Þvílíkur dagur að vakna til!
Sól og hiti og aðeins 16 apríl hér í DK
Dagurinn í gær var líka alveg met og um að gera að njóta þessara stunda í botn, því á morgunn kemur nýr dagur og þá með öðru veðri.( það segir veðurkallinn )
Í gær rölti ég með myndavélina mína um garinn. Geri þetta stundum. Finnst svo stórkostlegt að hafa þessi fallegu blóm og tré sem eru í garðinum mínum. Jurtir sem lifa af sambýli við mína ekki grænu fingur.
Það er gott fyrir svona konu eins og mig að getað ræktað eitthvað sem lifir af. Búin að reyna af veikum mætti að halda lífi í sumarblómum á Íslandinu mínu kæra, en án árangurs.
Hér er get ég Jebb, rosalega góð í rósum og sólblómum enda þessi blóm nú með mínum uppáháldsblómum.
Ég er einstaklega heppin með nágranna. Hans og Gréta rækta garðinn sinn og ég nýt útsýnisins úr innkeyrslunni minni
Þetta er "mömmutréð" þeirra:
Gréta fékk þetta tré í gjöf fyrir 30 árum á mæðradaginn frá sonum sínum.
Ég veit ekki hvað þetta tré heitir. Þarf þess ekki til að njóta fegurðar þess.
Í gær sprungu fyrstu blómin á kirsuberjatréinu mínu út:
Það leikur engin vafi á því að það verður nóg af kirsuberjum hér í júlí.
Við hliðina á kirsuberjatréinu mínu stendur plómutréið mitt.
Þessi tré eru gjöf frá ættingjum
Í morgunn þegar ég skoðaði það, kom það mér á óvart!
Aldrei hef ég séð annað eins af blómum á því í þessi 7 ár sem ég hef átt það!
Þvílík fyrirheit um plómur!
Stórkostlegt, því ég er góð í að gera plómugel
Þetta voru fréttir úr garðinum mínum í dag
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Mánudagur, 16. apríl 2007 | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Athugasemdir
Sonur minn er í CPH og er alltaf að segja mér frá góða veðrinu, kannski fer maður að stökkva yfir pollinn og kíkja á tré í blóma, væri ekki leiðinlegt.
Ásdís Sigurðardóttir, 16.4.2007 kl. 23:31
Ásdís mín, ég mæli með svoleiðis hoppum Á laugardaginn ætla ég að þeytast alla leið til Köben og hitta soninn, sem verður staddur þar í helgarferð. Þetta er næstum eins langt og þegar við fórum að sjá krúttið Knút Það er alltaf gaman að koma til Köben og ekki skemmir ef einhver manni kær er þar Gott veður er líka svo frábært fyrir líkama og sál
Guðrún Þorleifs, 17.4.2007 kl. 05:39
Þetta er örugglega sami veðurkallinn og hér hjá okkur. Lét okkur hafa þesssa líka bongóblíðu en í dag er aðeins skýjað og kaldara. Hitinn hrokkinn niður fyrir 25 stigin...alveg niður í 18 gráður. Ætla alls ekki að kverta..smelli á mig fartölvutöskunni með tölvunni í auðvitað og tölti uppá kaffihús og skrifa þar í dag.
Góða ferð til Köben!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.4.2007 kl. 08:39
katrín mín, vona að þessi góði kall komi sem fyrst aftur, líður svo vel þegar hann er hér Ég svo mikið eldsmerki að ég best í góðu veðri... spurning um hvort ég er nægilega vel staðsett enn???
Gangi þér vel á kaffihúsinu
Guðrún Þorleifs, 17.4.2007 kl. 08:59
já ég er alveg sammála þér þessi tími er dásamlegur, allt í blóma, líka í garðinum mínum. í Lejre
Ljós til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.4.2007 kl. 14:08
Blessuð Guðrún mín
Rakst á síðuna þína fyrir tilviljun og elskaði að sjá blómin á trjánum "okkar" Kveðja af Suðurnesjunum
Hjördís
Hjördís og co. 19.4.2007 kl. 18:02
Takk fyrir inlitið Hördís mín Tréin frá ykkur hafa aldeilis verið ánægjuauki hér í garðinum. Kirsuberjatréið hefur gefið ótrúlegt magn af kirsuberjum en plómutréið hefur farið hægar af stað. Ég á von á að það verði samt met plómusumar í á því í ár. Ég er orðin svo góð í að gera plómugel eftir að hafa séð um að nýta plómurnar á tréinu í Fredriksgård VErð að viðurkenna að það er líka kominn jarðaberjafílingur í gang hér og sennilega er það þetta milda vor sem veldur þessu öllu saman
Knús til ykkar
Guðrún Þorleifs, 20.4.2007 kl. 05:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.