Ég fékk senda fréttaumfjöllun úr mbl.is áðan með fyrirspurn um hvort veður færi ekki batnandi næstu daga hér í DK. Ég kannaðist ekkert við þetta veður sem var þarna í fréttinni og fór því inn á veðursíður hér í DK til að kanna málið. Viti menn, það reyndist rétt hjá mbl.is það er snjókoma sumstaðar í DK
Svo skrítið sem það nú kann að vera þá er DK minna land en Ísland. Þó hér búi ögn fleirri
Það er skrítin staðreynd að jafnvel í litlu fjalllausu landi eins og DK getur gætt mismunandi veðurs.
Hér fyrir austan mig og vestan geysa oft mikil rok, fyrir norðan mig er oft mjög kalt og snjóasamara en hér hjá mér og mínum. Ástæðan er frábær staðsettning borgarinnar minnar og án efa eyðileggur nafn borgarinnar ekki fyrir.
Nú er það þannig með mig að ef ég ætti að velja vetrarveður þá veldi ég frekar snjó en rigningu. Það gefur því augaleið að ég er ekki heilluð af því vetrarveðri sem ég bý við. Greinilega ekki á allt kosið. En fátt er svo með öllu illt. Náttúran hér fær sína vökvun og það má teljast gott. Eða er það ekki? Ég held það allavega. Ég bý í rólegheita hverfi þar sem stór uppistaða íbúanna er eldri borgarar, nefnist slíkt hverfi gullbrúðkaupshverfi Ferlega krúttarlegt og kanski eitthvað sem er að hverfa? Humm... svona miðaða við skilnaðartíðni
En, aftur að rigningunni sem ég held að sé svo góð. Ég held að rigningin mín sé alveg svakalega góð fyrir suma nágranna mína, sem byrjuðu á nýársdag að slá garðana sína. Hlýtur að vera gott að grasflatirnar skrælni ekki eða hverfi í snjó. Hvernig á þá að slá? Er nefnilega að velta því fyrir mér af hverju sumir byrja að slá svona snemma og er helst á því að það sé byrjun á ellihrörnun frekar en skynsemi. Þá ályktun dreg ég af því að nágrannar mínir, Hans og Gréta eru ekki farin að slá garðinn sinn og Hans þó alger garðálfur!
Já, þetta var fræðilegur pistill um veðrirð og fl. í Dk
Myndirnar með "greininni" eru teknar á tveimur stöðum á Jótlandi í dag
Já, þetta var DK í dag.
Flokkur: Bloggar | Miðvikudagur, 21. febrúar 2007 (breytt kl. 17:04) | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.