Í nóvember sl. keypti ég mér nýja þvottavél. Fyrir átti ég 5 ára gamla vél sem sífellt hafði verið að svíkja lit. Þessi svik gerðu það að ég ákvað að snúa á þessa svikamillu og henti henni út á hauga! Fór og keypti nýja þvottavél. Að þessu sinni var keypt vél sem mig LANGAÐI í. Merkið og tegundin var í lagi. Enn... það er sennilega ekki nóg að fá það sem maður vill, því það er kannski ekki endilega eins og maður vill. Vélin mín nýja er þannig. Fullkomið merki, rétta tegundin en virkar bara ekki rétt. Ég fór í bullandi afneitun og svo í meðvirkni, en ekki lagaðist vélin. Nú hef ég ákveðið að horfast í augu við vandann og er nú í símanum að "tala" við þá Simens. Fyrst fékk ég númerið, hringdi. Var beðin um að velja 1 ef ég væri privatkúnni, 2 ef ég væri fyrirtæki. Mér fannst ég privat. Nú átti ég að velja 1,2,3,4 eða 5 etir því hvort ég væri með, eldavél, viftu, þurrkara, þvottavél o.s.fr. valdi þvottavél og þurrkara númerið. Þá þurfti ég að velja hvort þetta væri þvottavél eða þurrkari. Valdi þvottavél. Þá var ég beðin um að velja hvort ég vissi E númerið á vélinni minni. Valdi að vita það ekki. Þá þurfti ég að velja hvort þetta væri þetta eða hitt raftækið, valdi þvottavél. Hljóp fram í þvottahús til að lesa E númerið ef ég þyrfti að slá því inn. Tilbúin beið ég eftir næstu handleiðslu símanns. Nú fékk ég að vita að nú væri ég komin í þjónusturöð og að ég væri númer 10 í röðinni. Nú er ég númer 2 og búin að blogga
Over and out, best að vera tilbúin með E-númerið.
Skildu þeir geta gert við vélina????
Kemur í ljós af afmælinu hennar Birnu
En nú er ég NÚMER
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkur: Bloggar | Mánudagur, 21. apríl 2008 (breytt kl. 14:03) | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Athugasemdir
Já, númer hvað?? eitt?? vona að þeir reddi þessu, þetta á nú að vera svo gott merki, þú segist bara ætla að blogga um þetta á opnum vef á Íslandi og enginn kaupi framar svona vélar hér á landi. Rosalega var annars gaman að sjá þig, þó í mýflugumynd væri. Næstum eins og draumur. Hafðu það gott mín kæra.
Ásdís Sigurðardóttir, 21.4.2008 kl. 14:06
Þetta er fyndin símatækni sem sundurgreinir svona Þegar ég var loksins orðin númer 1 þá fékk ég að vita að ég gæti fengið skoðun á vélina 5 maí ... og ég sem hélt að bjargvætturinn kæmi á morgunn
Það var líka skemmtilegt að sjá þig og mikið hlakkar mig til að taka á móti ykkur hjónunum hér í Sönderborg, þá verður nú tíminn að vera meiri
Guðrún Þorleifs, 21.4.2008 kl. 14:23
Maður er bara algjörlega valdalaus í svona viðskiptum við tölvurödd í símanum. Ekki hjálpar að grýta símanum í vegg, því mest tapar maður á því sjálfur, en hvar á maður eiginlega að fá útrás fyrir gremju sína....
Gangi þér vel með þvottavélina!!!
Lilja G. Bolladóttir, 22.4.2008 kl. 01:07
Maður verður sennilega að halda í vonina Lilja Ég var samt nálægt því að missa trúnna og vonina, því internetið er brösótt hjá mér þessa dagana og því slitnaði samtalið!!! Ég vissi að ég mundi ekki nenna að bíða aðrar 16 mínútur svo ég vonaði bara að símasnótin mundi hringja í mig, sem hún og gerði. Ég fæ viðgerðarmann 5 maí á tímabilinu milli 11 og 16. Þarf sem sagt að stinga af úr skólanum þann dag til að bíða eftir einhverjum sem er kannski alvega að koma
Guðrún Þorleifs, 22.4.2008 kl. 05:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.