Gaman saman

Vil bara láta ykkur vita krúttin mín hve gaman það er hér hjá mér Grin Með góða vini í heimsókn og í dag komu megakrútt dagsins í heimsókn til mín. Sætar saman
Hulla Pulla og múttu krúttið hennar.
 
Næst er svo að festa hina gestina á pixelform, en þau eru hlaupandi út um allt eins og kálfar á vori Tounge

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf líf og fjör hjá þér skvís

Stína systir 18.6.2008 kl. 19:50

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Kveðja til ykkar allra í DK

Huld S. Ringsted, 18.6.2008 kl. 23:22

3 Smámynd: Hulla Dan

Dýrka Guðmund... !!! Held án gríns að þetta sé skásta myndin sem hefur verið tekin af mér síðan ég var fjagra (afi er að austan hihi)
Samt voru um 1200 myndir teknar af mér á brúðkaupsdaginn okkar í fyrra...
Hann er greinilega snillingur maðurinn.

Þetta er ekkert fótósjoppað, er það nokkuð?
Hugsa nefnilega að ég sjái ofboðslega fallega út í fótósjoppi.

Annars er ég sammála færslunni, BARA megakrútt

Hulla Dan, 19.6.2008 kl. 06:37

4 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Það er engin spurning, Guðmundur er afbragðsljósmyndari (og fiðluleikari) þegar efniviðurinn er góður. Vildi ekki Photoshopa þetta, við verðum að hafa frið. Þú veist vernda einkalífið. Muhaaahahaaaaa. . .

Ég brosi út að eyrum þegar ég hugsa til þes að hafa fengið ykkur í heimsókn í gær  Þekkti alveg svipinn á mömmu þinni en finnst það skrítið því ég man ekki eftir að hafa séð hana svo oft þegar ég var kríli. Ég er sammála henni með það að þú ert eins og Inga frænka með öll dýrinn en mér finnst þú lík Hullu ömmu þinni og svo er húmorinn þinn líkur mínum samt er ég með minn  

Guðrún Þorleifs, 19.6.2008 kl. 06:56

5 Smámynd: Hulla Dan

við erum náttúrulega bara æði

verðum bara eiginlega að halda smá partý, hann með fiðluna, Ingunn með nikkuna, Billi með orgelið og Eiki með gítarinn og þú og ég getum sungið... hehe NOT!!

Hulla Dan, 19.6.2008 kl. 07:36

6 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Sé þetta partý fyrir mér: Billi yrði líka að taka munnhörpuna og flautuna sem Ingunn keypti handa honum í Suður Ameríku og rosalega mundum við syngja flott Þetta meikar sens. Farðu að sofa!

Guðrún Þorleifs, 19.6.2008 kl. 07:46

7 Smámynd: Dana María Ólafsdóttir

Tid erud ekki heilar...

 Tad er semsagt ættarmót á næstunni?!

Dana María Ólafsdóttir, 19.6.2008 kl. 16:20

8 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Á hvað spilar þú Dana mín ?

Guðrún Þorleifs, 19.6.2008 kl. 22:09

9 Smámynd: Hulla Dan

Dana spilar aðalega með móður sína, annars á strengi ástarinnar...
Vá verð að fara að sofa, aftur...

Hulla Dan, 20.6.2008 kl. 06:04

10 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Ha ha ha. . .  farðu bara að sofa.

Guðrún Þorleifs, 20.6.2008 kl. 06:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband