Er að velta því fyrir mér að þegar ég þarf að breyta minni flugáætlun, þá hef ég samband við viðkomandi flugfélag, fæ breytingu á flugáætluninni og borga fyrir það um fimm þúsund krónur. Mér finnst það ásættanlegt.
En... þegar flugfélagið þarf að breyta flugáætluninni minni, þá þarf það það ekki að borga mér krónu! Nú er það þannig að ég og mín fjölskylda erum talsvert á flugferðinni og því fylgir ákveðið skipulag. Vinna þarf að passa saman við ferðaáætlun, tíma þarf til að pakka niður og ná út á viðkomandi flugvöll sem er í nokkurra klukkustunda akstursleið frá heimilinu. Stundum er líka um áframhaldandi flug að ræða. Nú höfum við lent í breytingum af hálfu flugfélagsins fimm sinnum á 10 dögum. Þessar breytingar á flugáætlun flugfélagsins hafa borist okkur með vel innan við dags fyrirvara. Þetta hefur í öllum tilvikum komið sér illa fyrir okkur.
Við eigum, samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu, engan rétt á að krefja það um greiðslu vegna þessara breyttu flugáætlana. Mér finnst það óásættanlegt. Í einu tilvikinu var boðið upp á flugvél þar sem fólki var pakkað svo þétt í sætaraðir að ógerlegt var fyrir smávaxið fólk að hreyfa fæturna eða halla sætisbaki. Þá var vart pláss fyrir matarbakka. Ekki var heldur hægt að lesa blöðin nema halda þeim hátt yfir höfði sér.
Er þetta í lagi?
Hver er réttur neytenda í svona tilvikum í raun?
Getur þetta virkilega gengið svona?
Hvað finnst þér?
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkar: Bloggar, Ferðalög | Föstudagur, 1. ágúst 2008 (breytt kl. 19:38) | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Athugasemdir
Þessi bévítans flugfélög komast upp með allt of mikið því við erum svo háð þeim, réttlátt verður það aldrei. Hvenær ferður?? og hvenær fór Billi? það verður gaman að heyra í þér fljótlega. Allt annars bara gott af mér. Góða ferð elskuleg. Kann vel við síðuna þína.
Ásdís Sigurðardóttir, 1.8.2008 kl. 20:27
Nei þetta er sko ekki í lagi!
Prófaðu að tala við neytenda samtökin. Mér finnst þetta eigi að vera eins á báða bóga. Finnst það reyndar líka með margt annað, en þar sem ég er bara krækiber í þessu samfélagi og óframfærin í þokkabót, hef ég sjaldnast eitthvað um málin að segja.
En ertu sem sagt að koma heim??? Líst ljómandi á það og kemst í jólaskap við nýja útlitið á síðunni (sem er jákvætt)
Endalaust af knúsi á þig
Hulla Dan, 2.8.2008 kl. 05:34
Sæl elsku Guðrún mín og tusund þakkir fyrir sendinguna :) frétti af henni nokkrum dögum seinna :) algjört bull hvað þessi flugfélög eigi mikin rétt :) og ég sem er að verða föst hér á klakanum :) hafiðu það sem best kæra vinkona bestu kveðjur Dagga
Dagga 2.8.2008 kl. 09:06
starfandi fyrir flugfélag veit ég að margt getur komið upp á sem orsakar seinkanir. Svo sem farþegi sem ekki skilar sér, bilun á vél, seinkun á vél annars flugfélags (hefur þá með flugumferð að gera) o.sfrv. osfrv.
En breyting á áætlun og ÞAÐ 5X Á 10 DÖGUM. Þetta getur ekki staðist lagalega. Gaman væri að fá að vita af hvaða orsökum þeir hafa tekið þessar ákvarðanir um breytingar.
Jóna Á. Gísladóttir, 2.8.2008 kl. 15:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.