Fríið . . .

Nú er bara að koma að því. Á föstudaginn ætlum að skella okkur í vikufrí. Við veðrum 2 að þessu sinni, börnin orðin svo stór. Ýmist erlendis á ferðalagi, erlendis í vinnu eða hérlendis í vinnu eftir ferðalag Wink

Lengi vel var planið að skjótast til Tyrklands með flugi og líta á væntanlegan listaskóla og aðrar aðstæður fósturbarnsins. Þar sem flutning hennar seinkar verður ekkert af því nú. Ætli ég skutlist ekki niður eftir þegar þar að kemur og líti á aðstæður. Maður sendir ekki barn í hvað sem er. . .

Eftir situr að við erum samt að fara í frí. Ekki út að sigla, því ákveðið var að gefa Perlunni frí í ár vegna fyrirséðs annríkis hér á heimilinu. Þetta skapar ákveðinn vanda, hvert eigum við að fara?
Ég er svo hugmyndalaus en get þó sagt að mig langar í sól, sjó og fjöll. Að mig langar ekki að keyra heilann helling, að mig langar að skoða eitthvað fallegt, helst náttúru ekki hús. 

Er einhver með tillögu? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulla Dan

Hey,,, það er allt í boði fyrir ykkur!
Setjist upp í bíl og keyrið, einhvert!
Bentu blindandi á landakort og farið þanngað  Nema ef þú bendir á Grænland, þá má prófa aftur.
Djöfull hlakkar mig til þegar ég fæ svona frí, eftir ansi mörg ár

Láttu heyra frá ykkur, þetta er spennandi.

Hulla Dan, 30.6.2008 kl. 11:17

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Hulla mín, ætli það sé ekki málið, - allt í boði

- og sennilega endar þetta með sest upp í bíllinn e.h. föstudag, ekið, sofið smá og ekið um nóttina og hvar er ég nú??? 

Ertu búin að fá tíma hjá doksa? 

Hvar er sólin? Er hún hjá þér?  

Guðrún Þorleifs, 30.6.2008 kl. 11:31

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Keyra til Sviss mín tillaga.  Leitt með jakkann minn, hann er svo helvíti góður. Varstu líka búin að láta snúa öllu við hjá Elnu??  Hvað er að frétta af Gul.? Mig vantar adressuna þína svo ég geti sent lykilinn, vilt ekki senda mér hana bara í meil.  Komið þið ekki örugglega í júlí?? hvað er títt af pabba þínum??  Ég er tölvulaus fram á fimmtud. kíki samt í aðra sem ég hef til afnota.  Knús á þig elskuleg og bestu kveðjur frá Bjarna til Billa og auðvitað Laugu yndislegur og Gul.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.6.2008 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband