Sýnileg?

Sýnileg, frýnileg, rýnileg, rennileg, skemmtileg?

Bara smá að spá í málin, er ég sýnileg eða ósýnileg eða bara svona frýnileg (veit ekkert hvað það þýðir Woundering)

Fékk nýju gleraugun í síðustu viku eftir óvenjulegt ævintýri sem aðrir lenda ekki í. En allar götur segi ykkur ekkert frá því heldur hitt að mín er alsæl með lonníetturnar sem að lokum lentu á nefinu auma. Eftir martraðir um dönsk gleraugu, hryllingsliti og skreytta arma þá fékk ég minimalisma armana mína frá Íslandi/Kastrup. Voða fín, en engin hefur haft á orði að ég sé með nýjar lonníettur. Skrítið eins og ég er ferlega fín með þessi sjást næstum ekki brillur Woundering Til að gera gott betra ákvað ég að fara í klippingu, alveg orðin loðin eins og rolla að vori enda ekki verið sneytt hár af mínu höfði síðan í síðustu Íslandsferð. Ég smellti mér því í klippingu hér einn daginn og fannst ég aldeilis hugguleg eftir þá aðgerð.
Það er þó skemmst frá því að segja að engin hefur sagt neitt um þetta mjög svo breytta útlit og nú velti ég því fyrir mér, hvort ég sé hreinlega orðin ósýnileg Woundering


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hehehe loksins kom færsla um eitthvað annað en helvítis kreppukjaftæði.  Love you girl.  Til hamingju með nýju brillerne, ég fór í laser heima og nú bara sé ég heiminn og heimurinn getur séð mig ef hann bara vill taka eftir mér.  Klipping er bráðnauðsynleg, minnir mig á það að nú er tími til að panta aðgerð.   Eigðu gíða helgi Guðrún mín. 

Ía Jóhannsdóttir, 3.10.2008 kl. 20:07

2 identicon

Híhí! Þarf ekki að hafa myndir með svona færslu?

Baldvin 4.10.2008 kl. 08:03

3 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Gott að geta séð heiminn Ía og klipping er möst fyrir fagrar snótir

Baldvin minn, sérðu ekki myndina?

hahahahaaaaaaaa

já, við megum ekki tína gleðinni 

Guðrún Þorleifs, 5.10.2008 kl. 07:18

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Alveg merkilegt þegar engin tekur eftir svona drastískum útlitsbreytingum

Huld S. Ringsted, 5.10.2008 kl. 11:45

5 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Til hamíngju með nýja útlitið, ert ábyggilega flott

Kristín Gunnarsdóttir, 5.10.2008 kl. 12:38

6 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Takk fyrir innlitið og kvittið hjá mér. Aldeilis hetjur sem þið eruð að láta nöfn ykkar hér hjá bloggara sem umvefur sig sérlægni og hefur engar áhyggjur af krónunni ( allavega ekki hér). reyndar gæti þa ðstafað af því að mig undrar hvernig komið er fyrir íslensku efnahagslífi miðað við alla spekingiana sem koma fram á ritvöllin og tjá sig af miklum móð um ástandið. Hefði kannski verið gott að þjóðin hefði vitkast aðeins fyrr og aldrei tekið mark á jakkafatafermingadrengjunum sem fengu að leika sér í íslenska bankakerfinu

OMG nú er ég búin að segja þetta

En það gerir ekkert hér koma fáir

Kær kveðja,

Lognmolla 

Guðrún Þorleifs, 5.10.2008 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband