Frábært, alveg frábært Nú veit ég hvað ég ætla að blogga um næst
Fékk þessa mega hugljómun í gær í spinning.
Ég var sem sagt í spinning í gær og einhverra hluta vegna, festist fókusinn hjá mér á vel þjálfuðum kálfunum á mér og sat athyglin föst á þessum ofurþjálfuðu vöðvum. Humm... það hlýtur að vera skýring á þessum flottu stólpum Allavega fannst mér að ég gæti reynt að hugsa um eitthvað vitrænna og fór að spá í hvað ég gæti gert skemmtilegt á blogginu og þá, og þá, þegar ég var búin að brenna hitaeiningu númer 187 gerðist það! Mér datt sem sagt í hug hvað ég get gert á blogginu!!! Meðan ég brenndi hitaeiningasysturnar frá 188 til 332 var ég að móta hugmyndina og eftir það hafði ég bara áhuga á að drífa mig heim og framkvæma. Örlítið bráðlæti í gangi
Þar sem það var ekki boði, átti eftir að drepa, afsakið brenna, fleiri hitaeiningasystur. Þegar ég hafði gert útaf við 553 hitaeiningasystur lá leiðin í sturtu, föt og svo heim, þaðan í matarborð til spinningþjálfarans. Smá salat og grænkál og kál og ostur (+ pizza og rauðvín )
Ég er ofurheppin þessa dagana. Eitt af mínu láni er að vera lítið lesin á moggabloggi. Hjúkket! Hingað koma bara mínir trúföstu lesendur. Takk fyrir það og takk aftur og fram og til baka og aftur fram. Vegna þess að þannig lendi ég ekki í tómu tjóni! Jebb... fá ömurleika komment frá nafnlausum sem ekki þola að ég skuli tala um hitaeiningar sem systur er skuli drepast ( af mér) saman ber blogg Huldar, þar sem einhver hálviti þoldi ekki að hún talaði um krúttlegu hvolpana sína sem stráka og stelpur. Eins finnst mér fínt að vera ekki með mótað blogg, því þá koma engir rassálfar og gera grín af mínum stíl. Hjúkket x2 dúdderídeibæ.
En málið er enn það, að ég fékk hugljómun sem ég útfærði þegar ég drap hitaeiningasysturnar í gær og ég mun setja það í framkvæmd fyrr en varði en verð þó að bíða smá... eða ekki
Úff... þið ættuð bara að vita hvað þetta er mikil snilld og líka annað sem mér datt í hug í gær.
Katrín, nú er bara að gera eitthvað við allar hugmyndirnar mínar eins og þú
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Föstudagur, 14. september 2007 | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Athugasemdir
hmmm ég þyrfti nú að fara að drífa mig í að drepa einhverjar hitaeiningasystur hér hjá mér!
En hvað þurfum við að bíða lengi eftir þessari snilldarhugmynd???
Huld S. Ringsted, 14.9.2007 kl. 20:06
He he...Huld, stutt á mælikvarða annara.
Guðrún Þorleifs, 14.9.2007 kl. 20:42
Huld, í fyrramálið þegar þú vaknar á Akureyri, þessum falleg stað, verð ég búin að hrinda hugmynd minni í framkvæmd
Guðrún Þorleifs, 14.9.2007 kl. 21:00
Bíð spennt!
Huld S. Ringsted, 14.9.2007 kl. 21:35
Ef þú bara vissir hversu langt hugmyndir mínar eru að draga mig akkúrat núna. Fékk eina sem lætur mig ekki í friði...hún er haldin hinum kyngimagnaða krafti og sú hin sama sem dróg mig og hele familien til englands. Og ég held að hún muni ekki gefa eftir tommu til að fá útrás. Hvar sú útrás endar mun svo koma í ljós.
Gvöööððð hvað ég öfunda þig að vera með svona stælta kálfa. Vildi að maginn á mér væri eins stæltur og sterkur!!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.9.2007 kl. 23:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.