Og þá . . .

- hefst lesturinn?

- hefjast skriftirnar?

- ?

Ætlaði annars bara að segja að Töfraprikið er komið út undir bert loft. Nú er engin leið að hemja það, biðin var svo löng.  Nú svíf ég á Töfraprikinu mínu um Als og er bara flott. Í fínu outfitti og allt í góðu. Þegar við BT lögðum af stað áðan í 2 túr vorsins/sumarsins þá hugsaði ég; hummmm Angry ummmm Woundering þegar hann spurði hvort við ættum ekki að hjóla upp fyrir Danfoss. Hvað er það langt? 40km sagði hann brattur. Ég hugsaði: 40 km í 2 túr vorsins/sumarsins Pinch Upphátt sagði ég: Já, látum reyna á það (Blush) BT vill alltaf byrja í mótvindi og hafa meðvind á leiðinni heim, þess vegna valdi hann Danfoss. Ég vil hafa meðvind í byrjun og vona svo að vindur hafi snúist þegar kemur að heimferð. Annars er ég betri á heimleið. Svona eins og heimasjúkt hross. Svo héldum við af stað. Minn hraðamælir er betteríslaus svo það var stólað á BT. Mjög mikilvægt hjá mér að vita þegar ég hjóla hratt Smile

Svo var lagt af stað. Hraðinn á sléttu fínn og allt í góðu. Þegar við komum lengra inn á Als, hvatti ég minn til að taka bara brekkurnar á sínum keppnishraða. Ég er meira svona, ætla upp, í brekkum Pinch
Þetta gekk allt alveg fínt en svo fór ég að dragast smá aftur úr, brekkur og svoleiðis. BT spændi í brekkurnar og fyrir ofan Danfoss mætti ég honum á baka leið. Can you tell my hvar Vífilstaðavegur is? (þýðir: hvar er 20 km markið) Hjá bláa skiltunu, ég þangað og svo til baka og nú á blússandi ferð. Ég er best á heimleið   Halo

Ó, já þinng var það. . .  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Duglega stelpa, ég var að selja hjólið mitt   ætla að stubbast á fótunum í sumar, svo ef ég verð farin að geta hjólað næsta sumar þá bara fer ég á Bjarna hjól.  Aldeilis að sumarið er komið í Danmörku, sonurinn hringir daglega og reynir að mana okkur út, en pabbi er lélegur svo ég fer ekki alveg á næstunni, þó klæjar okkur að kíkja næstu mán.mót. læt þig vita, hvenær ert þú næst hér á landi??  kveðja til Billa og knús á þig

Ásdís Sigurðardóttir, 6.5.2008 kl. 20:57

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Gott orð Töfraprik! Kveðja til Danmerkur

Huld S. Ringsted, 6.5.2008 kl. 21:30

3 Smámynd: Anna Guðný

Flott hjá ykkur Billa. Er sjálf byrjuð að hjóla hér á Ak. En ennþá bara á jafnsléttu? Ferðu ekki til Barcelona?

kveðja

Anna Guðný , 7.5.2008 kl. 00:57

4 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Það er alltaf mótvindur þegar maður hjólar. Satt eins og amen í kirkjunni.

Gunni Palli kokkur. 

Gunnar Páll Gunnarsson, 7.5.2008 kl. 21:18

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

knús frá steinu sem er sólarmegin í lífinu

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 8.5.2008 kl. 05:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband