Lán = að láni
Lán = gæfa
Fór aðeins að velta því fyrir mér í dag hve mikið lán/gæfa það er að eiga góða foreldra. Orsök þess að ég fór út í þennan þankagang er bloggið hennar Ásdísar bloggvinkonu minnar
Það er með mig sem hana að báðar höfum við alist upp hjá foreldrum sem hafa elskað okkur, stutt okkur, verið til til staðar á sínum forsendum og okkar forsendum, þ.e. gagnkvæm virðing og væntumþykja. Nú er mamma hennar mikið veik, tímaglasið hefur sinn gang. Ásdís er döpur og það er þess vegna sem ég var að hugsa þetta. Ástæða dapurleikans er fólginn í þeirri væntumþykju sem hún ber til móður sinnar. Allt sem móðirin hefur verið í lífi hennar í meðbyr og mótbyr. Gleði og sorg. Gott að geta verið leiður, dapur, sorgmæddur vegna slíks láns, slíkrar gæfu.
Ég hitt um daginn 10 ára snót sem komið hafði verið fyrir á heimili fyrir börn sem ekki geta verið á heimili foreldra sinna. Þessi litla snót sagði við mig eftir þriggja vikna dvöl á ókunnum stað: Hér vil ég alltaf vera. Ég varð hissa og spurði hvers vegna? Sú stutta sagði: hún mamma mín kann EKKI að vera mamma! Þegar barn afneitar foreldri sínu með slíkum hætti, hefur mikið og margt slæmt gerst.
Mín kynni af börnum er sú, að það er með ólíkindum hvað þau finna sig í að hálfu foreldra sinna. . .
Þessi snót á sennilega ekki eftir að vera döpur og leið eins og hún bloggvinkona mín er núna.
Það er gæfa að eiga góða foreldra
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Sunnudagur, 8. júlí 2007 | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Athugasemdir
Hæ elskan mín. Hjartans þakkir fyrir þessi fallegu orð, þú skilur mig alveg. Þetta verða erfiðir dagar, en hjörtu manna eru missterk og gamla mín hefur gott hjarta en málið er að hún er tilbúin að fara og finnst þetta orðið gott. Hún er allavega södd og sæl og innan um þá sem hún elskar mest.
Ásdís Sigurðardóttir, 8.7.2007 kl. 19:46
Tengdapabbi minn lést í febrúar sl. Það var mikil lífsreynsla. Hann var svo góður maður og við elskuðum hann svo mikið, en þarna var hann búin, tilbúin að fara. Ári áður var hann svo veikur að læknarnir hugðu honum ekki líf. Vidu setja það í hendur barna hans að ákveða hvernig framhaldið yrði. Þau völdu lífgjöf og það gaf honum heilt ár með okkur Þvílik tilfinning, upplifun, reynsla. . .
Mamma þín velur sitt og það ber að virða. Þykir svo vænt um þig mín kæra
Knús og famlag
Guðrún Þorleifs, 8.7.2007 kl. 20:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.