Mikil skynsemi eða þreyta í skrokk, réði því að í dag var ekki farið í ræktina. Hvorki klukkan 6, 7 eða 8 Ég var svo þreytt eftir 3 spinningtíma í þessari viku. Fór í spinning mánudag, miðvikudag og fimmtudag. Í gær tók ég hressilega á með hraða og þyngd. Það var erfitt en skemmtilegt :) Eftir svona átök er heit sturta góð. Þetta þýðir að ég fór ekki sturtu í morgunn og fyrir það "geldur" hár mitt og útlit. Líkist ég nú Rassálfi um hausinn og verð að sætta mig við að hvorki heitur blástur né sléttujárn geta hér bætt nokkuð. Því mun ég dansa í gegnum þennan dag sem Rassálfur
Mikið finn ég hvað mér hefur farið aftur við að vera að eyða svona miklum tíma í fyrir jól í vinnu í stað þess að þeysast í gegnum lífið á hjóli, í spinning eða göngu.
Sussu svei...
Nú er það bara fjörðið sem fær að ráða.
Over and out.
Er farin út að dansa við lífið.
Eigið góðan dag krúttmolarnir mínir.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Föstudagur, 11. janúar 2008 | Facebook
Nýjustu færslur
- 13.12.2009 Spurt er:
- 14.8.2009 Gengið á rétt margra.
- 9.7.2009 Vorganga
- 30.6.2009 The driver ;)
- 28.6.2009 Á ferðinni :)
- 22.6.2009 Smá myndasyrpa
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Bryndís Björk Brynjólfsdóttir
- Hulla Dan
- Ía Jóhannsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lilja G. Bolladóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Maddý
- Vilma Kristín
- Anna Guðný
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Heiða Þórðar
- Helga Magnúsdóttir
- Aprílrós
- Birna Guðmundsdóttir
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Jóna Á. Gísladóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Sigga Hjólína
- Kristín Einarsdóttir
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Hrannar Baldursson
- Sólskinsdrengurinn
- Dana María Ólafsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
Athugasemdir
Bjóddu mér upp í dans eigðu góða helgi. Hekla er slök.
Ásdís Sigurðardóttir, 11.1.2008 kl. 14:16
Það hefði nú aldeilis verið frábært að hafa þig með okkur prinsessunni í dag. Við runnum ljúfan dans í gegnum rigningu og þungskýjað veðurfar. Hún fór í viðtal og nú er það pottþétt, næsta skólaár prinsessunnar verður í höll í ammríkuhreppi. Gaman það. Þarf örugglega að skreppa til Manhattan þá og vonandi á ég alvöru myndavél þá
Billi er e.h. að tala um Tæland en ég missi bara heyrnina. Nú er það Pólland eftir viku og svo er planið að byrja að plana Tyrkland á morgunn. Fósturbarnið loksins komið þaðan, mamma hennar búin að leigja íbúð þar og ég ætla bara að setja mig inn í hvað er að gerast þarna niður frá. Ekki læt ég e.h. Kúdískan múslima sem mamman var að giftast þar, gifta fósturbarnið mitt þar niður frá. Já, það er margt sem gerist í lífi manns
Guðrún Þorleifs, 11.1.2008 kl. 20:49
Dugnaðurinn í þér!! gætirðu ekki smitað mig smá af allri þessari orku?? er eitthvað voðalega þunglamaleg þessa dagana
Huld S. Ringsted, 11.1.2008 kl. 21:06
Huld mín, hvað ertu að gera fyrir ÞIG?
Þú veist að við getum ekki hjálpað öðrum og sinnt vel, ef við hlúum ekki fyrst að okkur sjálfum. Þetta erum við minnt á í hvert skipti sem við förum í flugvél Ég er búin að ná því að líta í spegil og vera sátt. Saman ber hárgreiðslu dagsins. Bara frábært að vera Rassálfur einn dag eða tvo var það í gær líka. Fannst ég eins og persóna úr ævintýri eftir Astrid Lindgren þegar ég leit í speglana í spinningsalnum í gær. Svo mikið "krútt" Einhvertímann hefði ég bara verið alveg ómöguleg yfir þessu vonlausa lúkki, skellt hausnum undir vatnsbunu, makað sjampói í og reddað ímyndinni þannig. þann daginn
Varðandi allt sem þú ert að berjast í, þá mundu að hugsa hvað er það versta sem getur gerst. Gefðu þér séns, þarf ekki að kosta mikið. Ég fór út að ganga/hlaupa í skóginum, það var gott fyrir mig. Finndu það sem gefur þér og hleður. ... og aftur, það er líklegt að það sem gefur þér e.h. kosti ekki mikið í peningum heldur í tíma og að vera meðvituð um það.
Guðrún Þorleifs, 11.1.2008 kl. 21:18
Ég veit það og finn það líka að ég verð að fara að taka mig taki en síðustu ár hef ég gleymt sjálfri mér í vandamálum dótturinnar, sem er að sjálfsögðu vitleysa að gera. Það stakk mig líka svolítið um daginn þegar yngri dóttir mín (11 ára) skammaði mig og sagði mér að fara að hugsa um sjálfa mig einu sinni!!! ég er þó aðeins farin að nenna að fara út að labba með hundinn/ana, það er þó byrjunin
Huld S. Ringsted, 11.1.2008 kl. 22:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.