Hverju á að trúa? Því sem "vísir" segja þér eða þér sjálfum ef þú efast um svörin?

Um daginn var ég að lesa blogg hjá einum bloggvini mínum. Viðkomandi skrifar um alvarleg mistök sem gerð voru í heilbrigðiskerfinu okkar. Hvert slíkt tilfelli er einu tilfelli of mikið. Þetta tilfelli snertir mig djúpt. Ég fylgdist með í gegnum bloggið þegar bloggarinn sagði frá því að hún hefði farið til Íslands og heimsótt þar Leitarstöð Krabbameinsfélagsins og Hjartavernd. Mér fannst þetta eitthvað svo öruggt. Ég var á þessum sama tíma í krabbameinsskoðun hjá heimilislækni. Einnig var í gangi hér í bæ eftirlit með öllum konum frá ákveðnum aldri og var hér staddur sérstakur tengivagn sem innréttaður hafði verið fyrir brjóstamyndatöku. Alger snilld og framtakið líka. Samt fannst mér eins og ég hefði verið öruggari á Íslandi. Nú efast ég stórlega. Í framhaldi af fyrri rannsókn var ákveðið að fjarlægja legið. Ekki var neinn grunur um meinsemd, önnur óþægindi í gangi. Ég fór næstum pollróleg í þessa aðgerð hér, sannfærð um ágæti spítalanns, eftir að hafa lesið fram og til baka upplýsingabækling frá þeim um allt ferlið. Þar stóð nákvæmlega hvað ég ætti að gera á degi 1 eftir aðgerð og 2 o.s.fr.Reyndin varð önnur, það stóð ekki steinn yfir steini af því sem lýst var í bæklingnum fína. Þarna ver engin setustofa til að borða matinn í, þarna var ekki boðið upp á próteindrykki, morgunnmatur, hádegismatur og kvöldverður var í ENGU samræmi við sjúkrahúsmatarstaðalinn sem hékk á fínu skilti upp á vegg. Fagleg umönnun var einnig í molum. Þessi deild sem ég lá á, var innst á gangi sem 2 aðrar deildir voru á. Fremst var fæðingadeild, svo var háls-, nef- og eyrnadeild og innst kvennsjúkdómadeildinn. Við erum að tala um spítala sem á að þjóna a.m.k. 100 þúsund manns! Að morgni annars dags var svo útskriftin mín. Hún fór þannig fram að ég rakst á hjúkrunarfræðing á göngu minni um ganginn og spurði hana hvort ég gæti ekki farið heim sem fyrst. Jú jú ,getur farið núna. Ok, sagði ég, þarf ég ekkert að hitta lækninn sem skar mig? Nei nei, sagði hún. Humm... en fæ ég ekki lyfseðil á verkjalyf. Nei, nei, sagði hún og var en brosandi. Þú tekur bara 2x500mg Panódíl. Ég ákvað að kyngja þessu, fæ nefnilega stundum smá skammir fyrir að kyngja ekki öllu sem læknalið segir við mig. Fannst samt smá munur á þessum lyfjaskammti og morfínblandinu sem ég var á hjá þeim. En hvað veit ég? Rúm 20 ár síðan ég var rist á kvið síðast og þá nær dauða en lífi og man lítið eftir verkjum. Skemmst er frá því að segja að heim komst ég og var alsæl með vistaskiptin, lyfjaskammturinn var bull og því datt verkjameðferðin niður með tilheyrandi sársauka og vanlíðan þangað til tókst að fá viðeigandi lyf. Engin eftirskoðun er eftir svona ingrip. Ég hef farið vel með mig. Hlustað á ráleggingar reynslubolta. Látið heimilstörf vera sem ekki henta fyrst eftir svona aðgerð. Verið dugleg að hvíla mig og dugleg að ganga. Samt er ég oft geggjað þreytt. Líklega vegna þess að fyrir aðgerðina var ég orðin of lág í blóði. Ekkert fylgst með því. En eins gott og það nú er, að fá tíma á heilsugæslunni þá á ég þann 15 n.k. tíma hjá hjúkku í blóðprufutöku.

Já, þessi heilbrigðiskerfi eru æði. Allavega er ég enn sannfærðari en áður um, að það er ég sem ber ábyrgð á minni heilsu númer 1, 2, og 3. Ég þarf ekki að kyngja því sem fólkið í þessu kerfi segir við mig ef ég efast. Ég hvet ykkur/þig sem þetta lesið/lest að hlusta á ykkar sannfæringu og láta ekki segja ykkur hvað sem er.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er alltaf óstjórnlega frek og ákveðin þegar ég eða aðrir í minni fjölskyldu þurfa læknisaðstoð og reyni og fæ oftast það besta, maður verður þvílíkt að passa sig hvar sem maður er.  Kærleikskveðja til þín yndið mitt.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.5.2009 kl. 12:40

2 Smámynd:

Það er sko rétt að við sjálf berum alla ábyrgð á heilsu okkar og oft veita svona rútínuskoðanir falskt öryggi. En maður vonar að heilbrigðisfólk á Íslandi veiti betri þjónustu en þú fékkst. Batakveðja til þín Guðrún mín.

, 7.5.2009 kl. 19:28

3 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Takk Dagný mín. Þjónustan sem ég fékk var hér í DK þar sem ég hef búð undanfarin 10 ár. Ég ber mitt ferli saman við vinkonu mína sem fór í samskonar aðgerð 5 dögum á undan mér. Undirbúningurinn hjá mér var betri en það var haldið mikið betur utan um hana í innlögninni. Náði meira að segja að heimsækja hana áður en ég fór frá Íslandi. Auðvitað vil ég trúa á heilbrigðiskerfið okkar og einnig kerfið hér, en það er ekkert óbrigðult og síðast í kvöld var ég að ræða hjúkrunarferli við vinkonu mína sem vinur á neyðarbíl. Hún vildi gjarnan sjá hlutina á annan veg en eru fagaðilar spurðir þegar sparnaður er skipulagður? ...kannski er ekki einu sinni sparnaði um að kenna?

Guðrún Þorleifs, 7.5.2009 kl. 21:18

4 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Æi tetta er ljótt ad heyra ad ekki sé hugsad betur um konur sem koma úr svona adgerd og audvitad alla sem leggjast turfa inn á sjúkrastofnun.Ég hef líka sögu ad segja hérna frá danmörku.Var búin ad vera svo lasin í allt vor og seinnipart vetrar.Ég fór hérna til læknisins míns sem er kona á mínum aldri reyndar alveg jafngamlar.Hún er flott og fitt stundar greinilega mikkla líkamsrækt og vill ad allir geri hid sama,sem er hid besta mál en ég er bara ekki í teim hópi.Tó svo ég hreifi mig svolítid.Hún sagdi mér bara ad stunda meyri líkamsrækt og tá myndi ég hressast.Ég fór heim med tad tó frekar döpur og hugsadi med mér ..Ok ég byrja tá í líkamsrækt tó ég hafi enga krafta til tess.Ég var búin ad fara 3 svar til hennar en fekk svipud svör í öll skiptin.Grenna mig,hreifa mig meyra  o.s.f..v....Ég tók sídan ákvördun ad skella mér til íslands og til minns læknis tar, fekk ég gódar móttökur og var tekin í allsherjar rannsókn.Fekk nidurstödur sem betur fer voru ekki rosalega alvarlegar en urdu ad fá lyf vid.Nú er ég ad hresast og glöd ad nýju.

Svona er tetta misjafn landa á milli og lækna á milli.

KNús kvedjur til tín og frábært hvad tú ert búin ad ná tér.

Gudrún Hauksdótttir, 11.5.2009 kl. 14:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband