Er það skýringinn?

"Aðbúnaður aldraðra er umhverfismál" segir Ómar Ragnarsson á bloggsíðunni sinni. Er þar komin skýringin á því í hvaða farvegi aðbúnaður aldraðra er í dag? Málaflokkurinn vistaður í röngu ráðaneyti? Á samt erfitt með að sjá þennan málaflokk fyrir mér í Umhverfisráðuneytinu. 

Er þetta ásættanlegt?

Í gærkvöldi heyrði ég í litlu systur minni. Hún var að spá í að heimsækja pabba. Hún var bara ekki viss um það hvort hún treysti sér í heimsóknina.

Afhverju var hún ekki viss?

Ástæðan fyrir óvissu hennar eru aðstæðurnar sem pabbi þarf að búa við á öldrunardeildinni sem hann er á.

Skoðum aðeins málið.

Pabbi sem er 74 ára hefur síðan í október 2003 þurft að vera á hjúkrunar- og ummönnunarstofnunum. Hann getur hreyft augun og andað.

Í dag er staðan sú að hann þarf að deila herbergi með bláókunnugum manni.  Mamma sem býr í eigin íbúð rétt við umönnunarstofnunina sem pabbi er á, fer til hans tvisvar á dag. Áður var pabbi á einbýli og þá var gott að geta komið og verið hjá honum í ró og næði. Sorgin sem fylgir svona veikindum er mikil og því gott fyrir fjölskylduna að hafa persónulegt afdrep. Þetta næði eða form fyrir "einkalíf" á stofnuninni er ekki lengur til staðar. 

Nú er það ekki svo að við höfum neitt persónulega á móti þeim manni sem þarf að deila herbergi með pabba, hans staða er jafn slæm. 

Í gær háttaði svo til að herbergisfélaginn var veikur, lá í rúminu og hóstaði út í eitt á milli þess sem hann kallar á dóttur sína. Það gerir hann á hverju kvöldi þegar búið er að setja hann upp í rúm. Það er sorglegt að þurfa að hlusta á þetta og enn erfiðara er það þegar maður situr hjá pabba og langar að eiga góða stund hjá honum.  Sú stund er trufluð af svona ytri aðstæðum sem ekki eru boðlegar neinum.  Þegar við bætist að blessað starfsfólkið á deildinni er meira en minna af erlendum uppruna og íslensku kunnátta þess misgóð, þá finnst mér stundum eins og ég sé komin í algerann bullheim þegar ég kem þarna. 

Dæmi: herbergisfélaginn liggur í rúminu sínu og kallar á dóttur sína: STÍNA, þá kemur indæla útlenska konan og klappar honum á vangann og segir: nei nei Jón minn, þú getur ekki fengið síma.

Eða gamli maðurinn sem gekk að einni starfskonunni og spurði: Skilur þú mig? Já, sagði konan sem var eini íslendingurinn á vaktinni. Getur þú tekið mig með til Íslands, spurði gamli maðurinn. Er von að hann spyrji?

Eru þetta ásættanlegar aðstæður fyrir fólkið okkar?

Getur þú hugsað þér að lenda í svona aðstæðum?

Hvað er til ráða? 

 

 


Nýtt starf?

Er mikið að velta því fyrir mér hvort ég sé ekki bara búin að finna mér nýjan starfsvettvang Smile Sá það í Pólandi að ég er voða klár í að hjálpa fólkið að versla Grin Staðfesti þetta svo í dag Wink Það er samt ekkert skrítið að maður sé komin með reynslu í að hjálpa fólki að versla eftir nærri átta ára búsetu í DK Joyful Því að auki hef ég tekið að mér barnafatainnkaup í stórum stíl fyrir fjölskylduna Wink Já og ekki má gleyma fatakaupum á eigin fjölskyldu Whistling Þarf kanski bara að skoða þetta betur Sideways

Pólland

Skrapp til Póllands í vikunni. Búin að ætla mér þangað aftur síðan ég kom þangað í helgarferð í september 2001. Þetta var í alla staði frábær ferð! Við ókum eftir nýrri glæsilegri hraðbraut sem var fáfarin og því greiðfær Wink Við uppgötvuðum fljótlega eftir að við komum hjá Lübeek að vegakortin okkar frá 2000 voru orðin ansi úrelt. Því ókum við bara sem leið lá niður eftir Smile Þar sem þetta var engin vegakortaferð vorum við heldur ekki með útprentaða leiðina til Stettin og enga leiðarlýsingu á hótelið. Ég er svo ferleg með  það að vera stundum alveg handviss um að ég bara rati þetta og það gekk eftir Grin Verð að viðurkenna að það kom mér smá á óvart að ég þyrfti ekket að skoða arkitektúrinn þarna í myrkrinu Happy Hótelið sem við vorum á var alveg ekta fínt, með frábærum mat og stutt í allt. Bíllinn okkar í öruggri gæslu og allt í góðu. Það var frábært að upplifa þá jákvæðu breytingu sem orðið hefur á þessum rúmu 5 árum sem liðin eru síðan ég kíkti síðast til Póllands. Fleirri hús hafa fengið yfirhalningu, mikil uppbygging nýrra húsa, fleirri nýlegir bílar og svona mætti lengi telja. Bara gaman að sjá þetta Smile Eftirtektarvert fannst mér hve margar pólskar konur eru vel klæddar og tilhafðar. Virkilega gaman að sjá eldri konur sem báru líkama sinn með reisn í huggulegum fötum geislandi af innrifegurð Smile Ungu stúlkurnar ganga greinilega mikið upp í að líta vel út og á hverju götuhorni og götu var að finna hárgreiðslu- og snyrtistofur og var mikið að gera á þeim öllum. Gott þegar fólk hefur efni á að dekra smá við sig. Mér fannst þetta frábær ferð, því það sem við sáum sýndi batnandi efnahag frá því sem var og vonandi tekst Pólverjum að vinna sig út úr fátæktinni sem hefur ríkt hjá þeim. Þeir eru duglegt fólk.

Gullbrúðkaup

Í dag eru liðin fimmtíu ár síðan pabbi og mamma gáfu hvort öðru heit um ævilanga tryggð við hvort annað í blíðu og stríðu. Þá voru þau ungt fólk með lífið framundan. Óbilandi ást þeirra og kærleikur í garð hvors annars hefur verið góður förunautur þeirra í gegnum lífið.
Það var gott að alast upp í því öryggi sem fylgdi kærleika þeirra, til hvors annars, til okkar barnanna, til foreldra þeirra, systkyna og þeirra fjölskyldna, ættingja og vina. Á heimili þeirra var jafnvægi og öryggi að finna. Við systkynin erum 4 og það er okkar mikla gæfa að hafa átt svo yndislega foreldra. Foreldra sem elskuðu okkur takmarkalaust, trúðu á okkur og hvöttu í hvívettna. Fyrir það vil ég þakka.
Hjónaband foreldra minna hefur verið farsæld stráð. Þar hafa þau sáð vel, hlúð að og uppskorið ríkulega.
Nú hin síðustu ár hefur illvígur sjúkdómur rænt föður minn því atgerfi sem hann bjó yfir. Rænt hann hreyfingu og tjáningu. Það er erfitt lífshlutverk að lenda í slíkri aðstöðu. En gæfa pabba var og er hún mamma. Af einstakri natni og ást annast hún hann alla daga. Skynjar allar hans þarfir betur en nokkur annar. Þar kemur ævilöng samtaka lífsganga að gagni.
Elsku mamma og pabbi hjartanlega til hamingju með þennan dag og til hamingju með að leiðir ykkar lágu saman á sínum tíma. Það var okkar gæfa hve vel ykkur tókst til.

« Fyrri síða | Næsta síða »

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Sept. 2025

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband