Hættuleg jólagjöf í handfarangri

Var að senda soninn af stað heim til Íslands. Hann tók innanlandsflugið héðan frá SDB. Hann var tekinn í öryggishliðinu hér. Með hættulega jólagjöf!!! Litla Rosendahl flösku! Honum var sagt að þetta morðvopn gæti hann ekki haft með í handfarangri, hann gæti slegið mann og annan með þessu. Ekki höfðum við áttað okkur á þessum möguleika en sjáum núna að loka verður öllum verslunum í fríhöfnum um allan heim. Það gengur ekki að hægt sé að kaupa morðvopn þar eftir að búið er að fara í gegnum stórkostlegt öryggiseftirlit við innritun. Sé alveg ljóslifandi fyrir mér nú hve hættuleg Stelton kaffikanna er svo eitthvað sé nefnt nú eða Bing og Gröndalh postulínið. OMG þetta gengur ekki! Er ekki best að setja alla í hand- og fótjárn við innritun og vera svo með færiband fyrir farþega líkt og töskur?

 

 

Kæra systir hvað varstu að pæla þegar þú keyptir gjöfina handa syni mínum???

 

Police Bandit Police

Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

...þetta snýst um innihaldið, ekki ílátið. En að láta sér detta í hug að fara með vökva í gegnum öryggishliðið eftir allar  viðvarirnar síðustu misseri!!! Hefði mátt reikna með þessu.

Páll Geir Bjarnason, 27.12.2007 kl. 18:21

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Án efa ertu þokkalega klókur Páll, en hvar var sagt að það væri vökvi í ílátinu? Þetta er forláta tóm flaska

Guðrún Þorleifs, 27.12.2007 kl. 21:21

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er alltaf aða komast betur og betur að því að það má bara ekki orðið neitt. Ég verð örugglega böstuð í næstu flugferð út fyrir skerið. Hef ekki flogið síðan 2001 og þá mátti allt.  Verð örugglega að fá leiðbeiningabækling svo ég verði ekki sett í fangelsi.  Kær kveðja í Als.

                          Happy New Year 2008 

Ásdís Sigurðardóttir, 27.12.2007 kl. 23:55

4 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Mesta og besta bloggkrúttið mitt, leitaðu til mín þegar þar að kemur. Ég hef reynsluna

Hlakka til að hitta þig í góðu tómi á nýju ári

Guðrún Þorleifs, 28.12.2007 kl. 00:13

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Gleðileg áramót til þín og þinna. vonandi farið þið í rólegheitum inn í hið nýja ár

Mahatma Gandhi sagði svo rétt Kærleikurinn er sterkasta aflið sem til er í heiminum og jafnframt hið hógværasta sem unnt er að hugsa sér.

Megir þú vera í Kærleikanum nú og alltaf.

AlheimsKærleikur til þín

Steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 30.12.2007 kl. 14:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband