Er bara að velta fyrir mér hvort ég "hangi " í lausu lofti eða hvort ég sé í "hlutlausum" gír. Er í svona "stuði" þar sem mér verður minna úr verki en hugsun Er til dæmis í huga mér búin að skipuleggja breytingar hér innan húss. Komin lítið lengra en að skila Stínu nabo rúminu sem fósturbarnið var með. Gerði það á mánudagskvöldið. Fattaði í gærkvöldi um níu leitið að ekkert meira hafði gerst í þessum breytingum svo ég tengdi ryksuguna og lét hana vinna sitt verk, flutti kommóðu frá einum vegg til annars. Skellti mér svo út á pall með mínum manni og horfði í lotningarkenndri hrifningu á ljósin sem hann er búin að setja í handriðið á pallinum okkar.
Já, ég hef nú ekki sagt neitt að ráði frá þessum palli og það er nú eiginlega bömmer. Þannig er að við erum að byggja "íslenskan" pall í kringum hálft húsið. Hann er með handriði og ljósum. Á pallinum eru útskot og eitt og annað sem gerir hann fínan. Um síðustu helgi vorum við í götugrilli og þá áttuðum við okkur á, að nágrannar okkar hér í götunni hafa fylgst vel með þessum framkvæmdum. Þykir pallurinn stór og flottur. Já, alveg ótrúlega stór Við vorum ekkert að segja að hann á eftir að stækka, það mun líklega ekki fara fram hjá nokkrum manni þar sem stækkunin kemur í átt að innkeyrslunni. Blessað fólkið botnar hvort sem er ekkert í okkur
En aftur að því að vera í lausu lofti eða í hlutlausum gír. Gerist ekkert hjá mér. Bara hugsa. úff...
Er að velta því fyrir mér hvort þetta lagist þegar ég er búin að fara til Tyrklands. Er kannski svona truflandi að vera alveg að fara þangað og svo ekki. Hélt að ég væri að fara þangað á mánudagskvöldið, vissi það um eitt þann dag að svo var ekki. Nú er ég sjálf búin að ákveða að ég fer í fyrsta lagi á laugardaginn sama hvað "Flösku Dísa" gerir.
Best að hætta þessari tímaeyðslu og fara að hengja út þvott eða var ég að hugsa um að tína tómata????
Sennilega tæmi ég bara uppþvottavélina
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkar: Bloggar, Ferðalög, Lífstíll | Miðvikudagur, 10. september 2008 | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Athugasemdir
Gangi þér vel í öllu þessu
Kristín Gunnarsdóttir, 10.9.2008 kl. 15:03
Segðu Ef ég gerði nu eitthvað af viti
Guðrún Þorleifs, 10.9.2008 kl. 15:27
halló mín kæra, varst það þú sem skrifaðir kveðju til mín í gestabókina. gaman hefði nú verið að hitta þig kannski næst.
knús og kærleikur til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 10.9.2008 kl. 16:47
Já, Steina ég leit við og hafði gaman af. Gat bara ekki komið á laugardeginn , sem hefði verið enn skemmtilegra
Guðrún Þorleifs, 10.9.2008 kl. 18:05
Kannast við þetta, að hanga í lausu lofti.
Er á milli verka..... Alltaf.
Pallurinn er rosalega flottur, er ekkert hissa að hann vekji athygli.
Vona að fari eitthvað að skýrast hjá þér.
Knús
Hulla Dan, 10.9.2008 kl. 19:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.