, nei, nei!
Ég er að tala um raiserhjólatímabilið. Hér hjóla menn ekki á raiserum á veturnar, af og frá! Þá er montainbiketímabilið. Þetta er ég allt að læra...
Ég er sem sagt dottin inn í heljarinnar hjólaæfintýri hér í DK og sér ekki fyrir endan á fjörinu.
Þetta byrjaði allt sakleysislega eins og oft vill verða með breytingar í lífi manns Ég hafði um þriggja árabil baksað við að hlaupa. Mest hljóp ég úti í skógi. Villtist í byrjun oft en það gaf þá bara lengra hlaup. Svo kom að því að mér fannst framförin enginn og það var þá sem ég fór í spinning. Alger snilld!
Allann síðasta vetur spann ég og spann. Þetta var bara eitthvað fyrir mig og í lok spinningsísonsins í byrjun maí tók ég mitt eigið þriggja tíma einkaspinningmaraþon ( þekkti engan sem var nógu sprækur til að hjóla með mér ) Þegar sumarið var komið, nennti ég ekki að vera inni í sal og púla og fór því að hjóla smá á götuhjólinu en ekkert að ráði, var ekki mikið að fíla hjólið mitt.
Svo gerðust breytingarnar! Bæng!!! Við hjóninn féllum kylliflöt 4 ágúst síðastliðinn fyrir raiserhjólum Minn maður keypti nýlegt hjól og svo fórum við að hjóla. Til skiptis á raisernum og götuhjólinu hans. Geggjað fjör og við búin að búa hér í rúm 7 ár og fyrst að fatta þetta
Maður verður eiginlega að vera smá töffari þegar maður þeysist á þess háttar hjóli um hjólastíga landsins ;)
En áður en ég vissi af var ég orðin hamingjusamur eigandi míns eigins töfrapriks!
Já, það er varla hægt að kalla þetta tæki hjól. Alla vega er þá hjól og hjól bara ekki að sama! Ég fékk þetta líka glæsilega hjól, sérsmíðað fyrir mig af þýskum hjólaálfum. Því líkur draumur að hjóla á þessu hjóli! Ég kemst svo hratt á því að það kæmi mér ekki á óvart að löggan stoppaði mig einn daginn
Já, ég er byrjuð að hjóla og nú er málið að komast sem oftast út að hjóla
Svo ef þú kemur í heimsókn og ég er ekki heima þá er ég út að sigla eða hjóla
Bloggar | Þriðjudagur, 27. mars 2007 (breytt kl. 13:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í dag er ég í miklum siglingaham.
Hlakka rosalega til þess að sjósetja Perluna og láta hana bera mig út á hafið.
Sigla frá landi,
rugga á hægum öldunum,
með vind í seglum,
njóta kyrrðarinnar,
hlusta á þögninina,
njóta þess að vera í núinu,
sjá fegurðina,
synda í sjónum,
staldra við og
fyllast lotningu yfir meistaraverkinu
Bloggar | Mánudagur, 26. mars 2007 (breytt kl. 17:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
-
Hulla Dan
-
Ía Jóhannsdóttir
-
Huld S. Ringsted
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Gudrún Hauksdótttir
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Maddý
-
Vilma Kristín
-
Anna Guðný
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Heiða Þórðar
-
Helga Magnúsdóttir
-
Aprílrós
-
Birna Guðmundsdóttir
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Sigga Hjólína
-
Kristín Einarsdóttir
-
Áslaug Sigurjónsdóttir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Sólskinsdrengurinn
-
Dana María Ólafsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson