Áramótasund í Sønderborg 2007

Í dag fór fram Áramótasundið hér í Sønderborg.  Þetta sund hefur verið þreytt hér í nokkur ár og er forsprakki þess sundgarpurinn og hjólakappinn Fylkir. Í fyrstu var hann einn um þetta sund en síðan hefur bættst við í hetjuhópinn. Misjafnt er milli ára hve margir taka þátt. Í ár leit út fyrir að einungis 2 ætluðu að sýna þá hetjudáð að synda í 6° köldum sjónum, þeir Kjartan og Leifur.

Áramótasund 2007 001

Á elleftu stundu snaraði Snorri sér úr kuldagallanum og kom þá í ljós að kappinn var klár í sjósundið. Þar með voru sjósundshetjurnar orðnar 3 sem örkuðu niður í sjávarmálið. Heyrðist þá á ströndinni að baki þeim að tekin var ákvörðun! Vinur vor Sveinn svipti sig klæðum, það var nú eða aldrei ! Maðurinn að flytja heim á vordögum. Á naríunum smellti hann sér í hóp hinna víkinganna.

Áramótasund 2007 002

Á haf út fóru þeir...

 

Áramótasund 2007 006

...og til baka komust þeir  LoL

 

Kæru bloggvinir,

ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar

gleði og farsældar á nýju ári.

 

Wizard Wizard Wizard


 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sannar hetjur þarna á ferð.  Kær kveðja til þín líka kæra vinkona. Hlakka mikið til að hitta þig aftur á nýju ári.  Kær kveðja til fjölskyldunnar. Hafið það sem allra best.

                         

Ásdís Sigurðardóttir, 31.12.2007 kl. 23:35

2 identicon

Gleðilegt ár, Guðrún mín.    Megi nýtt ár hafa í för með sér gleði og frið og betri aðstæður fyrir foreldra þína.

Bibba 1.1.2008 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband