Hef verið að velta því fyrir mér hvers vegna svo mikið er staldrað við og velt sér upp úr því við áramót, hvað hið nýja ár muni nú bera í skauti sér. Mér finnst það á skjön við það sem fleiri en ég erum að reyna, en það er að lifa í núinu og hafa ekki áhyggjur af því sem kannski verður ekki eða þannig
Nú skal þetta ekki skilið þannig að ég lifi bara fyrir líðandi stund og láti allt verkast sem vill, alls ekki! Mér finnst gott að hafa stjórn á því sem gerist og að hafa plan. Afar mikilvægt að hafa plan, því ef ekki er hægt að fara eftir planinu þá er alltaf hægt að breyta því
Nú í byrjun þessa árs er fjölskyldan komin með nokkur plön og vinnur að plönum. Ég er að setja saman í huga mér hreyfiplan fyrir árið og veigra mér við að setja það á blað að svo stöddu því þá er það orðið "raunverulegt" plan og ég verð að fara að fylgja því. Nenni því bara ekki alveg og hef sem afsökun kvef sem ég hélt að ég væri að fá fyrir jól
Ef ég fer aðeins í gegnum plön fjölskyldunnar svona það sem komið er þá er lítur þetta svona út eftir aldursröð:
1. Billi búin að panta tíma í röntgen og viðtal hjá bæklunarlækni, finnst verkirnir orðið fj... sárir að örðu leiti ætlar stráksi að standa sig.
2. Ég stefni á 1 spinningmaraþon í jan/ feb. 2 stórar hjólakeppnir í júní ( ætla að hafa Billa með í seinni keppninni) 1 afmæli í júlí ( slepp ekki við það ... dem... ) Svo ætla ég að klára námið um næstu jól og gera þúsund magaæfingar á viku
3. Baldvin Ósmann ætlar með Birnu sinni í þriggja mánaða ferð um Asíu í byrjun apríl, koma heim á klakann, pakka og flytja til Köben. ( hvað er að háskólanum hér? kommon )
Hér er sonurinn frábæri!
4. Ingunn Fjóla ætlar að halda áfram að vinna á Ib Rene Cario fram eftir árinu en í lok apríl ætlar hún að taka sér frí og fara í 6 vikur til Suður Ammríku með henni Tinu sem hún fór með til Ameríku á sínum tíma. Flýgur til Argentínu og heim frá Brasilíu. Hvort hún fer í skóla í haust veltur á því hvort hún finnur eitthvað sem hana langar að læra... og á meðan getur hún bara verið heima hjá ma og pa, svo gaman þar
Hér er Ingunn Pinngunn að fara í áramótapartý í vinnunni sinni
5. Litla prinsessan og örverpið hún Bryndís Björk verður á sínum elskaða eftirskóla þar til honum líkur í lok júní. Þá kemur hún heim í hreiðrið og hvílir sig smá áður en hún breiðir út vængina og heldur til Ameríku á High school í eitt ár!!! Já, litla barnið bara tilbúið að fara svona lengi að heiman
..og Bryndís Björk skellti sér líka á skauta í jólafríinu
Í lokin er svo mynd af okkur Billa frá gamlárskvöldi. Það var nú ekki auðvelt að ná af okkur mynd sem sýningarhæf gat talist á veraldarvefnum Heilsufar okkar var með þeim hætti að um hryllingsmyndir er frekar að ræða
BT var í smá stuði þegar ég setti upp Raisu húfuna mína og skellti því á sig hermannahúfunni. Annars var maður bara nettur á gamlárskvöld akandi um allan bæ með dæturnar í partý. Betra að hafa allt á hreinu og ekki minnkaði ábyrgðin við að hafa tvær vinkonur Bryndísar í gistingu á nýársnótt. Það gekk vel og vert að þakka hve maður er heppin með börnin sín.
Þetta voru svona mína pælingar við þessi Landvegamót, en víst er að ferðir okkar hjóna hingað og þangað í lofti, láði og legi verða nokkrar. En hvert og hvenær er óvíst....
Over and out...
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Föstudagur, 4. janúar 2008 (breytt kl. 20:41) | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Athugasemdir
Mikið svakalega er aktívt og efnilegt fólk í þinni fjölskyldu. Maður verður bara þreyttur. Ertu að djóka með maraþonið?
Jóna Á. Gísladóttir, 4.1.2008 kl. 19:25
Jóna, mér er full alvara. Ég er snarbiluð þegar kemur að spinningmaraþoni og ferlega sátt við flökkueðlið í krökkunum Gaman að sjá þig hér aftur snillan þín.
Heiða Björk vertu bara ánægð með að rölta í kringum raðhúsið. Til í að koma með þér á Esjuna. Þegar ég bjó í sveitinni þá hljóp ég í kringum heimilið mitt og stundum dró ég manninn minn með mér en það var helst ef hann var alveg að drepast og þurfti lífsnauðsynlega að bjarga einhverju... sem var þá helst um miðja nótt...
Einu sinni dró ég hann á eftir mér (var að hjálpa honum), rafmagnið hafði farið af stöðinni okkar, við vorum í náttsloppum, hann með riffil til að nota tækifærið og fæla hræfugl. Að auki var hann með magakveisu, slitinn vöðva í kálfa og sinadrátt í lærvöðva og konu sem þóttist vera að hjálpa honum og styðja út í dæluskúrana til að tékka á öllu en reyndin var að ég hló svo mikið af ástandinu á honum að ég var ekki til nokkurs gagns og síðan hefur hann sagt að ég hafi misst af miklu gríni þegar hann datt niður 5 metra á steingólf. OMG Ég á ekki til almennilega hegðun
Guðrún Þorleifs, 4.1.2008 kl. 20:14
Þú ert nú meiri stuðkellingin. Gaman að heyra í þér áðan, ég get staðfest að þú ert kvefuð mér finnst að Heiða eigi að koma með mér upp á Kögunarhól áður en hún reynir við Esjuna, ætla að ræða málið við hana. Æðislegar myndir og falleg börnin ykkar, mér líkar vel þetta flökkueðli í þeim. Kannski kem ég til Danmerkur í sumar. Knús á Billa og þig.
Ásdís Sigurðardóttir, 4.1.2008 kl. 21:55
OK þú á Heiða á Kögunarhól, taka myndir þar fyrir mig og svo er ég til í Esjuna, var að plana túr í Alpana áðan. Vil frekar halda upp á afmælið þannig(Billi vill partý, það veður í sumarhúsinu á Rangárbökkum, taka frá daginn og kvöldið ). Fór á Heklu þegar ég var fertug með Billa, Gunnari á Horninu og frú og nú eru Alparnir frá Þýskalandi til Austurríkis næsta fórnarlamb Varðandi börnin mín þá eru þau ótrúlega falleg miðað við... ...og í sumar kemur þú til DK en ekki þegar ég er á ISL eða DE. Svo mikið ætla ég að skipta mér af...
Knús á ykkur krúttmolarnir mínir
Guðrún Þorleifs, 4.1.2008 kl. 22:52
gaman að sjá myndir af ykkur fjölskyldunni. falleg eru börnin þín. það er einmitt svo ríkt í dönskum hálffullorðnum að ferðast um vóðan heim !
takk fyrir árið kæra kona, gleðst yfir samveru næsta ár.
AlheimsLjós til þín
Steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 5.1.2008 kl. 16:31
Gleðilegt ár og við bloggumst svo á nýju ári .
Gunnar Páll Gunnarsson, 6.1.2008 kl. 02:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.