Vorganga

Síðustu vikur og mánuðir hafa ekki kallað á neitt sérstaka þörf til að blogga. Ástandið á Íslandi setur sterkt mark sitt á mann þó maður búi ekki á landinu. Einstaka blogg hefur verið sett inn meira svona til að gera en Gera.

Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að vera óvenju mikið á Íslandi það sem af er þessu ári.  Mér finnst það gott en það er líka gott að koma hingað heim í kreppuna, atvinnuleysið sem hér er. Gott því það er ekki eins slæmt og Heima.  Sennilega svona Pollýönnubull. Wink Mér finnst það nefnilega alveg "fokking" ómögulegt að vera hér í atvinnuleysi. Útlendingur, dýr starfskraftur í mínu fagi og sennilega frekar kresin á hvað mig langar að gera eða ekki gera Whistling  En það reddast Wink

Eitt af því sem ég hef verið að nota tíma minn í er íslenskt handverk. Ég prjóna smá sjálf en ég fylgist líka mikið með því sem er að gerast á Íslandi í þeim málum og hef gert lengi. Nú er það auðveldara með FB Wink

Mér finnst stórkostlegt að fylgjast með þróun íslensks handverks. Það eru magnaðir hlutir að gerast í íslenskri hönnun!

Íslendingar eru að mínu mati alveg einstaklega sérstök þjóð. Fólkið í landinu okkar getur svo margt og hefur hvert og eitt svo stórt hlutverk í samfélagshjólinu. Ef að þjóðarsálin verður ekki kæfð með þessu ICE Save ógeði þá mun hún ná sér upp úr þeim öldudal sem nú ríkir með einstökum kröftum. Ef ICE Save reikningunum verður troðið upp í afturenda þjóðarinnar (afsakið orðbragðið) þá mun hún verða bugðuð til langrar framtíðar. 

Nú er ég búin að tjá mig um þetta og komin að því sem ég ætlaði að blogga um.

Ég ætla nefnilega að segja ykkur frá og kynna fyrir ykkur uppáhaldslagið mitt.

Þannig er að um daginn fjárfesti ég í tveimur geisladiskum.Ég var í "kreppuferðalagi" með mínum ástkæra og eins og tæknin er, þá er auðvitað nettenging í bílnum og gildir þá einu hvort maður er í DK eða SE. Slíkar aðstæður nýtir kona sér þegar ekki er verið að þræða lykkjur á prjóna eða góna.
Ég nýtti mér möguleika netsins og pantaði eins og áður sagði tvo geisladiska Diskar þessir eru rammíslenskir og  dæmi um frábært framtak. Þessir geisladiskar eru með hljómsveitinni Hjónabandið. Fyrri diskurinn kom út 2006 og sá seinni var gefin formlega út 2. júní sl. Hann heitir: Í minningu Jóns. Ég er yfir mig ánægð með þessa diska sérstaklega þann seinni. Hann nær mér inn að hjartarótum. Eitt lagið á honum er algerlega númer eitt hjá mér svo er annað sem er algerlega númer tvo hjá mér Wink Ég syng hástöfum með þegar diskarnir eru spilaðir og einnig þegar minn spilar lög af þessum diskum á hljómborðinu sínu. Nú skulið þið ekki fá neinar grillur í hausinn og halda að við séum einhverjir rosa tónlistarmenn, því fer víðsfjarri. 

Já og nú er ég endanlega komin að efninu og það er uppáhaldslagið mitt þessa dagana, Vorganga.
Dýrka lagið og textann og syng það í hljóði og með hljóði.

Mig langar að deila þessum texta með ykkur. Ástæðan er einföld, þetta er fallegt og einfalt, svo ljúft  og einlægt.

Nú vil ég að þið sjáið þennan texta fyrir ykkar innra auga og njótið.

Vorganga.

Er á rölti, um mel og móa, mikið á ég gott,
söng í eyrum lætur lóa, lifnar gamalt glott.
Fuglarnir um flóa syngja, fagurt lifnar vor.
Þannig vil ég andann yngja, eflist við hvert spor.

Andinn svífur, gáfur gefast,
ef ég geng um engi,
lengi, beðið eftir því,
beðið eftir þér.

Niður brekkur lækir líða, liðast eins og skott.
Lögmálinu ljúfir hlýða, líðst ei höfga dott.
Gutli vatn í gúmískónum gerir ekkert til.
Er í sokk af ömmuprjónum, ágætum með yl.

Nú er vorið, gengið inn í garðinn,
græni, blærinn
kominn allt í kringum mig,
kringum mig og þig.

Allt er nú í góðum gangi, gæfan mér við hlið.
Finnst mér eins og lækinn langi að leika fossanið.
Gott er þegar ganga vorsins gefur sálarfrið,
lifnar foldar frjó til lífsins, faðmar sólskynið.

Hæðir birtast, grundir gróa.
Þá er gaman úti að gleðjast
einn og leika sér,
leika sér með þér.

Texti; Jón Ólafsson

Lag; Jens Sigurðsson

Er nema von að maður elski þetta land? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Fallegt innlegg.Veistu ég upplifdi mig í gamla daga med ömmu ,afa og foreldrum mínum uppá fjalli eda hálandinu,tar sem vid fórum oft.Yndislegur texti og serlega gefandi fyrir sálina.

Takk elsku nafna mín.

Kvedja frá Jyderup.

Gudrún Hauksdótttir, 10.7.2009 kl. 06:40

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Já hugsaðu þér! Gaman að heyra hvað textin framkallar hjá þér. Mér gefur hann þessa sterku tilfinngu fyrir náttúrinni okkar að vori og sumri.
Vildi geta spilað þetta lag fyrir þig! Ég syng hástöfum með, svo grípandi og  gerir mann svo glaðann

Kær kveðja til þín héðan frá Als

Guðrún Þorleifs, 10.7.2009 kl. 09:00

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ía Jóhannsdóttir, 11.7.2009 kl. 10:53

4 identicon

Sannarlega er þetta fallegur texti ,en hann er eins og smásaga um lífið og tilveruna .Já ICE ,er skelfilegt dæmi  sem mér finnst vera ranglátt  að klína þessu á þjóðina þar sem við erum alsekki í ábyrgð fyrir þessu brjálæði ,en það voru fjárglæframenn sem eiga þetta  örfáir ,og mér finnst skrítið hvað samviska þeirra er svört að geta hugsað sér að koma þjóðinni sinni á kaldann klaka með þessum glannaskap .En hart er undarlegt og skrítið sem er illskiljanlegt .

Jón Reynir Svavarsson 15.7.2009 kl. 23:09

5 identicon

Sæl Guðrún mín. Fallegur pistill hjá þér,ekkert vol og víl.  Við hjónakornin komum til DK nú í sumar og vorum í Hirsthals, við buðum ættingjum heim en engin kom.  Þaðgerði svo sem ekkert til því við undum okkur hið besta.  Við fórum á Skagen og þvílíkt upplifelsi, það var ekkert venjulegt.  Við skoðuðum m.a. listasafnið fræga sem er niðri við sjóinn og vorum svo heppinn að hitta sjálfan stofnanda safnins Axel Lind.  Við röbbuðum við hann smá stund, hann er 102 ára og svo ótrúlega hress að það var með ólíkindum.  Við fórum líka á heimili Önnu og Michaels Anchers sem núna er auðvitað orðið að safni.  Manni fannst sem maður hefði stigið á heilaga jörð.  En þú ert sennilega löngu búin að sjá þetta.  Ferðin var indæl þó að auðvitað bregði manni ónotalega við síðan í fyrra, þá ég við verðlagið.  Að sjálfsögðu enduðum við í Köben.  Við fórum á Vestfirðina þegar við komum heim og nú hvílum við okkur bara í bústaðnum okkar.  Trúðu varlega öllu því sem þú sérð í blöðunum frá Íslandi, það hefur minnkað vinna hér, en þeir sem nenna að vinna fá vinnu.  Það er kannski ekki heimsins besta atvinna, en vinna samt.  Stór hluti þeirra sem hangir heima á atvinnuleysisbótum getur fengið nóg að gera.  Það er bara svo miklu þægulegra að dunda sér heima á bótum.  Það eru mýmörg dæmi um svona lagað.  Annars væri gaman að fá að sjá þig einhverntíman heillin.

Góðar kveðjur héðan frá Íslandi Guðrún mín.  Dana.

Dana Kristín 17.7.2009 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband