Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Er þetta sanngjarnt?

Hér situr íslensk snót alsæl, eða ætlaði að vera það. Loksins búin að koma saman nýju skrifborði sem tekur tvær tölvur með risaskjáum og gera fínt hjá í kringum sig. Sest glöð við tæknina sína. Tölvurnar tvær farnar að virka. Elskulegur HIVE síminn virkar aftur eftir að hennar heittelskaði reif yndið úr sambandi í hjálpsemi sinni við að koma lagi á líf snótar. Þessi hjálpsemi kostaði snót, ferð undir borðundrið og af einskærri snilli tókst snótinni að raða símaleiðslum upp á nýtt. Nú virkar allt.  Aftur hægt að hringja frá Als til landsins kæra í norðri frítt. Vona að auglýsingin sé sönn. Wink
Nú þegar snótin er búin að tengja alla tæknina þá er langþráður draumur komin í uppfyllingu. Hátalarar eru nú tengdir við tölvuna. Það þýðir að aftur er hægt að spila íslenskt útvarp í beinni! En böggul fylgir skammrifi.
Nú situr snótin hér og þráir heita KJÖTSÚPU!!! Pinch
Af hverju getur maður ekki fengið ALLT?
He he...
 
Var svo ánægð áðan þegar ég fór berfætt út í garð á stutterma hlaupabolnum til að kíkja á framkvæmdir.
 
Jamm og já, hvenær verður maður ánægður? 
 
Kröfur eru þetta LoL
 
 

Lengsta helgi ársins runnin upp

Þessi helgi er lengsta helgi ársins og hef ég hugsað mér að nýta hana til fulls, en ekki hvað? Tounge
Nú tekur við vetrartími og hann hentar mér. Öll mín samskipti við Íslands verða auðveldari!
Tímamunurinn fer í 1 klukkustund og það er grundvallar atriði þegar einhver hringir frá Íslandi klukkan níu að kvöldi Grin Svona skóla- vinnusnót eins og ég sem mætir í ræktina þrisvar í viku kl. 6.00. er sko á góðri leið í draumalandið þegar klukkan hennar nálgast ellefu Halo
Alltaf eitthvað til að gleðjast yfir Smile

Reyndar gladdist ég ekki yfir stjörnuspánni minni í dag, því mér fannst hún vísa í samtal sem ég átti við skólastjórann minn í morgunn. Angry
Hér er spáin:

LjónLjón: Skrefin sem þú tekur til að verða upplýstari skerpa hæfileika þín og skýra það að draumurinn verður kannski ekki að veruleika. Þannig herðir lífið mann.

Þannig er, að ég er að reyna að sannfæra skólastjórann um að hleypa mér í gegnum námið á styttra en stutt. Hann fór eitthvað að tala um að ég væri í fullri vinnu. So what???
Ég er þeirrar skoðunar að ef mér tekst ekki að leysa verkefnin fyrir fyrstu og aðra önn saman þá á ég alltaf möguleika á að taka lítið á þriðju önninni og hvað er þá í hættu?
Þetta nám mitt er í raun 2 ½ ár. Ég fékk það samþykkt að sleppa verklegri þjálfun sökum útlits og innri fegurðar eða vegna aldurs og fyrri starfa Kissing

Hvað sem öllu líður þá er ég að vinna verkefni á fyrstu og annarri önn og skila verkefnum á fyrstu önn á undan öðrum, fá tíur eftir nýja einkunnarskalanum og meðan þetta gengur svona, stoppa ég ekki Whistling 
Þar sem allt er hverfult í þessu lífi og fátt fast í hendi, þá verður auðvitað bara að koma í ljós hvort mér tekst þetta eða hvort ég verð að sætta mig við að fara þetta á næstum sama hraða og hinir Crying

Ég er harðjaxl Cool

Góða helgi mín kæru Wizard

 


Uppruni konu

Röm er sú taug...
Sennileg var eitthvert framhald á þessu en það man ég bara ekki. Blush
Datt þetta í hug áðan.
Nú er ég búin að búa í DK í rúm 8 ár. Frekar skrítið. Mér finnst 8 ár langur tími svo ég er ekki alveg að átta mig á því hvernig þetta gerðist og þó... önnur saga. Wink
Þegar kona hefur búið í svona lengi í útlöndum er hún búin að hitta marga íslendinga sem hafa komið til SDB í mislangan tíma og farið svo heim. Þetta verður til þess að kona hættir að hafa áhuga á að stofna til kynna við fólk, því áður en hún veist af þá eru vinirnir fluttir aftur til Íslands.  Auðvitað myndast samt vinakjarni og kunningjar eru nokkrir. Gott mál.
Eftir að hafa búið svona lengi í SDB þá telur kona sig nú falla aldeilis vel inn í danska hjörð og sé því ekki auðkennanleg sem íslendingur þegar íslendingar verða á vegi hennar. Ég er þá til dæmis að tala um ef ég mæti bíl á íslensku númeri og ég á mínu danska. Wink Nú eða ef ég sé íslending í fallegri íslenskri flíspeysu. Já, þá veit ég auðvitað að þarna er íslendingur á ferð en viðkomandi veit að sjálfsögðu ekki að ég er íslendingur.

He he. . . það er sko þarna sem ég flaska. Pinch

Mín elskar nefnilega íslenska hönnun Heart


Undirskriftarsöfnun

Hún Ásdís bloggvinkona er farin af stað með undirskriftarsöfnun til stuðnings málefnum öryrkja.

Hvet þig til að kynna þér málið.


Líf ?

Ég er þrettán ára. Líf mitt er ömurlegt. Það er ekki mér að kenna. Mér er fokking sama um allt nema mömmu.  

Mamma er eina manneskjan í þessum heimi sem er einhvers virði. Samt hef ég ekki búið hjá henni síðan ég var ellefu ára. Henni finnst ég reyna að stjórna henni og þegar hún er veik af þunglyndi getur hún ekki haft mig, ég hef verið hér og þar. Ég er viss um að ef ég fengi að búa hjá mömmu yrði líf mitt gott. Ég mundi hætta að gera á mig, ég mundi léttast og geta farið að ganga í skóla aftur, ég mundi hætta að drekka og reykja. Ég mundi ekki að stela. Ég mundi verða hin fullkomni sonur. Alltaf, næstum alltaf. 

Þetta er allt helvítinu honum pabba að kenna! Hann barði mömmu. Hann barði mig. Hann gerði líf okkar ömurlegt. Mín heitasta ósk er að slá hann í klessu. Þegar ég hef slegið hann, mun mér líða betur. Þá verður líf mitt gott.

Þetta er fokking líf og það er ekki mér að kenna.

Ekkert er mér að kenna.

Er þetta líf? 


Hver er þetta?

Í spinning á föstudaginn fékk ég snilldarhugmynd eins og kemur fram í síðasta bloggi hjá mér.

IMG_2634

 

 

 

Nú er spurninginn...

Hver er konan á myndinni? 

 

 

 


Ég fékk hugljómun!!!

Frábært, alveg frábært Wink Nú veit ég hvað ég ætla að blogga um næst Tounge

Fékk þessa mega hugljómun í gær í spinning.

Ég var sem sagt í spinning í gær og einhverra hluta vegna, festist fókusinn hjá mér á vel þjálfuðum kálfunum á mér og sat athyglin föst á þessum ofurþjálfuðu vöðvum. Humm... það hlýtur að vera skýring á þessum flottu stólpum Halo Allavega fannst mér að ég gæti reynt að hugsa um eitthvað vitrænna og fór að spá í hvað ég gæti gert skemmtilegt á blogginu og þá, og þá, þegar ég var búin að brenna hitaeiningu númer 187 gerðist það! Mér datt sem sagt í hug hvað ég get gert á blogginu!!! Meðan ég brenndi hitaeiningasysturnar frá 188 til 332 var ég að móta hugmyndina og eftir það hafði ég bara áhuga á að drífa mig heim og framkvæma. Örlítið bráðlæti í gangi Joyful

Þar sem það var ekki boði, átti eftir að drepa, afsakið brenna, fleiri hitaeiningasystur. Þegar ég hafði gert útaf við 553 hitaeiningasystur lá leiðin í sturtu, föt og svo heim, þaðan í matarborð til spinningþjálfarans. Smá salat og grænkál og kál og ostur (+ pizza og rauðvín Sideways)

Ég er ofurheppin þessa dagana. Eitt af mínu láni er að vera lítið lesin á moggabloggi. Hjúkket! Hingað koma bara mínir trúföstu lesendur. Takk fyrir það og takk aftur og fram og til baka og aftur fram.  Vegna þess að þannig lendi ég ekki í tómu tjóni! Jebb... fá ömurleika komment frá nafnlausum sem ekki þola að ég skuli tala um hitaeiningar  sem systur er skuli drepast ( af mér) saman ber blogg Huldar, þar sem einhver hálviti þoldi ekki að hún talaði um krúttlegu hvolpana sína sem stráka og stelpur. Eins finnst mér fínt að vera ekki með mótað blogg, því þá koma engir rassálfar og gera grín af mínum stíl. Hjúkket Whistling x2 dúdderídeibæ.

En málið er enn það, að ég fékk hugljómun sem ég útfærði þegar ég drap hitaeiningasysturnar í gær og ég mun setja það í framkvæmd fyrr en varði en verð þó að bíða smá... eða ekki Wink

Úff... þið ættuð bara að vita hvað þetta er mikil snilld og líka annað sem mér datt í hug í gær.

Katrín, nú er bara að gera eitthvað við allar hugmyndirnar mínar eins og þú LoL


Samræður dagsins:

Rósin kom miður sín heim til mín eftir skóla. Allt hafði gengið vel í skólanum í dag nema frímínúturnar.  Önnur bekkjarsystirin hafði ráðist á hana þegar Rósin af vanmætti reyndi að útskýra fyrir henni að hún væri vingjarnleg mannvera sem reyndi að vera góð, ærleg og hjálpsöm við aðra. Þessi ræða féll ekki hinni að skapi og hún sló Rósina sem ekki vildi slá á móti ( "ég reyni að vera góð manneskja") og hljóp í burtu.

Erfitt að skilja að aðrir hafa engan áhuga á að heyra hvernig hún vill vera. Rósin hefur nefnilega tekið það í sig núna að sannfæra alla í kringum sig um það hve góð, ærleg og hjálpsöm hún er. Til að sannfæra, þarf hún að segja þeim sem heyra vilja og öðrum líka. Þar liggur vandinn hennar í dag.

Guðrún, hvað á ég að gera?

Góð ráð geta verið dýr og vand með farið hvað sagt er við greindarskert barn með einhverfu einkenni. Allt tekið bókstaflega. 

Hugsi, hugsi, hugsi.

Svo spurði ég: Hvernig reynir þú að sannfæra nýju bekkjafélaga þína um hve góð þú ert?

Rósin: ég reyni að segja þeim eins vel og ég get, að ég vilji vera góð, ærleg og hjálpsöm, en þegar svona skeður eins og í dag þá finnst mér ég svo heimsk uppi í höfðinu mínu og allt er í flækju þar og ég veit ekki hvað ég á að hugsa eða segja til að þau skilji mig, ég er góð persóna en ég skil ekki hvað gerist í höfðinu mínu.

Það er engin vafi að Rósin er hrein sál. Allt illt er henni fjarri. Það er henni mikilvægt að aðrir hafi þá mynd af henni sem hún hefur sjálf.

Nú reyndi ég að útskýra fyrir Rósinni að það gæti verið að það væri skynsamlegra að leyfa nýju bekkjarfélögunum að mynda sér sína eigin skoðun á henni. Að þau hefðu leyfi til að hafa sitt eigið álit á henni og það mikilvægasta væri að hún væri hún sjálf og væri sátt við það. 

Rósin vildi vita hvernig hún gerði það. Ekki vera segja þeim hvernig þú ert. Geymdu það inni í þér fyrir þig sjálfa og mundu að þeirra álit skiptir ekki máli. Já, en ef þeim líkar ekki við mig, spurði Rósin. Það gerir ekkert til, það er til fullt af börnum og fólki sem líkar við þig. Það þarf ekki öllum að líka við þig. Veistu, sagði ég, það er til fólk sem finnst ég álveg ómöguleg. Nei, nú hefði ég greinilega gengið fram af henni! Svona bull var hún ekki að kaupa! Ég var orðin hálf lens í þessu táraflóði Rósarinnar og lagði nú til að hún hætti að tala um þetta og prófaði að láta vera að segja fólki hvernig hún væri. Hugsaðu nú málið smá.

Eftir smá vatnsflaum og teiknimyndaáhorf kom Rósin og spurði: Guðrún, ertu að meina að ég bregðist of harkalega við (overreagerer) ?

Já, sennilega krúttið mitt.

Nú situr Rósin og horfir á teiknimyndir í sjónvarpinu mínu, en HÚN er svo heppin að ég á víst sjónvarpstegund sem er með ein bestu gæði í teiknimyndaupplausn, eitthvað sem hún hefur lesið í einhverju tækniblaði.

Amen 

 hlaup


Hvet ykkur...

Hvet ykkur til að lesa þetta blogg: Þórdís 

Ef það hreyfir við ykkur þá er þetta blogg einnig áhugavert.

Skólakveðjur

Tounge


Stjörnuspáin mín

...er alveg í takt við framkvæmdir og ákvarðanir dagsins í gær:

LjónLjón: Þú stendur þig betur þegar þú hefur of mikið að gera. Ef þú hefur lítið að gera, viltu helst ekkert gera. Bara bestu hugmyndirnar hreyfa við þér.

Halo

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Ágúst 2025

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband