Vinir og fjölskylda | Sunnudagur, 30. nóvember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
segja ykkur frá nokkru sem skiptir máli.
Ég hef áður komið inn á það að mér finnst mestu skipta að fólkið mitt hafi það gott. Það er ekki að ástæðulausu að ég er meðvituð um það.
Í dag ætla ég að segja ykkur frá einni ástæðunni.
Fyrir fimm árum eignaðist ég bróðurson. Fæðingin gekk vel og drengurinn fínn. En fljótlega kom þó í ljós að ekki var allt sem skyldi. Drengurinn blánaði allur upp og tóku læknarnir hann frá foreldrunum til frekari rannsóknar. Rannsóknin leiddi í ljós að guttinn var með alvarlegan hjartagalla. Lyfjagjöf til að eiga möguleika á að koma honum til Boston var nauðsynleg en engan vegin öruggt að hún virkaði. Sem betur fer virkaði hún.
Litli guttinn var skírður skemmri skírn strax þennan sama dag. Betra er að hafa nafn þegar langt er upp í ferð sem engin veit hvernig endar.
Í Boston varð betur ljóst að hjartagallinn hans var mikill og sjaldgæfur. Aðgerðir til að bjarga lífi þessarar litlu hetju voru ekki umflúnar. Þökk sé gríðarlegri færni lækna og hjúkrunarliðsins þarna tókust þær vel, vonum framar. Litla hetjan sýndi þvílíka baráttulund og var svo duglegur í gegnum þetta allt.
Það var erfiður mánuður sem leið á meðan hetjan okkar barðist fyrir lífi sínu með frábærri hjálp. Þetta var aðventumánuðurinn og gleðin yfir þeim frábæra árangri sem þarna náðist, er nú hluti af minni aðventugleði.
Þetta er ein af hetjunum mínum. Gutti sem með tilvist sinni minnir mann á hvað skiptir máli.
Vinir og fjölskylda | Fimmtudagur, 27. nóvember 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Hvort ætli sé leiðinlegra, að koma sér í form með "yfirvegaðri" skynsemi eða skella sér í fjörið og láta hugsanlegar afleiðingar lönd og leið
Alveg að bilast á þessu.
Langar í ræktina snemma í fyrramálið en er búin að lofa að æfa með einni eftir hádegið. Á ég að fara x2 á morgunn eða bara x1? ... og ég á bara einar æfingabuxur, þrátt fyrir allt. En hjólabuxur á ég, gæti notað þær. Væri svo smart í ræktina
Í gær var hringt, það var hann Gauti hjóla-, hlaupa- og söng snilli. Var að spyrja eftir mínum, láta hann vita af hjólaklúbbnum Geysi og hvort ég kæmi ekki líka.Úff... auðvitað langar mig en núna væri ég alger sleði fyrir þessa peyja. Þetta er samt geggjað skemmtileg áskorun. Koma sér í form og slást svo í hópinn með strákunum. Stína eru með? Dagga spinningþjálfinn minn hví fluttir þú frá mér Hér eru bara þjálfarar sem tala skelfilegar málískur og anga af hvítlauk . . . og ég er ekki með fordóma.
Det skal mere fart på
Nei, finnst það ekki skemmtilegt, ekki vænlegt til árangurs í bili.
Svo á morgunn þá fer ég x1 í ræktina en ef ég fer x2 segi ég ekki frá því
Er ekki betra að hafa þetta skemmtilegta.
I´m a WINNER
Vinir og fjölskylda | Miðvikudagur, 26. nóvember 2008 (breytt kl. 19:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ég og fleiri af mínum íslensku vinum erum kúnnar hjá þessu fyrirtæki og höfum ekki mætt beiðni um landvistarleyfi né öðrum slíkum kröfum. Ég keypti mér síðast nýjan síma í síðustu viku og þá sem fyrr var þjóðerni mitt ekki vandamál. Kannski fólk sé svona vel upplýst hér við suður landamærin? Í þessari viku eða næstu ætla ég að skipta yfir í 3 nettengingu. Munurinn er kannski sá að ég versla ekki við Fona heldur við þjónustuborð 3 í A - Z búðinni minni?
Hlakka til
Neitað um viðskipti í Danmörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Miðvikudagur, 26. nóvember 2008 (breytt kl. 11:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Smá fréttir í máli og myndum. Ég er enn horfin en kem smátt og smátt í ljós eða það vona ég. Búin að mæta x3 í ræktina og taka einn góðan göngutúr í skóginn. Ég þori ekki annað en að fara hægt af stað því ökklinn er viðkvæmur og ég dauðsmeyk um að ofgera mér aftur. Ekki get ég lifað á Voltarin því það drepur víst. Það var allavega sagt hér í fréttum um daginn og hlýtur því að vera rétt. Ég á að vera að vinna að lokaverefninu en þjáist af einbeitingarskorti.Langar að setja hér inn nokkrar myndir sem ég hef tekið hér og þar í haust. Verð að viðurkenna að mér finnst verulega leiðinlegt að minnka myndir til að geta sett þær hér inn.
Þegar ég var á Íslandi í lok október fékk ég "alvöru" jólaveður og hef verið í jólastuði síðan.
Eftir dvölina á Íslandi eyddi ég helgi í Köben og þar voru þessi blóm og glöddu mig og aðra.
Skrapp líka til Helsingborg og Helsingör
Úr skóginum mínum
Skógurinn er aldrei eins
Skógurinn liggur að sjónum
Það er bara fallegt
Skógurinn er ævintýrastaður og ég elska að fara þangað.
Vinir og fjölskylda | Þriðjudagur, 25. nóvember 2008 (breytt kl. 15:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson