Fótbolti kvenna - bikardeild

Sem nýbreytni hér á síðunni er ég í dag með fréttir úr íslenska kvennafótblotanum.

Fjölnir vann Stjörnuna í Garðabæ 2-1. Á 20. mínútu náði Fjölnir forystu þegar Helga Franklínsdóttir skoraði. Rúmum 20 mínútum síðar bætti Margrét Magnúsdóttir við öðru marki Fjölnisstúlkna. Þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum náðu Stjörnustúlkur að minnka muninn þegar Ásgerður Baldursdóttir skoraði. Nær komust þær ekki og lokastaðan 2-1 fyrir Fjölni.

Önnur nýbreytni á síðunni í dag er smá fjölskyldufræði Grin0

Málið er að hún Magga, sem átti 18 ára afmæli í gær og skoraði sitt fyrsta mark í bikardeildinni í gær er systurdóttir mín.

121-2200_img.jpg

Hér erum við frænkurnar staddar á Ráðhústorginu í Köben 2. júní sl.

Hún var þá að koma úr viku fótboltaæfingabúðum og ég hafði skellt mér í kvennahjólakeppni þennan dag og lagt að baki 112 km.

Náðum að hittast á torginu áður en hún fór í flug heim seinna um kvöldið.

Gaman að þessu börnin mín.

Eins og glöggir lesendur kannski sjá þá er maður þokkalega heima hjá sér þarna, bara á íslensku inniskónum frá Lækjabotnum.

Góð blanda

Smile


Hjálp!!!

Ég er alveg lost Frown

Fallegu tómataplönturnar mínar, sem ég er búin að hugsa svo vel um, hafa orðið fyrir árás Devil  Ég er algerlega ráðalaus, enda rati í ræktun. Shocking

Þetta lýsir sér þannig að blöðin og tómatarnir veslast upp og á stofninum er svarbrúnir blettir.

HVAÐ GET ÉG GERT TIL AÐ BJARGA RÆKTUNINNI ? ? ?

 

Er ástæðuna kannski að finna í stjörnuspá minni?

LjónLjón: Já, það eru einhver ástarmál sem þú þarft að taka á, en hvað með það? Þú getur ekki ætlast til að þú sért frábær í öllu. Hafðu húmor fyrir mistökunum.
 
Ást mín á tómötum misheppnuð vegna minna eigin mistaka??? Á það að vera fyndið?   Er það málið?
 
Over and out 
 
Ein sem greinilega getur gert einhver mistök Blush

 


Minningar skapa tengsl.

Minningar mínar úr æsku skapa í dag tengsl við svo margt. 

Mér hefur oft dottið í hug hve pabbi gaf okkur systrunum margar góðar minningar í farteskið. 

Pabbi vann langan vinnudag þegar við vorum að alast upp og mamma var heimavinnandi þar til ég var 16 ára. Þetta þýddi að  við sáum pabba stutt á kvöldin í miðri viku. Hann bætti okkur þetta upp um helgar. Flesta sunnudagsmorgna tók hann okkur systurnar með í bíltúr. Þannig áttum við góða stund saman og mamma fékk kærkomna pásu.

Pabbi fór víða um Reykjavík og nágreni með okkur. Kenndi okkur staðarheiti, örnefni. Við þekktum allir helstu byggingar borgarinnar. Við lærðum mikið á þessum ferðum og samveran var góð. Pabbi var líka fjölskyldurækin og oft fórum við með honum í heimsókn til ættingja hans. Kynntumst systkinum afa og ömmu á þennan hátt. Bundumst ættar- og fjölskylduböndum sem aldrei hafa rofnað. Systkini hans afa voru ólík systrum ömmu. Einn afabróðir minn átti stóran og magnaðan vörubíl, hann var flottur! Annar átti saltfiskverkun út við Gróttu. Þangað var gaman að koma. Ævintýri úti og inni og frændi skemmtilegur kall. Afasystur mínar voru voða fínar og flottar konur sem bjuggu svo fínt að maður hreyfði sig rólega og hélt sér stilltum á meðan heimsókn stóð. Alltaf spennandi. Ömmu systur mínar voru heldur mýkri týpur en reislulegar og fallegar konur. Góðar og þótti vænt um fólkið sitt. Ég kynntist best þremur systrum ömmu. Tvær bjuggu á Reykjavíkursvæðinu og ein í Hafnarfirði.   Í kringum þær var ekki stór fjölskylda. Ein var ógift alla tíð, ein átti tvö börn og þessi í Hafnarfirði eitt barn. Þær systur, áttu fleiri systur en ég þekkti þær ekki. ég man eftir því að þessar fjölskylduræknu ömmusystur mínar töluðu um systurdóttur sem þær áttu í Hafnarfirði. Ég man að sem barn þá gerði ég mér grein fyrir að þær höfðu áhyggjur af frænku sinni og hennar fjölskyldu. Skynjaði að þær voru vanmáttugar. Vissu ekki hvað var að. Gátu ekkert gert.  Ég sjálf skildi ekkert annað en að þær voru sorgmæddar er þetta bar á góma. Það getur ekki hafa verið oft því amma kom ekki oft til okkar í bæinn. En þetta greyptist í barnsminnið

Þetta er upprifjun á upplifunum og minningum sem ég á elskulegum pabba mínum að þakka InLove

Þetta var fyrir þig frænka  Heart


Rigning

Það tilkynnist hér með að ég er búin að fá NÓG af rigningu!!!

Vá, hvað ég er bara búin að fá nóg af rigningunni. Þrátt fyrir þessar miklu rigningar þá þarf ég samt alltaf að vökva tómatana mína og það er bara ekki skemmtilegt að verða haugblaut við það.

Þetta var "stóra" vandamálið mitt í dag.

Takk fyrir...

_______________________________________________________________________ 

Að öðru.

Var áðan að lesa síðu Breiðuvikursamtakanna 

Varð svo sorgmædd. Er búin að lesa sumt af þessu áður. Velti fyrir mér starfsháttum barnaverndarnefndar á þessum tíma. Þar hafa ríkt sérstæðar starfsreglur og líklega í anda síns tíma, verð ég að gera ráð fyrir ... eða hvað?

Í dag er ég að vinna með börn sem tekin hafa verið af heimilum. Börn sem beðið hafa um hjálp til yfirvalda og börn sem foreldar hafa beðið yfirvöld að hjálpa sér með. 

Hér er það þannig að hver kommúna er með félagsráðgjafa sem sjá um þín mál, komi eitthvað upp á, óháð því hvort þú ert barn eða fullorðin. Kynntist því þegar maðurinn minn lenti í slysi. Þá hafði hann aðgang að konu sem var svo stórkostleg. Hún hjálpaði okkur svo mikið. Hún var eini aðilinn í öllu þessu slysaferli sem leit einnig á fjölskylduna þegar áhrif slyssins voru metin. Því miður hætti hún og misviturt fólk með mikilmennsku og hroka tók við. Við enduðum með að ráða okkur lögfræðing til að sjá um samskiptin við kommúnuna, svona með það í huga að halda andlegu heilsufari réttu megin við strikið.

Eftir þessi kynni svo og í starfi mínu með þroskaheftum börnum og foreldrum þeirra þá veit ég að í hópi félagsráðgjafanna er misjafn sauður. Því eru þau börn sem leita til kommúnunnar eftir hjálp, að mínu mati hetjur! Þau þora að biðja um hjálp, segja upphátt: ég er búin að fá nóg! Því er mikilvægt að þau mæti skilningi, virðingu og að það sé hlustað á þau. Sem betur fer er það gert en ekki alltaf...

Ég veit um tánings snót sem ekki fékk að fara í skólann síðustu 2 mánuðina áður en sumarfrí hófust! Hún er barin að móður sinni og tveimur eldri systkinum. Hún hefur farið til læknis og fengið áverkavottorð, hún hefur farið á lögreglustöðina og kært móður sína fyrir líkamlegt ofbeldi, hún hefur farið á kommúnuna og beðið um hjálp. Hjálpin sem henni er boðin þar er að fara á eftirskóla næsta haust, vera fjarri vinum og kærum bekkjafélögum og þurfa að eyða helgum hjá móður sinni og systkinum. Getur þetta flokkast undir viðunandi lausn? Ekki í mínum huga. Ekki þegar ljósi punkturinn í lífi hennar er skólinn og félagarnir þar.

Úff..

Þetta voru rigningarþankar.

Ég bið bara um þurrviðri.

Er það til ofnmikils mælst?

Mig langar svo að klára að klippa hekkið mitt utanvert fyrir næstu jól.

Er það  too much???

 


Sólsetur

Íslenskt sólarlag er fallegt.
Litirnir og tilbrygði þeirra óviðjafnanlegt og aldrei eins.
isla057
Þessi mynd er tekin frá óðalinu mínu og sér hér yfir Þjórsá.
Það er hér rétt fyrir neðan sem bryggjan mun rísa og verður þá leikur einn að sigla inn í sólarlagið Sideways

« Fyrri síða | Næsta síða »

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Sept. 2025

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband