Skelltum okkur í smá bíltúr í gær að leita að blómum. Leitin bar ekki árangur svo ég notaði eigin blóm í verkefnið. Þessi bíltúr var frábær. Planið var að fara út í búð og kaupa páskaliljur og fórum við hjónin og prinsessan af stað. Ákváðum að fara í bíltúr um nýju húsahverfin hér því ég þarf að huga að því í tíma hvernig sumarhúsið mitt á að líta út. Þetta sem ég ætla að teikna sem lokaverkefni. Best að byrja að spá í tíma svo maður geti skipt nógu oft um skoðun til að að komast að réttri niðurstöðu eða þannig Þegar við vorum á heimleið lentum við fyrir algera tilviljun inn í "bílaskrúðgöngu". Ó, já, . . . alveg satt. Um borgina okkar ók flokkur bíla, með blikkljósin á, veifandi rauðum fána með svörtum fugli, bílflauturnar hljómuðu og þessi að mér finnst arabíska tónlist ómaði út um opnar rúðurnar. Fólk hrópaði og kallaði og mikil gleði í gangi. Við vorum smá stund að átta okkur á því hvað var í gangi, æddum heim að ná í myndavél og íslenska fánann. Alltaf að vera með. Ó já. Þetta með fánan má draga frá en kom til tals. Svo brunuðum við niður í bæ til að upplifa þessa gleði Króatíumanna og taka myndir af þessum atburð. Við Ráðhúsið okkar söfnuðust þeir saman um 200 manns, dönsuðu færeyska hringdansa við arabíska tónlist. Voða gaman hjá þeim og óska ég þessu ríki og þegnum þess, alls hins besta. Ekki veitir af þar sem atvinnuleysi þar er um 70 til 80% og íbúar þessa lands búnir að upplifa skelfingar sem eyðileggja sálina.
Eftir að hafa fylgst með þessari gleði skelltum við okkur á Ib Rene Cario og fengum okkur kaffi og kakó hjá Ingunni Pingunni sem var að vinna.
Já, svona geta upplifanirnar komið til manns án þess að maður viti að þeirra er von. Við sem fórum út að kaupa blóm sem ekki fékkst, og skoða arkitektúr, enduðum með að upplifa gleði ríkisborgara hinnar nú sjálfstæðu Króatíu.
Flokkur: Lífstíll | Mánudagur, 18. febrúar 2008 (breytt kl. 11:21) | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Athugasemdir
Það er bara stuð á minni, frábært. Er farið að vora?? vildi að ég gæti skroppið í heimsókn.
Ásdís Sigurðardóttir, 18.2.2008 kl. 11:37
Í garðinum mínum er tré sem blómstrar gulum blómum í kringum páska, brumið á því er að byrja að opnast . . .
Alveg skyldi ég taka á móti þér í heimsókn
Guðrún Þorleifs, 18.2.2008 kl. 13:12
Ohh, ég sakna minnar Danmerkur..... - alltaf eitthvað að gerast á götunum! Það eru nú ýmsir kostir sem fylgja fjölmenningarlegu samfélagi, eins og þessi, að upplifa gleði og fögnuð sumra nýbúa við nýlegu ástandi í sínu gamla ríki. Bara að við gætum nú öll lifað saman í sátt og samlyndi - að öll dýrin í skóginum gætu verið vinir
Lilja G. Bolladóttir, 19.2.2008 kl. 21:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.