Sýnileg, frýnileg, rýnileg, rennileg, skemmtileg?
Bara smá að spá í málin, er ég sýnileg eða ósýnileg eða bara svona frýnileg (veit ekkert hvað það þýðir )
Fékk nýju gleraugun í síðustu viku eftir óvenjulegt ævintýri sem aðrir lenda ekki í. En allar götur segi ykkur ekkert frá því heldur hitt að mín er alsæl með lonníetturnar sem að lokum lentu á nefinu auma. Eftir martraðir um dönsk gleraugu, hryllingsliti og skreytta arma þá fékk ég minimalisma armana mína frá Íslandi/Kastrup. Voða fín, en engin hefur haft á orði að ég sé með nýjar lonníettur. Skrítið eins og ég er ferlega fín með þessi sjást næstum ekki brillur Til að gera gott betra ákvað ég að fara í klippingu, alveg orðin loðin eins og rolla að vori enda ekki verið sneytt hár af mínu höfði síðan í síðustu Íslandsferð. Ég smellti mér því í klippingu hér einn daginn og fannst ég aldeilis hugguleg eftir þá aðgerð.
Það er þó skemmst frá því að segja að engin hefur sagt neitt um þetta mjög svo breytta útlit og nú velti ég því fyrir mér, hvort ég sé hreinlega orðin ósýnileg
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Föstudagur, 3. október 2008 | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Athugasemdir
Hehehe loksins kom færsla um eitthvað annað en helvítis kreppukjaftæði. Love you girl. Til hamingju með nýju brillerne, ég fór í laser heima og nú bara sé ég heiminn og heimurinn getur séð mig ef hann bara vill taka eftir mér. Klipping er bráðnauðsynleg, minnir mig á það að nú er tími til að panta aðgerð. Eigðu gíða helgi Guðrún mín.
Ía Jóhannsdóttir, 3.10.2008 kl. 20:07
Híhí! Þarf ekki að hafa myndir með svona færslu?
Baldvin 4.10.2008 kl. 08:03
Gott að geta séð heiminn Ía og klipping er möst fyrir fagrar snótir
Baldvin minn, sérðu ekki myndina?
hahahahaaaaaaaa
já, við megum ekki tína gleðinniGuðrún Þorleifs, 5.10.2008 kl. 07:18
Alveg merkilegt þegar engin tekur eftir svona drastískum útlitsbreytingum
Huld S. Ringsted, 5.10.2008 kl. 11:45
Til hamíngju með nýja útlitið, ert ábyggilega flott
Kristín Gunnarsdóttir, 5.10.2008 kl. 12:38
Takk fyrir innlitið og kvittið hjá mér. Aldeilis hetjur sem þið eruð að láta nöfn ykkar hér hjá bloggara sem umvefur sig sérlægni og hefur engar áhyggjur af krónunni ( allavega ekki hér). reyndar gæti þa ðstafað af því að mig undrar hvernig komið er fyrir íslensku efnahagslífi miðað við alla spekingiana sem koma fram á ritvöllin og tjá sig af miklum móð um ástandið. Hefði kannski verið gott að þjóðin hefði vitkast aðeins fyrr og aldrei tekið mark á jakkafatafermingadrengjunum sem fengu að leika sér í íslenska bankakerfinu
OMG nú er ég búin að segja þetta
En það gerir ekkert hér koma fáir
Kær kveðja,
LognmollaGuðrún Þorleifs, 5.10.2008 kl. 18:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.