Færsluflokkur: Bloggar
Skellti mér í skemmtiferð í dag. Til Flensborgar. Með múttu krúttu og litlu prinsessunni minni. Geggjað góð ferð!!! Engin RIGNING Flippaði i skóbúinni í Gallery. Ekki leiðinlegt Tókum svo skemmtilega yfirferð um svæðið og svei mér þá... já!!!
Einmitt
Hitti bloggavin minn.
(svo mikið í tísku)
Smá ýkjur?
Kannski...
En... það voru samt 2 Búddalíkneski út á göngugötunni.
Ég meina...
Er það ekki í sama mund og Guðmund???
Over and out
Kveðja frá þessari sem er búin að tína rólega lífinu sínu og finnst það ekki leiðinlegt
Humm... er það fíkn að vilja fjör
Bloggar | Fimmtudagur, 5. júlí 2007 (breytt kl. 19:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það er ekkert smá mál að vera foreldri barns sem líkur stúdentsprófi hér í DK. Danir eru með svo mikið af skemmtilegum hefðum í kringum þetta.
Þar sem mér finnst mikilvægt að þeir sem flytja til einhvers lands og búa þar, tileinki sér siði og menningu viðkomandi lands þá hef ég reynt að fara eftir því.
Þess vegna var stór hluti fjölskyldunnar saman komin á Statsskolen mánudagsmorguninn 25 júní kl 9.30. Þar mættum við með freyðivín og rósir, tilbúin að taka á móti Ingunni Fjólu er hún kæmi út úr síðasta prófinu, munnlegri spænsku
Beðið eftir stúdentinum
Svo kom hin nýbakaði stúdent og þá hófst nú hið danska ritual fyrir alvöru !
Ákveðið hafði verið að það yrði bróðirinn sem setti húfuna systir sína.
Fyrst þurfti hann að fjarlægja hvíta kóverið af sinni húfu
Enn vantar myndir af þessu, þar sem Baldvin var aðalmyndatökumaðurinn og græjurnar hans svo bilað fullkomnar að ég get ekki opnað hans myndir...
Ingunn Fjóla með húfuna.
Þessi húfa er svo allt öðruvísi en húfan hans Baldvins.
Þessi húfa gerir ráð fyrir því að stúdentinn djammi hraustlega að loknum prófum og minnist þess með ýmsum merkingum í húfuna.
Að auki er nafnið hennar saumað í húfuna, á giltu hnöppunum sem halda svarta bandinu fyrir ofna derið er annars vegar útskriftar árið upphleypt og hinsvegar bekkurinn hennar 3 - B.
Svarta bandið er í teygjuformi og ætlað til að setja undir höku þegar stúdentinn er í þannig stuði að húfan gæti ella dottið af.
Þegar við höfðum skálað við Ingunni Héldum við til okkar verka og hún varð eftir til að taka á móti sínum vinum sem voru að klára. Síðan tók við allsherjar djamm og sáum við lítið til hennar eftir þetta og er svo enn. Hún leit þó við með bekknum síðast liðinn fimmtudag þegar bekkurinn ók á milli heimila bekkjarfélaganna og þáði veitingar.
Þær voru hér snemma morgunshressar og kátar.
Þeim var boðið upp á ávexti og gos
Hér er bekkurinn einungis 1 strákur í bekknum.
Þetta var skemmtilegur bekkur og hér eru á ferðinni krakkar sem hafa markmið.
Þetta er mikill tónlistarbekkur og eru stelpurnar margar hverjar afburða söngkonur, spila á hljóðfæri o.s.v. Stráksinn er meira í pólitíkinni. Greyið er formaður ungra sósíallista á Suður-Jótlandi.
Eitt var líka áberandi með þennan bekk og það er hve jafnhá þau eru
Á föstudagsmorgunn kl. 10 var svo stóra stundin, sjálf útskriftin úr skólanum. Við mættum þar og áttum ekki von á neinu sérstöku. Eiginlega sá ég eftir að hafa ekki fengið mér kaffi áður en ég fór svo ég mundi ekki verða mér til skammar og dotta.
Enn...
Þessi útskrift var svo skemmtielg að við hefðum verið til í að borga okkur inn á hana!
Ferlega sem Danir geta gert leiðinlegar athafnir skemmtilegar!
Man þegar Baldvin útskrifaðist úr Fjölbraut í Breiðholti.
Voða þurrt og snautt. Hátíðlegt kannski en ekki gaman.
Það sem geri athöfnina svo skemmtilega var að 5 manns úr Sinfóníuhljómsveit Suður-Jótlands spiluðu á blásturhljóðfæri á milli ræðuhalda, sem voru í hófi og fjöldasöngs.
Þessi hópur var svo frábær í alla staði. Kom einu sinni spilandi inn í salinn úr tveimur áttum, spiluðu lag sem þau útsettu eftir löndum og svo margt annað skemmtilegt og toppuðu svo með vísindalegum fyrirlestri um uppbyggingu blásturshljóðfæra og til að undirstrika uppbygginguna enduðu þau á að spila á mislöng rör með trekt og munnstykki. Ferlega flott og skemmtilegt atriði, líka stutti vísindalegi fyrirlesturinn
Engar myndir frá þessu.
Svo fórum við heim að undirbúa stúdentaveisluna sem haldin var um kvöldið.
Ingunn Fjóla fór niður í bæ...
Hringdi í hana 45 mín fyrir veislu og spurði hvort hún hefði tíma til að mæta
Hún var þá á heimleið þessi elska.
Varðandi veisluna þá hafði sú hugmynd verið að hafa fjörið úti í garði.
Veðrið var svo ekki með okkur svo ákveðið var að vera með þetta í tjaldi sem við eigum hlut í með nágrönnum okkar.
Veðrið var heldur ekki hliðholt okkur þar, of kalt. Lokaniðurstaðan var að þetta yrði hér í stofunni og var stofan tæmd og borð borin inn
Ég hafi planað að vera með grill þar sem hver grillaði fyrir sig.
Það er svo gott að skipuleggja hlutina í tíma svo maður viti hvernig allt á að vera.
Þetta var ég búin að dunda mér við í rólega lífinu mínu.
Enn...
þá hvarf rólega lífið mitt sem dögg fyrir sólu!
Það gerðist á fimmtudeginum 21. júní í vikunni á undan.
Ég fann allt í einu vinnu sem mig langaði bara að fá og 1, 2, 3,
ég var komin í vinnu strax á mánudeginum 25 júní!
Þennan sama fimmtudag var HRINGT og spurt eftir Billa, ég fékk símanúmeið og nafnið og Billi hringdi strax að loknum sínum vinnudegi.
Góðan daginn!
Það var verið að bjóða honum vinnu HÉR í Sönderborg!
Vúbbiddí búbb...
Hann er búin að segja upp í Tinglev og ráða sig í Sönderborg!
Já..
og mitt í þessu fjöri var svo útskriftin og gestirnir frá Íslandi
Já og eins og þið sjáið af þessu varð ekki mikill tími til að dunda sér við að útbúa grillmat.
Þetta sá minn maður og kom með tillögu ársins: kaupa tilbúið vildisvin með sósu og rjóma kartöflum.
Umm...
Besti matur í heimi og var þetta samþykkt!
Ég þurfti bara að gera 2 salöt og dekka upp borðin og svona smá tutl
Æðislega góður matur og nóg var af honum...
Við fengum marga góða gesti bæði fjölskyldu og vini.
Baldvin kom, þrátt fyrir að vera nýbúin að vera í DK.
Það var best í heimi að hafa hann með okkur
Mamma kom og var með í öllu fjörinu og Sonja danska frænka mætti á föstudaginn og fór heim í gær.
Magga mágkona mætti á svæðið. Var hjá Gísla og svo kom Stebbi líka!
Þar sem bloggið er orðið svona langt, þá lengi ég það með nokkrum myndum
Við Bryndís
Billi minn
Desertin
Verði ykkur að góðu, þið sem komust alla leið.
Vinsamlegast staðfestið afrekið með kvitti
Bloggar | Þriðjudagur, 3. júlí 2007 (breytt kl. 11:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Get ekki látið vera að óska henni Bibbu minni hjartanlega til hamingju með Ironamanninn!!!
Bibba, þú ert stórkostleg og þvílík fyrirmynd Þú sannaðir svo sannarlega í gær að hugurinn til verksins skiptir öllu. Það hefði margur karlinn sett árar í bát við það eitt að viðbeinsbrotna tæpum tveimur mánuðum fyrir Ironmannkeppni, hvað þá að togna illa. . .
Nei, það stoppaði þig ekki kæra hetja
Enn og aftur óska ég þér til hamingju með árangur þinn og mannsins þíns. Þið eruð engin meðalhjón
Bloggar | Mánudagur, 2. júlí 2007 (breytt kl. 04:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
sítrónusápu, sítrónusjampó, sítrónunæringu, sítrónuilmvatn...
Já, það verður sítrónuinnkaupaferðin stóra.
Nú skal endanlega loka á þessa miklu og þrúgandi aðdáun á mér!
Ég bara þoli ekki þessar vinsældir !!!
Bloggar | Föstudagur, 22. júní 2007 (breytt kl. 09:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Tjáning tilfinninga með orðum virðist draga úr styrk þeirra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Föstudagur, 22. júní 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vilja að tölvuleikjafíkn verði skilgreind sem geðröskun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Föstudagur, 22. júní 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Má reka konur í búrkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Fimmtudagur, 21. júní 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er í talsverðum vandræðum þessa dagana. Vandræði mín stafa af vinsældum sem ég verð að viðurkenna að ég kæri mig ekki um. Já, ykkur er óhætt að trúa mér. Þó svo ég sé fædd í ljónsmerkinu og allt það, þá er ég bara engan veginn að fíla þessar vinsældir mínar!
Þessar vinsældir hófust einn blíðviðrisdag fyrir skömmu en rénuðu svo og það var von mín að með töku B1 vítamínsins myndi mér takast að slá á þessar vinsældir mínar. Ég er svo vítamín og bætiefna sinnuð, tel það lausn á flestum vanda.
Eitthvað hefur kenningin klikkað eða ég gleymt að taka bjögunarbætiefnið...
Ósköpin hófust aftur í fyrradag, þegar ég eins og bersekkur (vil ekki segja valkyrja, nýbúið að vera 19. júní) var að berjast við þyrnigerðið mitt hér utan vert á lóðinni. Ég var vopnuð glæsilegri rafmagnshekkklippu, í hlaupaskónum mínum, fallegum top og snyrtilegum buxum (ekki uppáhaldsbuxurnar). Ég hafði grun um að það bæri eitthvað í gangi (sjötta skilningarvitið?), en ýtti því frá mér, var í svo brjálaðri baráttu við þyrnihekkið að ég áttaði mig ekki á því sem einnig var að gerast! Þar sem ég barðist þarna hetjulega með hekkklippurnar að vopni við þyrna, arfa og gras (já, sló bara hel.... grasið þarna á bak við í "leiðinni") þá sló út á mér svita svo ég sá ekki út um gleraugun né heldur vissi ég þá alltaf hvar ég var að klippa. Lét það ekki á mig fá en barðist eins og hetja (riddari?), hálf blinduð af svitataumum á gleraugunum, við að klippa hekkið. Það tókst. Reyndar virðist mér, að mér hafi tekist að þynna það ansi mikið, alla vega er ekki laufblað á þeirri hlið sem snýr út í átt að opnu svæði kommúnunnar! Ég segi bara ha ha . . . Gott á kommúnuna að hekkið mitt er ljótt þeim meginn. Sama er mér.
En... aftur af þessum vinsældum mínum. Þegar hekkklippuberseksbrjálæðisbaráttuæðið rann af mér (með svitanum) þá áttaði ég mig á að ég var orðin geðveikt vinsæl af MYG
Dem... dem... dem...
Já, krúttin mín, þið sem höfðuð úthald í að lesa hingað. Litla sæta ljónið er nú útbitið og var nú ekki á bætandi eftir árásir þyrnirunnans á viðkvæmt prinsessukennt ungmeyjarhörund. Humm... smá ýkjur þetta er nú að verða þykkur skrápur. Má nú ekki ljúga ykkur full svona í einni færslu.
Til að staðfesta minn þykka skráp, tók ég mig svo til í gær og lenti (aftur) í árekstri við kantstein. Í þetta skiptið eyðilagði ég bara einu buxurnar sem ég vil vera í og bætti við örasafnið mitt á hnjáskeljunum. Alltaf gott að eiga nóg af einhverju.
Eigið góðan dag.
Mín bíða mikil ævintýri í dag!
Bloggar | Fimmtudagur, 21. júní 2007 (breytt kl. 06:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Í sumar tókst mér þetta, þökk sé veðurfari og öðrum hagstæðum þáttum.
Ég er svo ánægð með rósirnar mínar, þvílíkt fallegar
Í bakgrunninn má sjá hluta af hekkinu sem ég er að klippa þessa dagana.
Þeirri baráttu er ekki lokið en ég er ánægð með það sem komið er.
Tekur smá tíma hjá mér en það er allt í lagi ég hef þennan tíma núna.
Vinstramegin á þessari mynd er hekk sem á sér sögu.
Þetta er afleggjari af hekkinu sem huldi höllu Þyrnirósar þegar hún svaf svefninum langa og varnaði öllum er reyndu að komast í gegnum hann. Hekkið gaf sig ekki fyrr en rétti prinsinn kom og reddaði þessu eins og alkunna er. Ekki meira um það.
Einhverahluta vegna hafa Danir náð í afleggjara af þessum ógurlega runna og ekki bara það, nú er hann notaður í að marka lóðarmörk mín og kommúnunnar minnar. Þinglýst kvöð að hafa hann! Sannarlega er ég hrifin af rósum en runnanum hennar Þyrnirósar er ég ekki hrifin af. Það er vart hægt að nálgast hann og að ætla sér að klippa hann kostar að maður þarf að vera meira en hetja úr ævintýri!
Já, mín kæru þetta krefst mikillar kænsku og áræðis og eftir stendur að maður er í sárum og örum eftir viðureignina. Ég er nú þegar með heilan kafla af rispu ævintýrum á handleggjunum.
Þrátt fyrir að vera varinn í fatnaði frá hvirfli til ylja, í góða veðrinu, nær þessi hryllingur að stinga mann í hendur, fætur og höfuð
Kirsuberjatréð mitt sem kom úr grósku miklum garði Ingva og Hjördísar er með fjöldann allann af berjum sem byrjuð eru að roðna.
Sönn tilhlökkun þegar kemur að því að tína þau.
Þá þarf stórann stiga
Cerrytómatplönturnar mínar vaxa og dafna.
Fá um 50 lítra af vatni á dag. . .
Örugglega dýrara að rækta sjálfur en kaupa.
En heimaræktaðir tómatar eru einfaldlega bestir
Vona að fyrstu tómatarnir verði tilbúnir þegar mamma og einkasonurinn koma um helgina
Látum þetta gott heita, farin út að klippa hekkið utanvert!
Bloggar | Þriðjudagur, 19. júní 2007 (breytt kl. 09:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson