Blogg?

Er að spá í að setja inn smá blogg.

... .... .... .... ... .. .... .... .... ..... ...... ..... ... .............

........ ... .. .... ..... .... .... ...

...... .. . .. ....... ....... ...... ........ .... ..... ..... ..... .......

...... ... ...... ..... .... .... ...... ..... .... ... .... ...... ... ....

... .... .... .... ... .. .... .... .... ..... ...... ..... ... .............

........ ... .. .... ..... .... .... ...

...... .. . .. ....... ....... ...... ........ .... ..... ..... ..... .......

...... ... ...... ..... .... .... ...... ..... .... ... .... ...... ... ....

 

Já, einmitt.

Veit ekkert á hverju ég á að byrja.

Hef ekki bloggað mikið á þessu ári.

Eiginlega bara lítið.

Mest vegna þess að ég hef ekki verið heima.

Verið að ferðast.

Ferðast á námskeið.

Ferðast til að sjá og hitta fólk.

Ferðast af einskærri löngun til að sjá nýtt.

Hitta nýtt fólk.

Læra nýtt.

Tileinka mér nýja þekkingu.

Vita eitthvað, um eitthvað sem ég vissi bara ekkert um.

Hitta fólk.

Kynnast fólki.

Æði.

Tíminn frá  miðjun janúar til dagsins í dag hefur mikið til farið í þetta.

Smellti mér reyndar í smá aðgerð og vinn heilshugar það því að ná mér eftir hana.

Mætti ganga hraðar.

En ok ;)

Kemur...

Þessir fyrstu fjórir mánuðir ársins hafa liðið svo hratt og svo margt hefur gerst.

Yndislegt að geta flakkað svona eftir hentugleika.

Yndislegt að geta nú einnig valið að vera heima og njóta þess.

Er ég flakkari eða er ég könnuður?

Veit það ekki.

En þó ég hafi ekki verið að blogga mikið eða sé mikið lesinn, þá hef ég grætt alveg heilann auð á þessu bloggi mínu.

Ó já.

Þvílíkan helling sem ég hef grætt.

Það er jú alltaf betra að græða að en tapa. 

Sérstaklega er gott að græða í kreppu. 

Ég ætla að deila smá með ykkur, því sem ég hef grætt.

Ég hef nefnilega verið verulega heppin hér á blogginu.

Árið 2008 kynntist ég tveimur afburðamanneskjum hér á blogginu, þessari og þessari

Árið 2009 hef ég nú þegar hitt, tvær konur sem einnig eru alveg frábærar og fyrir það þakka ég.

Er viss um að þegar þetta ár er á enda, verður "að hitta gott fólk" listinn minn orðin rosalega stór, því hann stækkaði alveg heilann helling i Ammríkuhreppi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sæl elskuleg. Þú ert nú meiri molinn.  Frábær færsla hjá þér og skemmtileg. Linkurinn á afburðamanneskjur virkar ekki.  Gott að vita af ykkur heima í heilu lagi.  Eigið ljúft sumar og knúsaðu Laugu frá mér.  Kveðja á Billa þinn.  kveðja frá Selfossi í roki og rigningu.

Ásdís Sigurðardóttir, 29.4.2009 kl. 12:06

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Takk Ásdís mín fyrir ða benda mér á það. Gengur auðvitað ekki að hafa tvo linka á einum hlekk.

Knús á ykkur héðan úr blíðunni

Guðrún Þorleifs, 29.4.2009 kl. 23:51

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hehehe ég var næstum búin að hætta við að ,,skrolla" niður, hélt bara að þú værir hreinlega svona löt að koma inn færslu. 

Gott að þið eruð komin heim og á nú ekki að drífa sig og stækka veröndina, svona bara fyrir dönsku nágrannana hehehehe........

Góðan fimmtudag Guðrún mín. Kveðja frá okkur hér að Stjörnusteini.

Ía Jóhannsdóttir, 30.4.2009 kl. 07:31

4 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Daginn Ía mín. Mikið rétt, nú er að stækka veröndina. Láta hana ná lengra út í veröldina. Fá smá fútt í þetta. Held samt að sjósettning á Perlunni komi fyrst, enda verður gott að hvíla sig á henni eftir verandarvinnu.

Kærar kveðjur til ykkar á Stjörnusteini.

Guðrún Þorleifs, 30.4.2009 kl. 08:54

5 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Tad er fátt eins skemmtilegt og ad ferdast og kinnast nýju fólki.Ég flutti til danmörku fyrir næstum 5 árum og aldrey ferdast eins mikid og tessi ár.Kinnst helling af skemmtilegu fólki og látid oft rádast hvar ég lendi.

Veröndin á eftir ad vera svaka flott hjá ykkur og á eftir ad veita ykkur mikkla slökun og skemmtun svo er líka dásamlegt örugglega ad sigla á Perlunni tó tad sé ekki alveg mín sterka hlid.Knús kvedjur til ykkar Billa.

Gudrún

Gudrún Hauksdótttir, 2.5.2009 kl. 17:24

6 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Góð færsla. Mér hefur liðið eins sl. ár og ekki bloggað eins mikið þar af leiðandi. 

Kveðjur

Gunnar Páll Gunnarsson, 3.5.2009 kl. 06:03

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Held bara að við hjónin endur í danaveldi.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.5.2009 kl. 13:29

8 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Já nafna og þú ert ein af þessum perlum sem ég hef verið lánsöm að hitta. Takk fyrir það. Þegar þú brunar hér suður yfir landamærin þá mundu að þú ert velkominn hingað

Gunni og ég sakna bloggsins þíns. Vona að þú hafir ekki orðið fyrir meiri býflugnaárás!!

Ásdís, nákvæmlega það sem mér datt í hug á fésinu í dag. Bíð prúð eftir að fá ykkur í nágrenið

Guðrún Þorleifs, 3.5.2009 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband