Færsluflokkur: Bloggar
Hér á moggablogginu er fjör. Mikið og fjölbreytt efni lítur dagsins ljós og skoðanir eru margar. Iðandi blogglíf Eitt finnst mér vera að gerast hér sem er nýtt, allavega fyrir mér, held samt að þetta sé "sögulegt"... Bloggvinakerfið hér er að valda því að moggabloggarar eru að safna sér saman um ýmis mál. Sameinast um að hafa áhrif, dæmi: þrýstingur moggabloggara á Landlæknisembættið og Lyfjaeftirlit að taka lyfið Flunitrazepam af lyfjaskrá. Nýjasta í þessu er að þrýsta á svör stjórnmálamanna um ákveðinn málaflokk. Þá þykir mér gaman að lesa hve hvetjandi og jákvæðir moggabloggarar eru við bloggvini sína, reyna í gegnum bloggið að hvetja, hrósa, hugga og uppörva.
Sagði einhver að bloggið væri bæra afþreyjingariðja án tilgangs???
Bloggar | Miðvikudagur, 21. mars 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvernig hefur ótti þinn við skoðanir annara hindrað þig í lífi þínu?
Hvað gætir þú gert ef þú óttaðist ekki skoðanir annara?
Góðar spurningar og krefjandi.
Getur maður gengið út frá því að ef maður vildi gera gagn í þessum heimi að helmingur fólks í kringum mann mundi meta það að verðleikum og hinn helmingurinn mundi líta niður á það sem þú gerir og dæma þig? Hvað svo sem tölfræðihlutfallinu líður þá er það staðreynd að þetta eru þeirra skoðanir og enginn þeirra getur í raun kallast sannleikur.
Þegar við leyfum öðru fólki að sjá hvað við getum þá myndar það sér skoðun á okkur. Undir það þurfum við að vera búin. ( t.d. við sem bloggum )
Fólk í kringum okkur er sjaldan svo eftirtektarsamt um aðra að það átti sig á öllu sem er að gerast hjá hverjum og einum. Það verður til þess að skoðanir viðkomandi eru byggðar á ófullkomnum grunni. Sumir munu vera jákvætt innstilltir og gera þig að meiru en þú ert, á meðan aðrir eru neikvæðir og gera minna úr þér en efni standa til. Það liggur sterkt í eðli manna að dæma aðra. Það virðist ekki liggja eins sterkt í eðli okkar að láta aðra vita af því sem vel er gert.
Hvað sem þessu líður þá finnst mér vert að hafa í huga að sá sem dæmir hart segir meira um sjálfan sig en þann sem hann dæmir. Hinir sem eru jákvæðir, eru líklegri til að þora að fara eftir sannfæringu sinni og trú.
Svo mín niðurstaða er sú að skoðanir annara á maður ekki að taka persónulega, en get ég látið það vera??? Getur þú það???
Bloggar | Mánudagur, 19. mars 2007 (breytt 20.3.2007 kl. 08:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)

Það fer ekki hjá því að vorið setji sinn svip á viðhorfin og panleggingarnar Vorið er frábær tími, allt að lifna úr vetrardvala. Í gær sá ég fyrstu laufin vera að springa út. Alveg frábært
Krókusarnir hafa fyrir nokkru sett litríkann svip sinn á umhverfið og fuglarnir eru glaðir með veðráttuna, það heyrist á gleðisöng þeirra
Brátt eru páskaliljurnar líka útsprungnar. Hér stendur fyrir dyrum að slá garðinn áður en í óefni fer...
Þetta þýðir m.a. að það styttist í siglingatímabilið hér. Úff, hvað ég hlakka til þegar við getum skellt okkur um borð í Perluna, lagt frá landi og haldið út á hafið í frelsið og kyrrðina sem fylgir því að sigla á seglskútu. Love it
Bloggar | Föstudagur, 16. mars 2007 (breytt kl. 13:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Í dag náði ég í meðmælin mín. Búin að draga þetta von úr viti því ég er ekki að fara að nota þau.
... Held ég
Þetta voru alveg rosa meðmæli og í kvöld þegar ég ætlaði að fara að sýna uppáhalds nágrönnum mínum herlegheitin á pappír, fann ég ekki umslagið Alveg dæmigert fyrir mig síðustu þrjú árin...
Nú, en uppáhalds nágrannakona mín hefur mikla trú á sínum manni og hún sagði við hann: "Af hverju labbar þú ekki um húsið og finnur umslagið?" Hann gerði það og viti menn!!! Hann kom með umslagið sem ég hafði lagt á fáranlegan stað, af minni (nú) alkunnu snilld!!!
Þarf ég að taka framm að maðurinn er íslendingur???
Bloggar | Þriðjudagur, 13. mars 2007 (breytt kl. 21:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Á deildinni sem hann pabbi minn er á, var maður sem var giftur en barnlaus. Þegar kom að því að konan hans þurfti líka á dvalarheimilisvist að halda, fékk hún ekki pláss þar sem hann var. Nei, hún fékk pláss í vesturbænum, hann var austast í austurbænum. Þau áttu engin börn til að berjast fyrir þeim. Konan var hressari en maðurinn, ef hún vildi heimsækja manninn sinn þurfti hún að hafa starfsmann með sér frá sínu hæli. Nú, er maðurinn dáinn, málið dautt???
Hrædd um að svona sé ekki einsdæmi...
Bloggar | Þriðjudagur, 13. mars 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrir um þremur árum fór hópur dana úr heilbrigðiskerfinu hér á Suður-Jótlandi til Íslands. Tilgangur ferðar þeirra var að kynna sér hvernig sjúkrahúsin á höfuðborgasvæðinu voru sameinuð og rekinn. Þagar danirnir komu til baka voru þeir fullir hrifningar og fannst þeir hafa lært mikið á þessari ferð. Ég veit ekkert um það, finnst sjúkrahús mál hér ekki spennandi.
Mér hefur dottið í hug undanfarna daga að hugsanlega gætu íslendingar lært af dönum í sambandi við aðbúnað eldri borgara. Þar eru danir svo langtum framar en íslendingar. Hér í DK er fólki ekki hrúgað inn á herbergi með með sér bráðókunnu fólki. Reynt er að gera fólki kleyft að vera sem lengst heima í eigin húsnæði og er öflugt net, heimilishjálpar, matarsendinga og hjúkrunar í gangi um hvern einstakling. Þegar fólk síðan þarf að dvalarheimilisvist að halda, fær það sérherbergi með smá aðstöðu. Hve langt ætli það sé í að við höfum þannig aðbúnað fyrir alla okkar eldri borgara sem þurfa á þessari þjónustu að halda???
Ég tek undir orð Hrefnu, aldraðrar vinkonu minnar þegar hún segir að hún sé á hæli, margir móðgast og reyna að leiðrétta mann. Segja ábúðarfullir: þetta er dvalarheimili En mér finnst þetta hælisvist fyrir marga og alger martröð að þurfa að heimsækja aðstandendur í þetta ástand!
Hvað er til ráða???
Bloggar | Mánudagur, 12. mars 2007 (breytt kl. 19:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vorið er komið hér í DK, bæði samkvæmt dagatali og veðri. Þetta þýðir m.a. að nú fer "raiserhjóla" tímabilið í gang. Trú þessu erum við búin að taka töfraprikin okkar út og byrjuð að hjóla. Reyndar svindluðum við og þjófstörtuðum tímabilinu milli jóla og nýárs, með því að taka 70 km hjólatúr á grennsuna ( þýsku landamærin). Við erum nú ekki íslendingar fyrir ekki neitt og eigum því erfitt með að aðlaga okkur að svona tímabilum En hjólafjörið er hafið hér hjá okkur! Við uppgötvuðum samt ekki þetta sport fyrr en eftir rúmlega sjö ára búsetu hér
Einni hefð höfum við reynt að fylgja hér í DK en það er stóra DGI helgin aðra helgina í mars. Þetta er alveg stórmerkileg helgi. Þannig er að danir hafa alveg rosalega sterka hefð fyrir leikfimi. Dætur okkar skelltu sér í leikfimi hér strax þegar við fluttum. Sú eldri er enn að. Þetta hefur þýtt að við höfum farið og horft á miklar leikfimisýningar hér þessa umræddu helgi árlega. Þetta er oft mjög flott og gaman að sjá hvað æska landsins er að gera. Í ár vorum við svo upptekin af nýja hjólaáhugamálinu okkar að við mættum ekki fyrr en seinni partinn í gær sunnudag til að horfa. Ætluðum bara að horfa dótturina og hennar hóp. Vegna seinkunnar voru að fara á gólfið, þegar við komum, hópur manna og kvenna. Já, það var voða gaman að sjá þau en algerlega óskiljanlegt fyrir mig að fatta að einhverjir karlar á aldrinum 30 til 75 ára séu tilbúnir að sýna eitt skref til hægri og eitt skerf til vinstri, arma upp arma niður o.s.fr. Gott hjá þeim, en ég er nú feginn að minn maður vill frekar hjóla Þegar kom að hóp dótturinnar var stoltið alveg að fara með mann! Krakkinn bara að standa sig svona flott. Já, hún er nú ekki íslendingur fyrir ekki neitt
Bloggar | Mánudagur, 12. mars 2007 (breytt kl. 10:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | Laugardagur, 10. mars 2007 (breytt kl. 15:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í gærkvöldi heyrði ég í litlu systur minni. Hún var að spá í að heimsækja pabba. Hún var bara ekki viss um það hvort hún treysti sér í heimsóknina.
Afhverju var hún ekki viss?
Ástæðan fyrir óvissu hennar eru aðstæðurnar sem pabbi þarf að búa við á öldrunardeildinni sem hann er á.
Skoðum aðeins málið.
Pabbi sem er 74 ára hefur síðan í október 2003 þurft að vera á hjúkrunar- og ummönnunarstofnunum. Hann getur hreyft augun og andað.
Í dag er staðan sú að hann þarf að deila herbergi með bláókunnugum manni. Mamma sem býr í eigin íbúð rétt við umönnunarstofnunina sem pabbi er á, fer til hans tvisvar á dag. Áður var pabbi á einbýli og þá var gott að geta komið og verið hjá honum í ró og næði. Sorgin sem fylgir svona veikindum er mikil og því gott fyrir fjölskylduna að hafa persónulegt afdrep. Þetta næði eða form fyrir "einkalíf" á stofnuninni er ekki lengur til staðar.
Nú er það ekki svo að við höfum neitt persónulega á móti þeim manni sem þarf að deila herbergi með pabba, hans staða er jafn slæm.
Í gær háttaði svo til að herbergisfélaginn var veikur, lá í rúminu og hóstaði út í eitt á milli þess sem hann kallar á dóttur sína. Það gerir hann á hverju kvöldi þegar búið er að setja hann upp í rúm. Það er sorglegt að þurfa að hlusta á þetta og enn erfiðara er það þegar maður situr hjá pabba og langar að eiga góða stund hjá honum. Sú stund er trufluð af svona ytri aðstæðum sem ekki eru boðlegar neinum. Þegar við bætist að blessað starfsfólkið á deildinni er meira en minna af erlendum uppruna og íslensku kunnátta þess misgóð, þá finnst mér stundum eins og ég sé komin í algerann bullheim þegar ég kem þarna.
Dæmi: herbergisfélaginn liggur í rúminu sínu og kallar á dóttur sína: STÍNA, þá kemur indæla útlenska konan og klappar honum á vangann og segir: nei nei Jón minn, þú getur ekki fengið síma.
Eða gamli maðurinn sem gekk að einni starfskonunni og spurði: Skilur þú mig? Já, sagði konan sem var eini íslendingurinn á vaktinni. Getur þú tekið mig með til Íslands, spurði gamli maðurinn. Er von að hann spyrji?
Eru þetta ásættanlegar aðstæður fyrir fólkið okkar?
Getur þú hugsað þér að lenda í svona aðstæðum?
Hvað er til ráða?
Bloggar | Fimmtudagur, 8. mars 2007 (breytt 10.3.2007 kl. 18:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)







Bloggar | Mánudagur, 5. mars 2007 (breytt kl. 15:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
-
Hulla Dan
-
Ía Jóhannsdóttir
-
Huld S. Ringsted
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Gudrún Hauksdótttir
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Maddý
-
Vilma Kristín
-
Anna Guðný
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Heiða Þórðar
-
Helga Magnúsdóttir
-
Aprílrós
-
Birna Guðmundsdóttir
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Sigga Hjólína
-
Kristín Einarsdóttir
-
Áslaug Sigurjónsdóttir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Sólskinsdrengurinn
-
Dana María Ólafsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson