Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Det skal mærkes . . .

Skrapp með mínum í bæinn í morgunn. Vantaði smá járn á tankinn. Járnlady þarf nefnilega járn á tankinn þessa dagana. Var nánast orðin tóm. Á heimleið fann ég að ég var ekki alveg til í að fara heim strax. Búin að eyða síðustu tveimur vikunum þar í verulegum rólegheitum. Getur þú ekki farið með mig í smá bíltúr spurði ég minn. Jú jú, hvert viltu fara spurði hann. Bara þangað sem þú nennir að keyra sagði ég. OK sagði hann. treystir þú þér til Köben? Jebb sagði ég. Alltaf til í svona tjill. Komum við heima og náum í tannburstana og hundinn. Hún fékk að heimsækja Hullu og strákana í sveitina. Alsæl! Nú erum við komin hingað til að ég geti slakað á og haldið áfram að safna kröftum og hvar gerir maður það betur en þar sem allt er að gerast???

Det skal mærkes at man liver Wink


mbl.is Viðbúnaður í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar fór sú von . . .

En ég virði ákvörðun Davíðs.
Get bara ekki neitað því að ég er sannfærð um að endurkoma hans í íslensk stjórnmál hefði verið gæfuspor fyrir þessa þjóð.

Enn get ég vonað að forsetinn segi af sér. 

 

 


mbl.is Davíð svaf á hugmynd um framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri gæfuspor

Það yrði gæfuspor ef Davíð kæmi aftur inn í íslensk stjórnmál.

Nú er bara að bíða og sjá hvaða ákvörðun hann tekur.

Kannski á Ísland von . . . 


mbl.is Davíð í framboð á Suðurlandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hlýtur að vera hægt að taka á þessu af viti

Sem viðskiptavini og hlutabréfaeigenda í gamla Búnaðarbankanum með öllum þeim nöfnum sem í á eftir komu, reiðir það mig verulega að lesa um það fjárhagslega tjón sem fyrrum stjórnarmenn bannkas skilja eftir sig. Tjón sem er stærra en niðurskurðaráætlanir ríkisins í heilbrigðismálum!
Leyfi mér að linka á þessa frétt af visir.is.

Úr því ég er í pirringsbloggi þá vil ég líka segja:

- að mér finnst LÖNGU komin tími á að forseti Íslands segi af sér. Þvílík þjóðarskömm sem er að hafa hann í þessu embætti!

- að mér finnst hver skrauthúfan og aulagangurinn upp af öðrum í minnihlutastjórn Jóhönnu. Sé ekki að þessi stjórn muni eftir "velferð heimilanna" eftir að hún komst í ráðherrastólana. Þessi "boring" stjórn hefur sér til frægðar unnið að vera þátttakandi í stærsta einelti Íslandssögunnar!

Það er sannarlega margt sem sem veldur því að erfiðara og erfiðara er að vera stoltur Íslendingur. Þvílíkur bjánagangur og heimska sem viðgengst í krafti þess að nú eigi að færa allt til betri vegar.

Ef framhaldið í stjórnun og endurreisn íslenska efnahagskerfisins verður með sama stíl og á undan er gengið verður það "stórasta grín í heimi"

 Hér með hef ég komið af mér pirringi dagsins.

 


. .

Með miklum aga og mikilli þjálfun nær íþróttafólk æðsta takmarki sínu.
Í gegnum mótlætið getum við aðeins við aðeins fundið innri styrk og andlegt þrek.

 

...og já,

ég styð Davíð!!!

 

Er á fullu að láta mér batna svo ég geti komist á fullt í lífsdansinum aftur.

 

Hafið það gott   Heart


Afmælishundur dagsins ! ! !



Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag.
Hún á afmæli hún Lauga.
Hún er 13 ára í dag!!!

Já Lauguskottið okkar fyllir þrettánda árið í dag.

Þessi öðlingstík, sem á engan sinn líkan í öllum heiminum og Noregi líka.


Til hamingju með daginn og framtíðina Lauga mín. InLove

Wizard
Wizard WizardWizard
Wizard Wizard WizardWizard
Wizard Wizard Wizard Wizard Wizard
 
 
Lauga
 
Hér er þessi krúttmoli á eftirlitsferð í garðinum okkar sumarið 2007.

Vildi

 jan_feb_09_078.jpg

Vildi óska að verkefni morgunndagsins færi fram á landinu mínu kæra.

Verð bara að treysta þessu samfélagi sem ég bý í . . . 

 


...

Ég er hér enn Wink

Bara mikið að gera á öðrum vettvangi.

Búin að afreka heilan helling hér á Klakanum.

Kann og má nú margt sem ég hvorki kunni eða mátti áður Halo

Búið að vera góður tími.

Kaldur.

en... nú á ég fínann vetrarklæðanað, eða næstum.

Vantar enn buxur Woundering

Búin að spóka mig hér á leggings með legghlífum.

Voðalega fín. LoL

Skiptir máli Tounge

Hitti m.a. Ásdísi bloggvinkonu Heart 

Já, alveg x2 Wink

Ætla að koma aftur Grin

Loforð, ekki hótun Tounge

Já, kannski lít ég líka hér inn aftur. 

Veit það ekki. . .  kannski ef allt gengur vel og ég verð í stuði LoL

En ég fylgist allavega með ykkur krúttmolarnir mínir og verst að hafa ekki hitt Liljuna í Nettó Wink

Knús InLove

 


Ósamtaka en ...


ætla sér að bjarga Íslandi.

Áhugavert verður að fylgjast með því þegar andstæðir pólar ætla að sameinast um eina lausn, björgun Íslands.

Held það fari svona:

 

is


 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband