Sit hér í rólegheitum í hverfinu órólega. Skrapp meira að segja niður á Nörreport að versla. Allt rólegt. Ekkert að gerast fyrir utan eðlilega hreyfingu á fólki og bílum, fram og til baka.
Gott mál.
Skellti mér á fyrstu æfinguna eftir uppskurðinn. (hér er ekki niðurskurður) Ákvað að taka innanhússæfingu þar sem enn er kalt í lofti þó vorið sé sannarlega á leiðinni. Valdi að taka eina góða æfingu í IKEA. Gekk fínt, fyrir utan smá verki og einbeitingarskort. Það gerir samt ekkert, get bara farið aftur í IKEA seinna og einbeitt mér betur þá Kannski þegar búðin er lokuð, svo ekki verði gengið svona utan í mig og á mig. Er svo "sart" í augnablikinu og kannski líka ögn "langsom" og "ved siden af".
Það er frábært að geta leyft sér að fylgja svona skyndihugmynd og drifið sig af stað þangað sem mann langar. Síðast þegar við tókum svona snögga ákvörðun skelltum við okkur til Berlínar að sjá maraþonið þar. Frábær ferð líka.
Ég hef svo í hvíldarhléum mínum skipulagt aðrar ferðir. Það er jú nauðsynlegt fyrir ferðafuðu að ferðast og sjá heiminn nær og fær. Ætli ég kjósi ekki bara á Íslandi, svona til að vera viss um að mitt atkvæði komist á réttan stað.
Já kæru bloggvinir, lífið er ævintýri sem á að njóta. Núið er nú
Ja det kan mærkes at man liver.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Sunnudagur, 1. mars 2009 | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Athugasemdir
IKEA er eki í lagi með þig!!!!!!!!!!!!!!! Ekki að ræða það að ég fari þangað þegar ég hf fótaferð hehehhe.... annars langar mig svo mikið að vita hvað var verið að krukka í þig. Vonandi ekkert alvarlegt Guðrún mín.
Ía Jóhannsdóttir, 1.3.2009 kl. 21:18
Æ Guðrún mín. Vona að þú farir nú varleg með þig -IKEA er kannski full massíft fyrir fyrsta dag í endurhæfingu. En kjarkinn skortir greinilega ekki
, 1.3.2009 kl. 21:28
Sammála, IKEA á sunnudegi og allir nýbúnir að fá útborgað er ekki staður fyrir járnlausa járnlady í endurhæfingu.
Hef það betra hér upp í sofa við tölvuna sem ég sappa á, í órtrúlegu eyrðarleysi. Nenni ekki að lesa né festi hugann við neitt. Þetta hlýtur að lagast því ég elska að lesa
Guðrún Þorleifs, 1.3.2009 kl. 21:57
gangi þér vel í endurhæfingunni, verst að tívolí er ekki opið, það væri sko góð einbeiting í því hehe
KærleiksLjós til þín
SteinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 2.3.2009 kl. 07:55
Það var lagið, Guðrún mín, maður á að njóta lífsins en ég er nú sammála sumum að Ikea er líklega ekki rétti staðurinn..... ég fer aðeins í Ikea af illri nauðsyn og hún skal vera mjög ill
Gangi þér nú vel í endurhæfingunni og mundu, eitt skref í einu.... góðir hlutir gerast hægt
Lilja G. Bolladóttir, 2.3.2009 kl. 10:48
Gangi tér vel í endurhæfingunni.Fardu samt vel med tig min kæra.
Hilsen fra Hyggestuen ,Jyderup
Gudrún Hauksdótttir, 2.3.2009 kl. 11:09
Steina, Tívolíð... þú segir nokkuð. Hefði sennilega klárað mig
viðurkenni fúslega að IKEA um mánaðarmót, blóðlítil og auli er ekki sniðugt. En maður leggur ýmislegt á sig til að gleðja börnin sín
Í dag tók ég Strikið sem æfingaplan. Það var fínt. Fámennt og gott
Hef svo bara dundað mér hér heima hjá syninum við að versla á netinu. Reynir ekkert á mann
Knús á ykkur
Guðrún Þorleifs, 2.3.2009 kl. 22:27
Farðu vel með þig elskuleg ;)
Aprílrós, 9.3.2009 kl. 00:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.