Til hamingju!!!

Ég er rosalega rík. Í morgunn þegar ég vaknaði við klukkuna hoppaði ég fram úr til að hefja þennan frábæra dag. Eftir morgunnverk var ég tilbúin að skella mér í skólastelpuleikinn minn og þá var það sem ég fór að hugsa um ríkidæmi mitt. Þarna rölti ég út um dyrnar á húsinu mínu alsæl, móðir þriggja frábærra barna og gift yndislegum manni. Leit til himins og sá fullt af fallegum skýjum, setti mig svo inn í draumabílinn og var ekið í skólann. Lúxus.

Ég er mikið ríkari í dag en ég var fyrir 26 árum. Ekki af því að ég hafi verið fátæk þá, hvorki veraldlega né andlega. Ég er ríkari í dag vegna þess að þennan dag fyrir 26 árum fæddist frumburður okkar, frábær sonur sem hefur auðgað líf okkar.  

 Baldvin

Elsku Baldvin minn, hjartanlega til hamingju með 26 ára afmælið.
Yndislegt að hafa þig í "næsta" nágreni. 

fjölskyldan ágúst 2008

Hér erum við svo með hópinn okkar sem er að smá stækka Smile

Myndin er tekin áður en prinsessan flutti í Ammríkuhrepp.

 

Góðar stundir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Innilega til hamingju með þennan myndalega strák. Vá flottur!

Ía Jóhannsdóttir, 29.10.2008 kl. 19:11

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Takk Ía mín. Yndislegur sonur og alveg ótrúlega frábær

Guðrún Þorleifs, 29.10.2008 kl. 20:44

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innilega til hamingju með myndarlega unga manninn þinn, krúttið mitt er hjá mér núna og ég knúsa hann af minnsta tilefni, verð að nota tímann vel, hann flýgur aftur heim með expressinu á föstudagsmorgun early, ef það verður ekki seinkun 

Ásdís Sigurðardóttir, 29.10.2008 kl. 22:18

4 Smámynd: Anna Guðný

Til hamingju með strákinn. Ég er mikið sammála þér með ríkidæmið. Mikið finnst mér ég vera rík í dag.

Hafðu það gott ljúfan.

Anna Guðný , 29.10.2008 kl. 23:02

5 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Til hamingju med tennann flotta strák.

Tad má takka fyrir hvad madur er ríkur ad eiga svona yndislega fjölskyldu.Tín er flott.

Fadmlag til tín.

Gudrún Hauksdótttir, 30.10.2008 kl. 09:20

6 Smámynd: Hulla Dan

Já þú ert skooo rík

Aftur til hamigju og takk fyrir hjálpina í gær
Held að ég sé að vinna í kvöld...

Hulla Dan, 30.10.2008 kl. 09:44

7 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Kem ég aftur...Mig langadi vegna forvitnar minnar ad vita í hvada námi tú sert.

Fadmlag

Gudrún Hauksdótttir, 31.10.2008 kl. 07:34

8 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Ég er að læra Teknisk Design

Guðrún Þorleifs, 31.10.2008 kl. 11:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband