Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007
Þá styttist í leikinn og allt að verða klárt
Ég er að velta því fyrir mér hvernig morgunndagurinn verður hér í DK. Danskir "vinir" manns farnir að senda sms og láta vita að við fáum fyrir ferðina í kvöld. Uss, uss, uss! Verða þetta vinir á morgunn? Ef þeir tapa verða þeir óþolandi og ef við töpum... já, þá verða þeir líka óþolandi Þetta stefnir í mikið "ástand" hér.
Íslendingar í Sönderborg ætla að safnast saman á Loftinu og horfa þar á leikinn. Skilst mér að DRsyd verði á staðnum til að taka viðtal Ég veit ekki alveg hvað þeir eru að pæla, en sjórnarmeðlimir íslendingafélagsins voru vaktir eldsnemma í morgunn til að biðja um viðtal... Verði þeim bara að góðu Við VINNUM þennan leik!!!
ÁFRAM ÍSLAND ÁFRAM ÍSLAND ÁFRAM ÍSLAND
Bloggar | Þriðjudagur, 30. janúar 2007 (breytt kl. 17:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hér í Sönderborg er planað að hittast á Loftinu allir þeir sem geta og hafa áhuga
Engin spurning að þetta verður spennandi og skemmtilegt.
Hver sem úrslit verða er eitt víst, við verðum SIGURVEGARAR
Þetta veit ég, því ég hef fylgst með forvali stjórnmálaflokkanna á Íslandi. Þar eru næstum allir sigurvegarar, einstaka sál sem gengið hefur burt og talið sig rekna af vellinum.
Svo á morgunn verður sigur, hvernig svo sem úrslit fara. Í versta falli talar maður þá bara dönsku næsta dag eða svo
Bloggar | Mánudagur, 29. janúar 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Verð nú bara að benda ykkur á að kíkja á þessa síðu: http://www.inroomdesign.com/
Frábært framtak þarna á ferðinni Enginn spurning að það er þörf fyrir svona þjónustu í dag. Það hefur ekkert smáræði að segja hvernig lítur út í húsi sem maður er að spá í að kaupa. Sumir eru þannig að þeir sjá möguleikana í alveg ótrúlegustu húsum á meðan aðrir eru bara ekki þannig og því er svona þjónusta bara snilld.
Bloggar | Mánudagur, 29. janúar 2007 (breytt kl. 12:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eftir að ég opnaði þessa síðu hef ég mikið pælt í því hve bloggheimurinn er orðin breyttur síðan ég var að feta mig fyrst í þessum heimi Það var einhvern tímann árið 2002 að ég fór af stað með blogg. Mér var bent á þetta af vinkonu minni sem hafði verið með mér í námi þar sem við lærðum foritun, digitalmyndvinnslu og fleirra þessu tengt. Mér fanst gaman að prófa þetta, gat breytt síðunni eins og mig lysti með forritunarmálinu sem ég kunni þá Ég notaði svo síðuna til að skrifa um líf okkar fjölskyldunnar hér í DK. Lesendur síðunnar voru nánasta fjölskyldan. Svo tók ég mér pásu og opnaði aðra síðu og var hún íslensk. Fannst hún aðgengileg og fín. Hægt og rólega bættust í blogglesendahópinn vinir. Heimsóknir á síðuna hafa verið frá 10 og upp í 20 á dag. Gaman að því Svo gerist það að ég fer að verða svekt á því hve síðan er lengi að hlaðast inn, vesen að setja inn myndir, linka á efni, erfitt kommentakerfi sem reynt var að laga og erfitt að setja inn blogg snemma á morgnanna. Þetta varð svo til að ég ákvað að prófa moggabloggið. Sá að þar var að hrúgast inn fullt af fólki Nýjr bloggarar í massavís. Ráðlagt er að velja veitingastað sem er fjölmennur fremur en þann sem er fámennur. Með það í huga kom ég hingað. Þegar ég svo er komin hingað fer ég meira en fyrr að fylgjast með þessum moggabloggheimi og mig rak í rogastans þegar ég áttaði mig á þeirri rosalegu breytingu sem hefur átt sér stað í bloggheimum á þessum 5 árum sem ég hef verið þar Þetta er greinilega "inni" í dag og líklega komið til að vera og þróast áfram. Það er í sjálfu sér hið besta mál. Fólk er mikið til hætt að skrifa bréf og tjá sig og segja frá í því formi. Það er gott að geta sett hugsanir sínar og/eða skoðanir í ritað orð . Reyndar sýnist mér sumir svo önnum kafnir við að tjá sig, bæði á sinni síðu og annara að ég held helst að vinnudagur fólks á Íslandi hafi styttst til muna Nú gæti einhver hugsað sem svo að ég geti tútt um talað ég hafi greinilega eytt dágóðum tíma á netinu til að komast að þessari niðurstöðu og því get ég svarað játandi. Það kemur ekki til af góðu. Þetta er gott í bland með bókum og afþurrkun þegar hafa á hægt um sig
Nú standa samt mín bloggmál þannig að ég get í bili ekki bloggað inn á hina síðuna mína því þá fer athyglisverð færsla sem ég skrifaði og margir hafa lagt leið sína inn á síðuna til að lesa. ( margir á minn mælikvarða ) og gera enn. Hér á moggablogginu gengur svo mikið á í bloggfjörinu að mér verður um og ó...
Jamm, það er spurning um að draga djúpt að sér andann og vera með í fjörinu
Bloggar | Laugardagur, 27. janúar 2007 (breytt kl. 12:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ekki tókst frændum okkar dönum að "fóta " sig í umferðinni í gær. Þrátt fyrir nokkuð góðar óskir frá mér til danskra ökummanna urðu fjölda árekstrar í umferðinni í gær. Talið er að um eitthundrað bílar hafi lent í tveimur árekstrarhrinum í nágreni Køge í gær. Það er full ástæða til að halda sig heima þegar spáir snjó hér í DK.
Betur gekk með íslenska landsliðið, STRÁKANA OKKAR í gær. Þeir stóðu sig alveg frábærlega.
Settu mikla spennu í þetta með úrslitunum í leiknum á undan Ekki hef ég séð neinar stórfyrirsagnir í blöðum hér um þennan frábæra árangur enda enginn dani í liðinu
Eftir stendur að hér í DK er enn vetur og virðist svo munu verða næstu daga.
Bloggar | Þriðjudagur, 23. janúar 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Loksins varð mér að ósk minni. Það er komin snjór í DK
Eftir langvarandi rigningar og rokgusur, vöknuðum við hér í Suðursólarborg upp við smá snjókomu/slyddu. Ánægjuleg tilbreyting. Reyndar er danska þjóðin aldrei tilbúin fyrir snjókomu. Ástæðan núna, eru óvenju miklar rigningar undan farið sem hafa skapað flóðvandamál, innan dyra jafnt sem utan. Þar sem ég glími ekki við slíkt vandamál þá er mér nett sama og gleðst yfir þessum vetrarvotti
Þessu veðri er spáð næstu daga. Vona að dönskum ökumönnum gangi vel. Þeir eru alltaf svo hissa á því af hverju Norðmenn og Svíar hlægja að þeim þegar snjóar hér...
Í BT í dag voru tvær fyrirsagnir sem vöktu athygli mína:
"Fastfood med god samvittighed" og "Du kan spise dig barnløs"
Fyrri greinin fjallar um að ekki þurfi allur "hraðmatur" að vera óhollur, svo fremi að maður velji hollustu í hann. Hér er sérstaklega tiltekið pítabrauð með hollri áfyllingu
Verði ykkur að góðu.
Hin greinin fjallar um að nú hafi uppgötvast áður ókunn ástæða fyrir barnleysi fólks. Vísindamenn hafa sem sagt uppgötvað að skyndibitar og sælgæti minnka líkur á að kona verði þunguð. Ekki þarf nema smá magn af transfitu til að draga úr egglosi hjá konu. Þetta segja nýjar vísindarannsóknir.
Læt þetta duga úr Suðursólarborg, þar sem sólin skín og snjófölin sem var er fortíð og næringunni er borgið með hollustudrykkjum
Bloggar | Mánudagur, 22. janúar 2007 (breytt 30.1.2007 kl. 07:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Langar að prófa þetta bloggkerfi. Er búin að vera að blogga mismikið síðan 2002. Haldið mig lengst af á blog.central.is þar áður á blogspot.com.
Ástæðan fyrir því að ég er hér á nýjum slóðum er að kanna hvort auðveldara er að setja inn myndir og bera saman kosti og galla þessara tvegga kerfa áður en ég ákveð hvort ég flyt mig
Bloggar | Laugardagur, 20. janúar 2007 (breytt 21.1.2007 kl. 22:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson