Góðan daginn, hvað er í gangi??? Eru Danir að verða vitlausir?

Eitthvað á þessa leið varð mér hugsað í morgunn þegar við Billi renndum inn á stæðið við líkamsræktarstöðina okkar. Málið er að ég hef ekki mætt þar í 4 vikur (var í spinninginu) og Billi í 3 vikur. Jólafríið, jú nó 0 Þetta sem mætti okkur á planinu var nú of mikil breyting fyrir mitt sálartetur svo snemma dags. Bílaplanið sem aldrei hefur haft meira en 0 til 2 bíla þegar við mætum rétt fyrir 6.00 var fullt af bílum, ja, allavega voru þarna 10 - 15 bílar og inn um gluggana sáum við fólk sem komið var á fleygiferð í tækin!!! Halló, hvað hafði breytst á þessum vikum sem við vorum í jólafríi? Fara Danir virkilega svona snemma að sofa í skammdeginu að forsenda sé til að flytja opnunartímann til 5??? Úff... var bara pláss fyrir okkur? Létum reyna á það og fórum inn steinhissa á þessum ósköpum. Ég skellti mér í kvennaklefann gekk frá mínu dóti og svo upp í krosstreinerinn. Þar var Billi kominn og byrjaður að puða. Mér varð litið á klukkuna upp á vegg og spyr Billa: Billi minn, hvenær léstu klukkuna vekja okkur í morgunn? Hann leit á mig, svo á klukkuna á veggnum og svaraði: kl.06.30 0

Ó, já. . .


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Úpps! ég var á tímabili við lestur færslunnar farin að halda að Danir væru jafn klikkaðir í líkamsrækt eftir jólin og Íslendingar en þá var það bara maðurinn þinn sem vildi sofa lengur

Huld S. Ringsted, 8.1.2008 kl. 22:14

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Lúmskur kallinn ´:):) gott hjá honum, stundum nennir maður bara ekki framúr.  Núna nenni ég ekki uppí, hvað á ég að gera??  kveðja til árrisulla Dana.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.1.2008 kl. 01:18

3 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Stelpur, hann heldur því enn fram að þetta hafi verið óvart  En þegar við fórum út úr ræktinni í gærmorgunn sagði hann sáttur: það var nú fínt að byrja bara rólega  .. og auðvitað var ég sammála

Ásdís hér drekkum við sérrý til að koma okkur í svefn. Nú er flaskan búin

Guðrún Þorleifs, 9.1.2008 kl. 07:18

4 Smámynd: Guðrún Þorleifs

He he. . . Heiða, ég var svo sem alveg sátt við að byrja rólega en á föstudaginn stilli ég klukkuna

Guðrún Þorleifs, 9.1.2008 kl. 14:57

5 identicon

Gott hjá ykkur að fara saman í ræktina og já gott hjá þér að taka ráðin af kallinum ef hann er að skipta yfir í einhvern letigír ...

Maddý 10.1.2008 kl. 07:31

6 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

AlheimsLjós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 10.1.2008 kl. 14:07

7 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Takk fyrir innlitið og kvittin

Guðrún Þorleifs, 11.1.2008 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband