Auðvitað er það tær snilld að nýta sér tæknina. Nú náðum við loksins talsambandi í gærkvöldi, prinsessan í Ammríkuhreppi og ég. Fyrir utan að bisa við 7 klukkustunda mun tóku tölvurnar okkar sig til og stríddu, svo það var fyrst í gær að við gátum báðar talað. Það var kominn tími á það og var ég frekar framlág í morgunn þegar ég skreiddist á lappir. Ætlaði eignlega ekki að trú því að klukkan væri orðin fótaferð því það var svo dimmt. Dem...
Það er frábært að upplifa hvað prinsessan er ánægð. Hún hrósar því mikið hve fólkið sé gott við hana. Hún og dóttirin á heimilinu ná vel saman og allir eru ánægðir. Ótrúlega gott að þetta passar allt svona fínt. Prinsessan hefur mikið að gera og dagarnir þjóta hjá. Hún sagði að veðrið væri gott en hún nyti þess lítið því skólinn er til 15.00 og þá tekur við ferðin heim og svo námið fyrir næsta dag, því allir dagar eru eins á stundaskránni!
Frábært hvað tölvutæknin gerir fjarlægð afstæða
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Þriðjudagur, 23. september 2008 (breytt kl. 09:43) | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Athugasemdir
Það er ómetanlegt að geta haft samband við börnin sín í gegn um þennan miðil. Við ég og dóttir mín tölum saman á hverjum degi á Skype og bara smá stund á hverjum degi gerir allan muninn.
Ía Jóhannsdóttir, 23.9.2008 kl. 21:23
Hef notað msn mikið í samskiptum við son minn á meðan hann bjó enn heima. Nú býr hann í Köben og við heyrumst sjaldnar en sjáumst oftar en áður
Frábært að geta haft svona samband við fólkið sitt þem er langt í burtu.Meira að segja mamma tölvuvæddist til að geta notað webcam
Guðrún Þorleifs, 24.9.2008 kl. 11:01
Vá, frábært hjá mömmu þinni, hún kallar nú heldur ekki allt ömmu sína
Mamma mín getur ekki einu sinni lært á gemsann sinn og er ennþá að setja video myndir öfugt inn í videotækið .....
Lilja G. Bolladóttir, 24.9.2008 kl. 21:22
ég nota skypið og það er gott !!
Kærleikshelgi til þín sendi ég
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 26.9.2008 kl. 15:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.