Í morgunn vakti Billi athygli mína á rósaknúbb sem virtist ákveðin í því að springa út þrátt fyrir að nú væri veturkonungur genginn í garð. Þegar hann ríkir er ekki tími nýútsprunginna rósa. Litli rósaknúbburinn okkar virtist ekki hafa heyrt um þessa staðreynd eða látið hana sem vind framhjá sér þjóta.

Þetta vakti mig til umhugsunar. Þannig er mál með vexti að ég er mjög leið. Eiginlega voða sorgmædd líka. Þið vitið, svona líðan þegar tárin eru alveg að fara að renna og renna stundum. Langar þig að vita hvers vegna mér líður illa? Mig langar alla vega að segja þér það. Helst vil ég segja það sem flestum. Helst vil ég að ástæða hryggar minnar valdi umræðu sem gæti skilað árangri til lausnar á því er hryggir huga minn. Ástæðan er að þetta er ekkert einsdæmi. Of margir eru lítilvirtir á þennan hátt. Einstaklingar sem ekki geta varið sig, sem ekki geta beðið um hjálp, einstaklingar sem eiga allt sitt undir þeirri umönnun sem þeir fá.
Þið sem þekkið mig eruð án efa búin að gera ykkur grein fyrir að þetta snýst um pabba og aðstæðurnar hans. Pabbi er í þeim fjötrum að lifa í líkama sem gerir hann að miklum umönnunar sjúkling. Hann er spastískur í öllum limum. Getur hreyft höfuðið lítillega og augun hans fylgja okkur þegar við erum hjá honum. Málið er farið en tárin ekki. Hann getur setið í hjólastól sem er stór óþjáll og fyrirferðarmikill. Til að setja hann í rúmið og taka hann úr því þarf að nota sérstaka lyftu. Allur þessi útbúnaður tekur pláss.
Mamma fer til pabba í hverju hádegi og gefur honum sondu. Síðan kemur hún aftur um kvöldmatarleitið, gefur honum sondu, er hjá honum á kvöldin tekur þátt í aða undirbúa hann fyrir nóttina. Situr hjá honum, talar við hann og segir helstu fréttir, les fyrir hann, spilar tónlist eða horfir á sjónvarpið með honum. Reynir að skapa þeirra stemmingu. Þau eru jú búin að vera gift í rétt rúm fimmtíu ár og þekkja því hvort annað vel. Mamma tekur gjarnan handavinnuna sína með í þessar samverustundir þeirra hjóna. Notalegt, finnst ykkur það ekki? Þrátt fyrir allt, þá er möguleiki á að eiga notalegar samverustundir þó lífið hafi ekki fært þeim þá samveru á efri árum sem þau dreymdi um og stefndu að.
En er þetta svona?
Nei, ekki alveg. . . Það er nefnilega þannig að pabbi er á tveggjamanna stofu. Þannig hefur það verið í um 3 ár. Á þessum árum hafa "sambýlismenn" pabba verið nokkrir og þetta er ekki ádeila á þá. Þeir hafa líka verið fórnalömb þessa kerfis. Það sem er að, er að það er vita vonlaust fyrir mömmu að eiga einkasamverustundir með pabba á tveggjamannastofu, því aðeins skilur tjald á milli. Tjald sem stundum lafir uppi. Svona tjöld eru efnisþunn. Þau eru ekki notuð sem milliveggja efni hjá þér eða mér. En þetta er það sem stendur til boða og þrátt fyrir að fjölskyldan haf marg ítrekað beðið um einbýli fyrir pabba svo hægt sé að sinna honum sem þeim sjúkling sem hann er. Með aðstöðu fyrir starfsfólk með hjálpartækin hans, með aðstöðu fyrir mömmu til að geta átt síðustu stundirnar með honum án þess að þurfa að hlusta á hræddan mann í næsta rúmi bölva og ragna í ótta sínum eða hóstandi, hrópandi á ættingja svo eitthvað sé nefnt. Það er útilokað að halda sönsum við þessar aðstæður. Útilokað að eiga það einkalíf sem manni finnst að hjón eigi rétt á, þó heilsa annars sé farin. Oft hefur okkur verið vísað út frá pabba þegar við höfum verið þar um kl. 19.30 til 20.00 á kvöldin. Ástæðan er að setja þarf "sambýlismanninn" upp í rúm. Klárlega þarf það að gerast án þess að við séum til staðar. Enginn spurning. Þetta er bara svo bilað. við getum ekki litið inn til pabba á kvöldin því herbergisfélaginn er kominn í rúmið og þarf að sofa. Hans rytmi er annar en pabba. Þetta er geggjun. Hversvegna í andskotanum er ekki meiri virðing fyrir lífi fólks? hversvegna getur pabbi ekki fengið einbýli? Svo virðist, að þau einbýli sem losna á deildinni séu eingöngu fyrir konur. Því virðist ekki von um að það gríðarlega álag sem er á mömmu minnki. Mér er fyrirmunað að skilja að ekki sé hægt að koma á móts við þarfir jafn veiks manns og pabbi er. Á móts við þarfir mömmu, sem með aðhlynningu við pabba sparar deildinni ómældan starfskraft.
hvar er viðringinn við einstaklinginn?
Hvar er virðingin við hjónabandið?
Hvar er virðingin við einkalífið?
Hvar er velferðarsamfélagið?
Er von?
Á ég að leyfa mér að trúa og vona að lausn sé handan við hornið?
Að þrátt fyrir vitavonlausar aðstæður þá munum við ekki gefast upp heldur berjast gegn "veðri og vindum" og ná árangri fyrir pabba og mömmu, svo þau geti saman átt sínar einkastundir þrátt fyrir allt?
Heldur þú að hægt sé að bæta þetta ástand?
Ef þú heldur það, segðu mér þá hvað þú telur vænlegast.
Í lokin er svo mynd af fegurstu rósinni minni sem blómstrar í dag. Hún gefur von eins og hinar rósirnar hér á undan. Þegar ég fór út í garð í morgunn til að taka mynd af litla bjartsýna rósaknúbbnum mínum, þessum rósaknúbb, sem gaf mér þá hugmynd að þó útlitið virtist vonlaust, þá væri samt alltaf von ef baráttan væri til staðar. Þegar ég svo var komin út í garð sá ég fleiri knúbba og útsprungnar rósir. Það sagði mér það sem ég þurfti í dag.
Lifið heil
Bloggar | Laugardagur, 15. desember 2007 (breytt kl. 12:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Í fjarveru minni frá moggablogginu hef ég ekki setið auðum höndum Ég hef bloggað á mínu bloggi og sitthvað fleira.
Eitt af því sem ég hef gert er að gefa mér tíma í göngutúra. Í einni slíkri ferð lá leiðin í gegnum kirkjugarðinn í minni sókn hér. Þar sá ég nokkuð sem ég hef ekki séð áður. Starfsmenn garðsins í óðaönn við að jólaskreyta leiðin svona líka fallega!!! Ég varð yfir mig hrifin. Enn og aftur óska ég að leiðin í Skarðskirkjugarði væru ekki upphlaðin eins og raunin er. Mér finnst slíkt ekki gefa sama möguleika á að hafa leiðin falleg. Kannski er þetta hugmyndaskortur hjá mér en það breytir ekki afstöðu minni. Ég skellti mér aftur í garðinn nokkru seinna og þá með myndavél með mér til að sýna ykkur það sem ég hreyfst af.
Í lokin set ég svo inn myndir frá skóginum og ströndinni minnu kæru.
Góða helgi!!!
Gríðarlega skemmtilegt hvað maður ræður ekkert við uppsetninguna í þessu formati
Vinir og fjölskylda | Föstudagur, 30. nóvember 2007 (breytt 15.12.2007 kl. 11:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þá er maður komin heim aftur og farin að keyra hið daglega líf, af lífi og sál Já, ég er sátt við annríkið mitt hér, því ég er að gera nákvæmlega það sem mig langar.
Það er alltaf gott að kom heim til Íslands, faðma fólkið sitt og anda að sér íslensku lofti, svo eitthvað sé nefnt.
Það er margt gott á og við Ísland. Eitt af því er ýmis matur og nammi sem er bara til á Íslandi. Það er alltaf vinsælt ef ég tek með smá góðgæti á þessum ferðum mínum. Með það í hug að gleðja dætur mínar, gekk ég inn í Nettó í Mjódd síðast liðinn föstudag. Ég var ekki ein á ferð þar. Systurdóttir mín 6 ára hélt þétt í hönd mína. Við byrjuðum á að fá okkur innkaupavagn og svo var farið að kíkja í hillur, ýmislegt féll niður í körfuna. Eftir því sem lengra var haldið inn í búðina fór óróleiki í huga mínum að gera vart við sig. Ég er ekki vön að gera svona innkaup, en nú var ég bara nánast ekki með neinn farangur heim og jólin framundan. Ostar, harðfiskur, lifrapylsa og NAMMI. Eitthvað hafa innkaupin verið farin að undra frænkuna litlu því nú spurði hún: Guðrún frænka kaupir þú ekki hollan mat? Einmitt punkturinn, ég var mest að kaupa óhollustu og var ekki alveg að fíla tilfinninguna við það, en fannst samt mikilvægt að eiga smá nammi fyrir jólin, en ekki hvaða? Íslenskt nammi er best! Þegar þarna er komið í innkaupum mínum er ég farin að spá í hvort þessi innkaupakarfa sé dæmigerð fyrir íslending búsettan erlendis. Meðan ég bíð í röð við kassann sannfærist ég um að svo sé. sannfærist algerlega um það. Hef líka smá samvisku yfir þessari óhollustu sem liggur á bandinu, er orðið í mínum heimi þarna í röðinni, hrekk í kút þegar röðin er komin að mér að borga, því afgreiðslukonan segir við mig: FÆF ÞÁSDÚND AND NÆN HÚNDRED!!! VÁ, hvað mér brá, ég kipptist við og hrópaði: Ég er ÍSLENDINGUR!!!
Konan sem stóð fyrir aftan mig fór að hlægja og sagði: Svona er Ísland í dag og þá fattaði ég það! Afgreiðslukonan hafði ekki fattað að ég bjó í útlöndum, því síður hélt hún að ég væri svo tæp að ég kynni ekki íslensku lengur.
Málið var að hún var ÚTLENDINGUR. . .
Ó já
Bloggar | Föstudagur, 9. nóvember 2007 (breytt kl. 11:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
En. . . ég ætla að nota tímann í lestinni til að lesa um verkefni sem ég er að fara í þegar ég kem til baka, fá mér kaffi, leysa smá SDUKO og halla mér á koddann. Jamm. . . 8)
MUNA; MuNa, muna, alltaf að fá það besta út úr líðandi stund :haha:
Í fluginu heim ætla ég að kaupa mér íslenskt að lesa og og íslenskt að drekka ;)
Ég tek með mér 2 myndir sem Rósin hefur teiknað og ætla að koma þeim á sína staði. Ég tek líka með mér myndaseríu sem hún vann hjá mér um tilfinningar. Ætla að sýna fölskyldunni minni afrek fósturbarnsins. Já, loksins er allt komið í gegn. Hún verður okkar 4 daga í viku frá og með morgunndeginum!!! Hún er glöð, mamma hennar er glöð og við líka ;) Svo glöð að við skellum okkur hvort í sínu lagi til landsins okkar kæra.
Kæru vinir nú bíð ég góða nótt og líð inn í draumalandið og læt mig dreyma um allt það sem ég ætla að upplifa á landinu kæra.
Sí jú
Bloggar | Miðvikudagur, 31. október 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)

Nú þegar snótin er búin að tengja alla tæknina þá er langþráður draumur komin í uppfyllingu. Hátalarar eru nú tengdir við tölvuna. Það þýðir að aftur er hægt að spila íslenskt útvarp í beinni! En böggul fylgir skammrifi.

Af hverju getur maður ekki fengið ALLT?

Bloggar | Laugardagur, 27. október 2007 (breytt kl. 15:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
-
Hulla Dan
-
Ía Jóhannsdóttir
-
Huld S. Ringsted
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Gudrún Hauksdótttir
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Maddý
-
Vilma Kristín
-
Anna Guðný
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Heiða Þórðar
-
Helga Magnúsdóttir
-
Aprílrós
-
Birna Guðmundsdóttir
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Sigga Hjólína
-
Kristín Einarsdóttir
-
Áslaug Sigurjónsdóttir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Sólskinsdrengurinn
-
Dana María Ólafsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson