Færsluflokkur: Spaugilegt

Hæ . . .

Hér er ég eftir smá fjarveru Wink
Ég hef smá verið að skreppa og shoppa undanfarið en eins og ástandið er þá hef ég ekki þorað að segja frá því. Blush  Þetta er auðvitað argasta kæruleysi eða eitthvað. . . 
Allavega þá hef ég verið að shoppa og fylla á hálftómann fataskápinn.  Eins og trúfastir og einlægir lesendur síðunnar muna þá fylltist ég yfirnáttúrulegri góðmennsku hér ekki fyrir svo löngu síðan og gaf hálfann fataskápinn minn.Halo  Þegar kona gerir slíkt góðverk ber að gjalda það. Enginn hefur goldið það, svo ég tók málið í mínar fögru hendur og reddaði þessu. Mér til aðstoðar hafði ég gott lið. Góð liðsheild er mikilvæg í svona átaki sem og öðrum. Minn maður ók mér í okkar draumabíl einn laugardagsmorgunn, rétt fyrir hádegið í bæinn hér í bæ. Við fundum bílastæði í þessum næstum bílastæðalausa bæ. Sígrita á þetta Wink Þegar við höfðum stigið út úr eðalvagninum og læst honum, gengum við eftir stíg inn á göngugötu bæjarins. Ekki vorum  við nema rétt stíginn inn á göngugötuna, þegar við hittum hana Rut. Rut er alveg ferleg kona, þarna var hún í shoopingferð með Guðmundi manni sínum en hafði bara skilið hann eftir í reiðuleysi einhverstaðar, sennilega í Fona  (allavega var það Merlin við hliðina sem fór á höfuðið) Við BT sáum strax að okkar var þörf hér, BT til að bjarga Guðmundi góða úr Fona og á Ib Rene Cario þar sem allir eru hulltir og ég þurfti að hjálpa Rut að shoppa smá Whistling  Þetta gerðist allt svo hratt, svo áður en við vissum var BT farin að leita að GG og ég farin að hjálpa Rut. Óþægilega fljótt áttaði ég mig á því að ég var ekki með Dankortið en kona í hug bjargar sér og mér tókst án þess að vera með peninga að versla í 2 góða poka Halo mjög mikilvæg föt, skó og tilbehör Wink Já, við gerðum það gott og þeir gerðu það betra strákarnir. 
Þetta var þessi búðarferð.
Svo kom helgin á eftir, þar sem MT hjálpaði mér og síðan skrapp ég til Íslands og reddaði því með hárnæringarkaupum og fleiru. W00t  Þegar til Dk kom var kona orðin svo þjálfuð að ekki mátti stoppa. Það er nefnilega mjög mikilvægt að halda sér í góðu formi og ég var virkilega komin í gott shoopingform þrátt fyrir efnahagslegar hremmingar Íslands. Þess vegna var það að íþróttaálfur í shoppingformi (ný íþróttagrein í DK kemur, upphaflega frá Ísl.) bað sinn mann að skreppa með sér í A til Z og kaupa leðurstígvél á litlu sys og dagatal handa nöfnunni sinni. Ekki fengust þessir hlutir en til að viðhalda forminu var keyptur svefnsófi fyrir tvo. Já, það er mikilvægt að vera duglegur að æfa, koma sér í gott form og viðhalda því. ... því mun ég skreppa í byen á morgunn og viðhalda forminu. Wink þetta er mitt æfingaplan.
 
Lifið heil!!!
Police

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband