Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Bankar

 

Ég er búin að átta mig á því að ég er mjög íhaldsöm á sumt eins og t.d. banka.  Hafði nú aldrei velt því fyrir mér. En nú er svo komið að mér er þessi staðreynd ljós og ég get ekki stoppað breytingaferli bankanna.

Ég hafði frá unglingsárum átt reikning í Búnaðarbankinn Futti mig bara um útibú þegar ég flutti út á land.

Ég flyt til DK og held áfram viðskiptum mínum við Búnaðarbankinn

Svo gerist það að ég fer að fá reikningsyfirlit send frá kb Samhliða þessari breytingu hætti ég að fá sent dagatal hingað í útlandið! Pokkers!!! Þetta pirraði mig smá.

Síðan um áramót hafa svo komið einstaka bréf  frá Kaupþing Nú gerist það, að ekki aðeins er ég hætt að fá dagatal, heldur má ég þakka fyrir að fá póstinn minn frá bankanum. Nú er póstnúmerið og heiti borgarinnar sem ég bý í horfið! Þetta fannst mér alls ekki frábært svo ég ákvað að hringja í bankann og biðja um að þetta yrði lagað. Ég hringdi í útibúsnúmerið og þegar svaraði þar eftir margar hringingar er það alókunnug rödd sem segir Kaupþing! Þar sem svo langur tími hafði liðið frá því ég sló símanúmerinu inn og svarað var, var ég alveg búin að gleyma þessu Kaupþingsdæmi og var bara að hringja í gamla bankann minn. Ég spurði konuna: hvað sagðir þú? Kaupþing sagði hún lítið glöð. Ó, já! Nú vildi ég vita meira, því ég kannaðist EKKERT við þessa rödd. Svo ég spyr er þetta á Hellu? Nei, sagði þessi lítið glaða, þetta er í Reykjavík. Þetta fannst mér fíflalegt og spyr hvort ekki sé hægt að hringja beint á Hellu, nei þú færð samband héðan. Takk fyrir Jón Topp!!! Bull er þetta. Á endanum komst ég í sambandi við bankann minn, en þvílíkt rugl.

Eftir á fór ég þó að hugsa að þetta símaþjónustudæmi Kaupþings og kanski annara fyrirtækja mætti setja upp þannig að í landshlutum með fá atvinnutækifæri væri það kjörið að vera með svona þjónustu fyrir hin ýmsu stórfyritki hér og úti í heimi.  

Dæmi: Vestfirðirnir. Þar er allur kvótinn meira eða minna farinn, fyrirtæki að fara þaðan eða hafa aldrei komið þangað. Svona símaþjónusta væri alveg brilljant dæmi þar. Þá væri hægt að útbúa þetta þannig að viðkomandi sæti bara í hlýjunni heima hjá sér, þrátt fyrir vetrarhökur utan dyra.  Svaraði í síma fyrir hin ýmsu stórfyrirtæki úti í hinum stóra heimi og gæfi svo samband við aðra álfu eða næsta hús. Brilljant. Ég á hugmyndina Halo


Fyrirsagnir

Um daginn keypti ég mér blað. Það er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi. Samt ætla ég að skrifa um það. Blaðið sem ég keypti heitir: PSYKOLOGI. Ástæða þess að ég keypti blaðið voru fyrirsagnirnar á forsíðu blaðsins. Mér fannst þær forvitnilegar og áhugaverðar. Skoðum þær:

1. 13 síðna efni: Samviskan bindur okkur saman. Humm...  hlýtur að vera einhver speki þar á ferðinni Halo

2. Fegurðarinngrip? Elskaðu þig og sparaðu peninga.  Alltaf áhugavert að spara peninga Joyful

3. Hangtu á fótunum og fáðu nudd.  Já, góðann daginn! Blóðið allt í hausnum eða hvað? Blush

4. Gleymdu Janteloven! Trendy að vera elite. Úbbsa deisy, bylting í danskri hugsun??? Shocking

5. Baðaðu þig glaða í Tyrkisk spa. Geðveikt spennandi eftir að hafa lesið um nudd og áhrif þess hér á blogginu Heart ...og ekki komist til Tyrklands um páskana ( bara fara seinna ) InLove

6. Stjórnaðu hræðslu þinni með hryllingsmyndum. Já, einmitt eitthvað fyrir mig sem þori bara ekki að horfa á hryllingsmyndir. Greinilega eitthvað sem ég hef misst af... W00t

7. Móðurhlutverkið er líka sásauki. Humm... líkamlegur??? Hverju er maður að missa af??? Gasp

8. Viðtal við Isabella Miehe-Renard - Ég var hrædd um að verða afhjúpuð.  Jæja, blessuð snótinn hvað ætli hún hafi gert af sér??? FootinMouth

Eftir að hafa kíkt á þessar fyrirsagnir ákvað ég að það væri gott fyrir mig að eignast þetta blað og jafnvel lesa það. Sem sagt, svo gert og blaðið varð mitt. Einhverra hluta vegna lá blaðið í einhverja daga í fínum bunka hér heima. Kanski var það óttinn við að verða að fara að horfa á hryllingsmyndir til að ná stjórn á óttanum, sem hélt aftur af mér að fara að lesa blaðið eða óttin við að samviskan færi nú að binda mig við eitthvað fólk út í bæ. Hvað veit ég? Ég er bara svona næstum venjuleg manneskja sem skilur ekki allt.

Eftir að hafa átt blaðið ólesið í einhverja daga, ákvað ég að taka mig til og fara að lesa það. Komast að þessu með samviskuna, fegurðarinngripið, hanga á hvolfi dæmið og hvort ég gæti leyft mér að verða elite hér í DK. 

Ég opnaði blaðið, hljóp á stultum yfir ritstjórapistilinn. Frá augu mín sáu að hann var leiðinlegur. Fletti yfir á næstu síðu og þar var "Kort nyt..."  stóð nú ekkert um það á forsíðunni en þarna sá ég að Ólsen bróðinn, þessi sem drakk ( áfengi) er búin að gefa út bók um hvað hann var slæmur. Já, já. Þín þraut.

Svo var þarna auglýsing um Mediativan cd sem maður verður víst bara að eiga til að geta sofnað á kvöldin. Humm...  vitlausa ég á ekki svona cd en sofna samt. Hvernig er hægt að vera svona sljór? Á næstu opnu hélt "Kort nýtt" áfram...

Bókakynnig: Sjáfsþroskun  fyrir hina heilu manneskju - frá en til og. Greinilega mjög góð bók fyrir okkur frústereðu nútímaviðundrin sem ekki höfum stjórn á neinu. Þessi bók á að hjálp fólki að sleppa neikvæðum bindingum við fortíðina og framtíðina. Taka ábyrgð á eigin lífi ( er þetta ekki töff söluefni?) Í bókinni er líka að finna lausn á því hvernig maður nær því að vera heill, í jafnvægi og lífsglaður. Greinilega bók inn á hvert heimili! Svo var eitthvað bla bla bla... um mikilvægi hláturs og fl.

Svo kom viðtalið við Isabella. Hljóp yfir það, veit ekkert hver hún er og nenni ekki að setja mig inn í hennar vandamál. Bless við það. Fletti, fletti og aftur "Kort nýt" Þarna var kynntur cd um andlega lestarferð í tónum. Samblanda af allra þjóðatónlist. já, já.   Þar fyrir neðan var manni sagt að stoppa og fara á námskeið til að finna út hvernig maður gæti þroskað hitt eða þetta í sér. Greinilega mikilvægt. Maður er bara ekki alveg með á nótunum...

Nú var komið að greininni: Hengdu þig til vellíðunar.  Þarna voru á ferðinni gamlir hippar sem léku sér að því að hengja hvern annan upp í rjáfur og láta viðkomandi svo síga og rísa niður. Húsið mitt er ekki með næga lofthæð fyrir svona æfingar og hrædd er ég um að nágrönnum mínum hér í gullbrúðkaupshverfinu mundi bregða í brún og svelgjast á snafsi, ef ég léti minn ektamann hengja mig upp í reyniviðartréið mitt hér úti í garði. Sleppa þessu... 

Svo kom aftur "Kort nýt" ( held það hafi alveg gleymst að kynna það á forsiðunni). Hér var fjallað um í 10 atriðum að passa upp á hugsanirnar. Verð að lesa það seinna...

Svo kom grein um Sögurúllettuna: við höldum drauginum frá hurðinni. Las það ekki, var ekki kynnt á forsíðunni. Les það kanski seinna þegar ég er búin með símaskránna.

Aftur kom "Kort nyt" Jæja, nú var það Wellness fyrir líkama og sál! Æi.. sorrý. þetta var ekki um Herbalife og því hafði ég ekki áhuga. Nú var komið að greininni um Samviskuna í heilanum. Verð að segja að þegar hér var komið sögu, var ég búin að lesa svo mikið í "Kort nýt" að ég nennti bara ekki að lesa þetta. Ég er sennilega samviskulaus. Þarf að skoða það nánar... seinna.   Mitt í þessari samviskuumfjöllun rak ég augun í bókakynningu! Þarna var viðtal við unga blaðakonu sem átti kærasta sem lent hafði í slysi og fengið heilaskemmtir. Hún hafði ákveðið að vera áfram í sambandinu við hann þó hann væri breyttur maður. Já góðann daginn! Hver breytist ekki við slys? Gæti nú sjálf skrifað bók um það eða grein á tré. Smá reynsla á bakinu hér...  En, aumingja stúlkan var þreytuleg á myndinni og á alla mína samúð. Án efa fín bók sem hún hefur sett þarna saman. Sennilega þarf ég bara að horfa á hryllingsmynd og lesa svo bókina... Greinina um gildi áhorfs á hryllingsmyndir geymi ég til betri tíma. 

Ég var nú alveg að gefast upp á að fletta þessu fína blaði þegar ég kom að viðtali við Stig Ross. Mátti til með að lesa það og komst að því að þetta var bókakynning. Kappinn sem syngur svo vel hefur 48 tíma í sólahringnum segir hann og er búin að þróa nýja aðferð til að vera til. Held ég fari á bókasafnið og fái bókina lánaða. Hann segist hafa valið að vera til staðar, ekki fjarlægur. Kanski maður verði til frásagnar um þá tækni eftir lestur bókarinnar. 

Nú nennti ég eiginlega alls ekki að lesa meira í þessu blaði en rak þá augun í fyrirsögnina að móðurhlutverkið væri sársaukafullt. Þetta var viðtal við kvennprest og móður. Hún hlýtur að vita um hvað hún er að tóna, les það kanski seinna. Rak nefnilega augun í aðra bók sem mig langar að lesa.  Þú ert það sem þú hugsar - Hin nýja kenning um leiðina til árangus.  Gæti verið áhugaverð lesnig. Skoða það.

Nú, svo sé ég hér, að ég þarf að lesa seinni hlutann af blaðinu, því þar er fjallað um nýtt hreyfikerfi. Held ég þurfi að skoða hvort það er eitthvað fyrir mig, því eftir að ég datt á hlaupabrettinu í okt. sl. þegar ég var að horfa á fallhlífastökkið, hef ég ekki getað notað hlaupaskóna mína, þó þeir séu ansi góðir...  

Já, kanski á ég bara eftir að lesa allt blaðið? Held að ég hafi bara dittið og dottið í auglýsingarnar og stuttu pistlana...

Afhverju ætli það sé???? 

Fyrirsagnir - hvað??? 


Berlín

Skellti mér í nokkra daga með fjölskylduna til Berlínar.

Aldeilis frábær ferð.

Borgin er stórkostleg og stórmerkileg!

119-1948_IMG Berlin 012

 

Ótrúleg saga og  ótrúlegar andstæður sem mætast.

Fortíðin, nútíðin og framtíðin, allt samofið í stórkostlegri upplifun.

Staðfestingin á því að  vilji og kjarkur geta breytt miklu sést alls staðar.

Mæli með Berlín Smile

 

 

 

Ekki var hægt að fara til Berlínar án þess að koma við í dýragarðinum og heilsa upp á öll dýrin þar. Þau voru nú ansi afslöppuð greyin.

Ekkert stress á þeim Wink

 

 
 
 

  

Aðalsjarmur dýragarðsins var samt litli Knutur, sem var til sýnis 2 tíma á dag. Ótrúlegur fjöldi fólks stóð í langri biðröð til að sjá litla krúttið.

Mæli með Berlín! 


Úti í vorinu

Skellti mér um daginn út að hitta vorið við ströndina og skóginn.

Sólin skein og ferskur vindurinn blés af hafi. Skógurinn allur að lifna við.

 

118-1876_IMG
Mér finnst svo falleg öll tréin sem byrja á að springa út með blómum áður en laufið tekur við.

 

118-1872_IMG
Ströndin ber merki hafsins og rætur tránna eru víða naktar.
En tréin lifa samt þrátt fyrir harðræðið.

 

118-1871_IMG
  Þeir eru margir skrítnir kvistirnir við ströndina.
Einhvern vegin finnst mér eins og þessar rætur hlægi bara af  örlögum sínum.
 
 
118-1874_IMG 
Þrátt fyrir rokið sem blés af hafi var ákveðin kyrrð og ró í fjöruborðinu.
Lífið gekk sin vana gang.
Traktorinn í fjöruborðin beið þolinmóður eftir að eigandinn kæmi að landi með afla dagsins.
  
 
 118-1873_IMG
 Í fjöruborðinu var þessi steinn sem bauð upp á sæti og gott útsýni. 
 
 
 
118-1877_IMG
 Á ströndinni stóð þetta tré.
Sýndi og sannaði að ef ræturnar eru sterkar þá hagga því enginn áföll.
 
 
 
118-1878_IMG
 Gamli traktorinn fékk þolinmæði sýna launaða þegar eigandinn kom á litla bátnum sínum með björg í búið.
 
 
Lífið á ströndinni minnir mann á gildi þolinmæði og þrautseygju.
Staðreyndirnar blasa við manni allstaðar.
 
Meira að segja óvæntir hlutir geta leynst á órúlegustu stöðum og enginn getur sagt til um hvernig þeir eru þangað komnir. En þú veist ekki að þeir eru þarna ef þú ert ekki með augu þín opin fyrir því sem er í kringum þig.
 
 
118-1880_IMG
  Inni rótarholu þessa trés fann ég lítð bleikt plastskrúfjárn.
Ég veit ekki hvernig það komst þangað, ég veit bara að í dag er útilokað að ná því í burtu.

 

118-1879_IMG
Í dag ætla ég aftur í niður á strönd.

Ég er búin að bjóða manninum mínum og dætrum í hjólatúr í skóginn með kakó.

Ég ætla að sýna þeim þennan leynistað og leyfa þeim að undra sig á því hvernig í ósköpunum litla bleika skrúfjárnið lenti þarna...


 

 


« Fyrri síða

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband