Þetta er hægt að bæta!!!

Nú verða íslenskar konur að taka sig á!!!

Gengur ekki að við séum feitari en þær dönsku. Ekki nógu hollt og ekki nógu flott Wink

Hollt mataræði og hreyfing er lykilatriði í velferð hverrar konu. Að taka sig á, í alvöru, ekki bara vera að spá og láta sig dreyma um betri lífsstíl. Finnið leiðir sem henta til að lifa hollara lífi! Leiðir sem þið getið lifað með. Skyndilausnir eru ekki lausnir. Misjafnt hvað hentar hverjum og einum. Líttu á hvað þú ert að gera, hvað þú hefur verið að gera, hvað þarf að laga, hvernig getur þú gert það og hvenær ætlar þú að gera það. Langtíma markmið og skammtímamarkmið. Skref sem eru ekki stærri en að þú ræður við þau, nærð tökum á þeim og getu til að halda áfram og bæta við. Þá mun þér ganga vel. 

Danskar konur eru samkvæmt þessari könnun grennri en íslenskar. Færri í  yfirvigt.  Ástæðan er sögð að þær hjóla mikið og það er rétt. En margar danskar hjólakonur reykja alveg rosalega!!! Það er bara ekki verið að kanna það í þessari athugun. Hvort betra er að vera með pest eða kóleru læt ég ósagt en hvet íslenskar konur til að taka á sínum málum í fullri alvöru, sjálfrar sín vegna.

Gangi þér vel! Heart

Farin út að hjóla  Wizard

íslenski hjólarinn í DK

ps.

Maður fær flottan rass af að hjóla, það þarf ekki að fara í dýra líkamsræktarstöð til þess  Whistling

 


mbl.is Íslenskar konur þyngri en þær dönsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góðan daginn.   Ég er ákveðin í því að hjóla á mig flottan rass næsta sumar. Mér finnst allt of mikið af feitum ungum konum á Íslandi, konur á okkar aldri eru miklu flottari.  Gangi þér vel í náminu, hlakka til að heyra hvernig þetta fer af stað.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.8.2007 kl. 09:28

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Takk Ásdís mín 

Þú færð að fylgjast með engin spurning Fjörið hest fyrir alvöru á mánudaginn! Full vinna og fullt nám

Guðrún Þorleifs, 28.8.2007 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Guðrún Þorleifs

 Önnum kafið flón . . .

sem elskar lífð og tilveruna 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband